Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 7

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 7
~ Handritin skulu vélrituð og hafa góða spássíu. A fyrstu síðu handrits skal koma fram titill, stuttur, gagnorður en þó lýsandi fyrir innihald greinarinnar. ~ Nafn höfundar skal fylgja, starfsheiti, og upplýsingar sem segja frá náms- og starfsferli. ~ Greinar skulu ekki vera lengri en 14 vélritaðar síður og heimildalisti ætti að vera sem stystur (3-20 heimilidir), þó áskilur nefndin sér réttindi til að birta sérstök verkefni í heild sinni eftir mati hverju sinni. Myndir og teikningar skulu vera það skýrar að það sé hægt að prenta beint eftir þeim. Töflur þurfa að vera skýrt uppsettar og þarf að koma fram í texta hvar höfundur ætlar töflum og myndum pláss. Sé myndefni ekki verk eða eign greinahöfundar sjálfs skal geta uppruna þessa efnis, með tilhlýðanlegum tilvís- unum til höfundar þess. ~ Við ritun greinar og tilvitnana f heimildir skulu staðlar APA hafðar til hlið- sjónar, en nánari upplýsingar um þá er að finna í bókinni American Psychological Association Publication Manual, auk leiðbeininga um upp- setningu. (Einnig kann Gagnfræðakver handa háskólanemum (önnur útgáfa), eftir þá Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson að vera til gagns við uppsetningu (með tilvísun til APA-kerfisins)): í byrjun greinarinnar skal vera úrdráttur þar sem efni greinarinnar kemur fram 1 stuttu máli. Skammstafanir skulu skýrðar í fyrsta skipti sem þær koma fyrir. Höfundar eru ábyrgir fyrir að rétt sé vitnað í heimildir í greinum þeirra. Einnig eru þeir ábyrgir fyrir þeim skoðunum og upplýsingum sem þar koma fram. ~ Ritnefnd Ljósmæðrablaðsins áskilur sér rétt til að setja upp og aðlaga greinar að formi blaðsins. Annað efni: Oðru efni skal skila vel frágengnu og auðlæsilegu, helst ritunnu og uppsettu eða með leiðbeiningum um uppsetningu. Efnið má vera handskrifað en verður þá að vera skýrt, og hlýða sömu reglum og annað efni sem skilað er til birtingar. ^ÖSMÆÐRABIAÐIÐ 5

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.