Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 12

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 12
'it/m 'w/tttmclís Á/yytÁ mý^c&clclci /)/mwá (kafli úr bamasáttmála Sameinuðu þjóðanna í hnotskurn) 1. Barnið á rétt á að njóta alls þess sem í þessari yfirlýsingu stendur. Réttindin gilda undantekningalaust um öll nýfædd börn án tillits til þess hvar barnið er fætt, þeirrar ljósmóður eða læknis sem tók á móti því, á hvaða tíma sólarhringsins það er fætt, nærveru föður þess, eða aldurs og félagslegra aðstæðna móður. 2. Barnið á rétt á að vera ekki aðskilið frá móður sinni. 3. Barnið á rétt á ótakmarkaðri brjóstagjöf allan sólarhringinn. 4. Barnið á rétt á nærveru og hlýju. 5. Barnið á rétt á samveru við föður sinn og systkini strax eftir fæðingu. 6. Hlífa skal nýfæddu barni við ónauðsynlegum aðgerðum, meðhöndlun, þvælingi og hávaða, og koma skal í veg fyrir að ókunnir og óviðkomandi snerti það og meðhöndli að nauðsynjalausu. 7. Barnið er einstaklingur með sér þarfir og á rétt á einstaklingshæfðri umönnun. 8. Barnið á rétt á að því sé tekið eins og það er. 9. Barnið á rétt á, sé þess þörf, að fá besta mögulega sérfræðiþjónustu - meðferð og umönnun - burt séð frá kostnaði. 10. Réttur nýfædda barnsins er ætíð æðri réttindum móður, foreldra eða forsjáraðila. 10 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.