Ljósmæðrablaðið - 01.12.1997, Blaðsíða 13
Lyktarmólikúl berast með innönd-
um og koma þar fyrst að því sem kall-
ast í íslenskum orðabókum „lyktar-
klumba“ (olfactory bulb) sem er í
raun upphaf lyktartaugarinnar og er
staðsett í nefgöngunum á móts við
augun. Hún er þakin þunnri himnu
sem hefur að geyma milljónir tauga-
fruma. Á þeim eru einskonar bifhár
sem geta borið óendanlegt magn upp-
lýsinga. Þessar upplýsingar fást við
hverja innöndun eða í hvert sinn er
við drögum andann finnum við lykt.
Ólíkt heyrnarskyni og sjónskyni sem
byggist á ljósi og hljóði byggist lykt
eingöngu á því að lyktarmólikúl berist
að nefx sem samstundis sendir skila-
boð til limbic - hluta heilans sem stýr-
ir og nemur hvata og taugaboð. Þar
snertir ilmurinn strax okkar innsta
kjarna áður en heilabörkurinn sem
analyserar eða skilgreinir áreiti kemst
að. Limbic - hluti heilans hefur yfir
boðefnum að ráða s.s. encepaline
(dregur úr sársauka og eykur vellíð-
an), endorphine (hefur svipaða verk-
an), serotomin (slakar og róar), nora-
drenalin (örvandi og heldur okkur
vakandi). Þannig að limbic - hluti
heilans sendir þau boðefni um lik-
amann sem viðkomandi lykt fram-
kallar eða örvar.
Hmkjamaolíur á meðgöngu, í
fjeðingu og þjrst eftir fæðingu
Nokkuð hefur verið skrifað og rætt
um „hættuna“ við að meðhöndla með
ilmkjarnaolíum á meðgöngu á frekar
frjálslegan og ófaglegan hátt. Langir
listar olía hafa verið lagðir fram sem
varúðarlistar án nokkurra haldbærra
skýringa á því hvers vegna tilteknar
olíur eru á bannlista. Ekki er óalgengt
að kona hafi ekki hugmynd um að
getnaður hafi átt sér stað fyrr en
nokkrar vikur gengin með. Þ.a.l. hag-
at hún lífi sínu sem áður. Innan henn-
ar daglega lífsmynsturs gætu hugsan-
lega verið ilmolíur og/eða einhvers-
konar meðhöndlun þeim tengd. Mér
vitanlega hefur ekkert komið uppá
sem valdið hefur móðir eða barni
skaða á nokkurn hátt sem rekja má til
olíanna, notaðra á réttan hátt. Einu
skaðarnir svo vitað sé um eru vegna
þess að ólánsamar konur hafa tekið
inn óhóflegt magn ilmkjarnaolía í
þeim tilgangi að framkalla fósturlát og
vegna þess hve „óhefðbundnar lækn-
ingaaðferðir“ eiga enn undir högg að
sækja víða í hinum vestræna heim. Er-
sagan oft blásin upp en sannleikurinn
látinn liggja á milli hluta.
En til að ábyrgjast örugga og árang-
ursríka meðhöndlun eiga ilmkjarnaol-
íur aldrei að vera í höndum annara en
þeirra sem hafa faglegan bakgrunn á
því sviði eða undir eftirliti þeirra.
Á meðgöngu er hægt að koma í veg
fyrir eða vinna á ýmsum kvillum
engdu tímabilinu t.d.
* bakverkjum
* harðlífi
* vöðvakrömpum
* tilfinningalegu ójafnvægi
* æðahnútum
* brjóstsviða
* hypertension
* bjúg
Meðhöndlun byggist á því að verð-
andi mæður fá blöndur og ráðlegging-
ar fyrir þeirra tiltekna vandamáli og
vinna síðan með það sjálfar undir eft-
irliti fagmanns
Rannsóknir hafa leitt í ljós þá stað-
reynd að notkun ilmkjarnaolía í fæð-
ingu dregur verulega úr þörf fyrir
lyfjagjafir (t.d. pethidin ) auk þess að
hjálpa til á margvíslegan annan hátt.
Á fæðingarstofunni eru þær ýmist
notaðar til innöndunar, í nuddol-
íu/krem eða í bað sé sú aðstaða til
staðar.
Verkjastillandi:
* lavender - í bað.
* bergamot, geramum, lavender ,
palmarosa, rose otto til innönd
unar.
* black pepper, sweet marjoram í
nudd.
Hypertomic uterine action ( Hríðar-
stormur ):
* geramium, lavender - til mnönd
unar.
Puerperal depression ( Fæðingar-
þunglyndi ):
* clary - sage, frankincense, neroli
til innöndunar og í nudd.
Stress - hræðsla:
* clary - sage, rose otto, ylang -
ylang í nudd eða til innöndunar.
Uterine inertia ( sóttleysi ):
* clary - sage, lavender til innönd
unar eða í nudd.
Á sængurkvennagangi bíða oft
mörg vandamál meðhöndlunar sem
hægt er að vinna á með olíunum á
einfaldan og náttúrulegan hátt.
Blæðingar:
* cypress - lavender í bað ( setbað ).
Stálmi:
* geranium í bað eða volga grisju.
Keisaraskurður:
* lavender, tea tree í grisju á skurð
svæði.
Sárar geirvörtur:
* lavender, Rom. chamomile, rose
otto í krem. Berist á geirvörtur
eftir brjóstagjöf. Ath. að þvo vel
fyrir næstu gjöf.
Tilfmningalegt ójafnvægi:
* geranium, Rom. chamomile,
rose otto í bað eða til innöndunar.
Gyllinæð:
* cypress, lavender í krem.
Og fyrir litlu krílin má draga úr eða
jafnvel koma algerlega í veg fyrir
magakrampa með nuddohublöndu
sem inniheldur ginger, Roman
chamomile og mandarin ásamt því að
láta móðurina drekka fennel - te sé
hún með barnið á brjóstagjöf.
Þessi undanrituðu orð eru stiklur
úr fyrirlestri sem áhugasamar ljós-
mæður sóttust eftir á vetrarmánuð-
um. Er það einlæg von mín að hann
hafi kveikt áhuga einhverra á þessum
fræðum til viðbótar þeim sem fyrir
eru. Þetta er náttúruleg leið til að fyr-
irbyggja og vinna a hinum ymsu
meinum. Vegna þess, hve jakvæður
árangur rannsókna á sjukrahusum og
tilraunarstofum er, nytur hun vaxandi
athygli víða um hin vestræna heim.
Margrét Alice Birgisdóttir
13