Ljósmæðrablaðið - 01.12.1997, Blaðsíða 19
Góð gjöf
Ljósmæðrafélagi íslands hefur borist góð gjöf. Þorkell J.
Sigurðsson og börn hans hafa gefið Minningasjóði ljós-
mæðra peningagjöf að upphæð 200.000kr til minningar
um eiginkonu sína og móður. Hun het Kristin Guðríður
Kristjánsdóttir og var ljósmóðir. Kristín tók ljósmæðrapróf
frá Ljósmæðraskóla íslands 30.júní 1931. Hún starfaði
rn.a. sem ljósmóðir í Eyrarsveit og Reykjavík.
Kristín lést 04.12.’93.
Fjölskyldan kom og afhenti gjöfina formanni félagsins.
Stjórn félagsins þakkar innilega þessa höfðinglegu gjöf.
Jafnframt vitum við að hún á eftir að koma í góðar þarfir
fyrir þær ljósmæður sem eiga eftir að fá styrk til framhalds-
náms í ljósmæðrafræðum.
Bestu þakkir
Fyrir hönd stjórnar LMFÍ
Ástþóra Kristinsdóttir, formaður
l-'ormaður LHl'í tekur -Oið góðri gjöf.
l-'rá -Oinstri Þórkatla Þorketsdóttir, Ingibjörg Þorkelsdóthr og Sig-
urður I-:. Þorkelsson, Þorketl). Sigurðsson og Guðríður Þorkels-
dótir. Á m'Jndina óantar einn soninn, það er Gisti Þorketsson.
Frétlir úr K^jum
Við erum hér tvær ljósmæður í tveim-
ur og hálfri stöðu. Tvær af stöðunum
tilheyra sjúkrahúsinu en hálf heilsu-
gæslunni. Við skiptum með okkur
vöktum, erum tvo sólarhringa á vakt á
virkum dögum en þrjá um helgar.
Vakthafandi ljósmóðir hefur viðveru-
skyldu 8 klst. á virkum dögum en 6
klst um helgar. Annars er hún á út-
kallsvakt og getur vinnutíminn verið
ansi teygjanlegur. Starfssvið okkar er
fjölbreytt, en í megindráttum er það
þannig:
Mæðravernd: Er skipulögð af okk-
ur> en í samvinnu við heilsugæslu-
lækna. Við erum með sjálfstæða mót-
töku / mæðraskoðun þrjá eftirmið-
daga vikunnar, en einn eftirmiðdag er
tttóttaka / mæðraskoðun með heilsu-
gæslulækni. Við höfum góða sam-
vinnu við heilsugæslulækna staðarins
°g er faglegum málum vísað á milli
aðila af beggja hálfu, sem við teljum
vera af hinu góða, því sum vandamál
eru læknisfræðileg en önnur ljósmóð-
tirfræðileg, en það er önnur saga.
Foreldrafræðsla: Við reynum að
bjóða öllum konum einhverja
fræðslu, en hvert námskeið getur ver-
ið mis yfirgripsmikið, því við höfum
gott tækifæri í mæðraverndinni til að
meta fræðsluþörf hverju sinni.
Fæðingaryfirsetan og fæðingin er
að sjálfsögðu í okkar höndum. Eng-
inn læknir er viðstaddur eðlilegar fæð-
ingar, en ef þurfa þykir er kallaður til
skurðlæknir.
Sængurlegan: Við önnumst
fræðslu til sængurkvennanna meðan
þær liggja inni, en umönnun er í sam-
vinnu við annað hjúkrunarfólk
sjúkradeildarinnar hverju sinni.
Ungbarnavernd: Við sinnum ung-
barnavernd þar til barnið er orðið
þriggja mánaða, fyrst í heimavitjun-
um en síðan koma mæðurnar með
börn sín á heilsugæsluna þegar liða
tekur á.
Útkallsvakt fyrir skurðstofu: A
tímum sparnaðar var sú ráðstöfun
gerð að önnur af tveimur bakvöktum
hjúkrunarfræðings skurðstofunnar
var tekin af. Allir sem til þekkja vita
að flestar skurðaðgerðir krefjast a.m.k.
tveggja hj úkrunatfræðinga, svo að í
þessum vandræðum var leitað til okk-
ar. Við féllumst á að gegna kalli fyrir
skurðstofuna utan dagvinnutímabils,
en óneitanlega hafa komið upp á-
rekstrar þar sem sinna þarf vinnu á
báðum stöðum í einu.
Ljósmóðurstarfið í Vestmannaeyj-
um er að mörgu leyti ólíkt því sem
hægt er að kynnast á höfuðborgar-
svæðinu. Hér er dæmigert eyjasamfé-
lag, sem þýðir að nálægð er mikil
meðal fólksins, og vinnan þín fer
stundum fram í kjörbúðinni meðan
þú bíður eftir afgreiðslu við kjötborð-
ið. Þar geta t.d. verið gefin góð ráð
um brjóstagjöf meðan beðið er. Þessi
nálægð hefur bæði kosti og galla. Hér
er ekki hægt að hverfa í fjöldann að
vinnudegi loknum, sem sumum þyk-
ir þrúgandi en öðrum ekki. Nálægð-
in gerir vinnuna miklu persónulegri.
Það er einmitt það sem fræðin okk-
ar eru sammála um, að góð tengsl
milli ljósmóðurinnar, konunnar og
fjölskyldu hennar eru eftirsóknarverð
og nýjir straumar í fæðingarþjónustu
á íslandi miða að því markmiði.
Bestu kveðjur.
Drífa Björnsdóttir
Guðný Bjarnadóttir.
19