Eining - 01.03.1945, Síða 4
4
E I N I N G
Mynd þessi sýnir meðal annars línuritid, þar sem gerður er samanburður á áfengis-
kaupum landsmanna, 19US og fjárveitingu Alþingis til helztu menningarmála. Einnig
sézt á myndinni ofturlítið inn í dómssalinn og knæpuna.
hraða byrjar stöðvunin fjórum metr-
um nær hættunni en annars. Einnig
línurit, er sýnir, að áfengisskammtur,
40—80 gr., er bílstjórinn fær nokkurri
stundu fyrir akstur, verkar þannig, að
hann ekur tvisvar til fjórum sinnum
oftar út af veginum, og að tíminn, sem
hann þarf til að koma bifreiðinni á
veginn aftur, lengist að sama skapi.
Snöggum hemlunum við akstur fjölgar
mjög.
Fjórða deild.
Hún er allur framhluti sýningarsals-
ins. Þar eru sýningarmunir aðallega
viðvíkjandi bindindisstarfinu, jákvæðu
hliðinni, en einnig töluvert af ýmsu, er
snertir báðar hliðar. Fyrir gafli innst
er stórt hringmyndað línurit, saman-
burður á áfengiskaupum landsmanna
árið 1943 og fjárveiting ríkisins til
nokkurra menningarmála: Kirkjumála,
kr. 1,944,580, réttarfarsmála, kr. 9,266,
509, heilbrigðismála, kr. 3,955,927,
menntamála, kr. 10,204,357. En áfeng-
iskaup landsmanna þetta ár eru: kr.
22,000,000, og þó nokkru meira. Til
niðurrifs siðgæði og menningar eyða
landsmenn rúmum 22 milljónum þetta
ár, en ríkið veitir til uppbyggingar og
viðhalds menningu og siðgæði rúmar
25 milljónir.
I hinum enda þessarar deildar er
tafla, sem sýnir, að frá stofnári Góð-
temlarareglunnar á Islandi, 1884, til
1944, hafa 60,356 manns gengið í Regl-
una. Á þessu tímabili varði Reglan
760,555 kr. til útbreiðslu bindindis i
landinu. Þar af var framlag úr ríkis-
sjóði kr. 345,00. En hér eru ótalin öll
frjáls framlög einstakra manna og fél-
agasamtaka, sem auðvitað hafa verið
mikil.
Þá eru og myndir, sem sýna áhrif
áfengisneyzlunnar á íþróttalífið. Tvær
eða þrjár ölflöskur eða ofurlítill brenni-
vínssopi rýrir þol fjallgöngumannsins
allt að einum fimmta. Svipað áfengis-
magn dregur úr hraða sundmannsins
nokkuð á annan metra á 100 m. færi.
I hundrað metra hlaupi verður útkom-
an einum þriðja úr sek. lakari hjá
þeim manni, sem neytt hefur ofurlítils
áfengis eða eins fjórða lítra öls, en
þegar hann er án alls áfengis.
Þessar niðurstöður eru eftir sænsk-
um heimildum. Frá sömu heimildum
eru og myndir og línurit, er sýna, að
við alla nákvæmnisvinnu tekst miklu
ver hjá þeim, er neyta áfengis, og fer
það eftir magni áfengisskammtanna.
Það er sannprófað, að villur vélritar-
ans eru fleiri og hraðinn minni, ef
neytt er áfengis, þótt um lítinn skammt
sé að ræða. Sama gildir um aðra ná-
kvæmnisvinnu.
Eitt línuritið sýnir reynslu 43 trygg-
ingarfélaga í Ameríku á árunum 1885
—1908. Það fjallar eingöngu um menn,
sem ekki stunda áhættusama vinnu.
Línuritunum er skipt í 6 mismunandi
fiokka eftir áfengisvenjum manna:
1. flokkur: Dagleg en fremur hófleg
áfengisnautn. Þar er dánartölustig-
inn 119. (Hin normal dánartala er
miðuð við 100).
2. flokkur: Dagleg talsvert mikil áfeng-
isneyzla: dánartalan 182.
3. flokkur: Ekki dagleg áfengisneyzla,
en ofurölvun þó ekki óvenjuleg.
Dánartalan þar 145.
4. flokkur: Menn, sem verið hafa
drykkjumenn, en fengið bót án hæl-
isvistar. Dánartalan 125.
5. flokkur: Menn, sem verið hafa
drykkjumenn, en fengið bót á
drykkjumannahælum og verið al-
bindindismenn upp frá því. Dánar-
talan þar 127.
6. flokkur: Drykkjumenn, sem fengið
hafa bót á drykkjumannahælum, en
þó ekki verið albindindismenn upp
frá því. Dánartalan 162.
Neðri hluti línuritsins sýnir umfram-
tölu dauðsfalla í 1. og 2. flokki á ýms-
um árum tryggingartímabilsins. Þar
kemst dánartölustiginn upp í 252.
Annað línurit sýnir, að fjórum til
fimm sinnum oftar eru foreldrar
óknyttabarna og unglinga drykkju-
menn (oftast faðirinn).
Þá er tafla, er sýnir, að á árunum
1930—43 var flutt inn í landið tóbak
fyrir kr. 19,355,329. Fyrir þá upphæð
hefði mátt kaupa 20—30 góða togara
samkvæmt þáverandi verðlagi, eða
reisa 10—12 stórhýsi eins og Háskóla
íslands. Allir þessir peningar fóru út úr
a a
1.89» 2,960 5,892 5,780 «,379 5,01«
Stúlkur.
Þessi einkennilegu línurit sýna hve mörg ungmenni komu fyrir rétt í Bandaríkjunum
árið 19U3. Einnig tölu þeirra á mismunandi aldri. Aldur ungmennanna er skráiður fyrir
ofan myndirnar, en tala hinna seku fyrir neðan myndirnar. Línuritin sýna á hvaða ár-
um útkoman er verst. Hin slæma þróun í þessum málum liér á landi fer í sömu átt.
0 0
11,916 20,786 20,602 15,565 12,399 U.755 12,017 12,037 10,860
Piltar.