Ljósmæðrablaðið - 01.12.1997, Side 20
Námskeið um sauma
Mánudaginn 8. september bauð
Austurbakki h/f ljósmæðrum til
kynningar á þeim saumefnum sem
þeir flytja inn, og um leið á nám-
skeið í saumatækni. Námskeiðið
var mjög vel sótt af ljósmæðrum.
Fyrirlesari var Rowan Norris, sem
starfar hjá Ob/Gyn deild Ethicon
fyrirtækisins í Skotlandi. Hún tal-
aði ensku.
Hún ræddi um tíðni áverka á
spöng, sem er sumstaðar allt að
100% (episiotomiur), en a.m.k.
þriðja hver kona þarf viðgerð á
spöng ( skv. Olah, 1994). 20 %
þeirra hafa einhver óþægindi 3
mánuðum síðar ( Grant, 1986 ).
Besti mögulegi árangur er háður
eftirfarandi:
1. Aðferð við saumaskapinn.
2. Færni þess sem saumar.
3. Val á saumaefni.
Varðandi efnið, þá er til ýmis kon-
ar þráður, annars vegar úr náttúru-
legum efnum, svo sem catgut og
silki. Þau valda frekar ertingu þar
sem líkaminn þekkir þau sem
framandi.
Hins vegar eru syntetísku efnin, s.s.
Vicryl, Dexon og Polysorb, sem
samkvæmt rannsóknum valda
minni aukaverkunum, t.d þarf
minni verkjameðferð við notkun
þeirra. Þau leysast upp og frásogast
síðan og hverfa alveg úr sárinu.
Mismunandi er hversu langan tíma
það tekur, og einnig hversu lengi
þráðurinn styður við sárið.
I sambandi við viðgerð á spöng,
(spangarskurði og rifur), skiptir
máli að þráðurinn styðji við sárið á
meðan sárbarmarnir eru að grípa
saman, og hverfi síðan flótt og vel.
Sum efni eru 90 til 110 daga að frá-
sogast, ( sem eykur líkur á óþæg-
indum ). Flestir þræðir hafa óþarf-
lega langan stuðningstíma (wound
support time) fyrir spangaráverka,
en þeir gróa mjög hratt, en Vicril
rapide hefur þann kost að styðja
við í 10 daga og er síðan horfið eft-
ir 42 daga.
Síðan sáum við videospólu þar sem
sýnt var hvernig spangarskurður
var saumaður með áframhaldandi
saum, og endahnúturinn falinn í
sárinu þar sem hann meiðir ekki.
Við fengum einnig að spreyta okk-
ur á að sauma í “húðlíki”, og hnýta
hnúta. Eftir kaffihlé var sýnd spóla
þar sem sýnt var nákvæmlega
hvernig á að gera keisaraskurð og
sauma saman á eftir, með viðegandi
þræði í hvert lag. Var það einnig
mjög fróðlegt.
Við þölckum Austurbakka
fyrir framtakið.
Höfum á
boðstólum mikið
af vörum er
tengjast
meðgöngu og
fœðingu t.d.
✓ Sjúkrasokka
✓ Stuðningsbelti
✓ Saum
✓ Skurðóhöld
✓ Brjóstapumpur
✓ Þurrmjólk
fyrir veröandi
mæöur og börn á
mismunandi aldri
✓ Futuro
✓ Prósport
Gtrn: Samstarfí30 ár
Aisturbakki hf.
P.O. BOX 909 - 121 REYKJAVÍK. ICELAND
Borgartun 20.105 fWyk)avfk - Tal.; 354-502 0411 Fax: 354-502 0435