Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2005, Page 14
74 MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2005
Neytendur DV
• Gítarinn á Stórhöfða er með
bassatilboÖ sem inniheldur rafbassa,
20w, magnara, ól, snúru,
poka, stillitæki, stand og
neglur. Tilboðið stendur til
20. aprfl og kostar pakk-
inn 42.900 krónur sem er
28% afsláttur.
• Aflangt nuddbaðkar
(163x83x73cm) er á
45% afslætti á
sturta.is og kostar
nuddkarið 127.000 krónur fram til
18. maí.
• Stigaroghandrið íLaugar-
brekku eru með EcoStar-lúgu-
stigi með hita og hljóðeinangraðri
lúgu (120x60cm) á 32.000 ^
krónur til 11. maí og er það
16% afslátur.
• Luka að Kirkjulundi er %
með Wrangler-buxur með
pilsi á tilboði til 12. mars og
kostar varan 1.980 krónur á þeim
tfma sem er 60% afsláttur.
• Mountain Tech-flíspeysur eru á
20% afslætti í Rúmfatalagemum til
18. aprfl og kosta 1.990 krónur.
• Sjónvarps-
miðstöðin í Síðu-
múla er með 1,8“
JVC digital-tökuvél á
119.900 til 6. maí sem
gerir 20% afslátt.
Ódýrasta bensínið'
Verö miðast viö 95 okt. i sjálfsafgreiðslu
_____ Höfuðborgarsvæðið
Hlynur Jörundsson hefur átt í stríði við Tölvulistann frá því starfsmenn fyrirtæk-
isins uppfærðu tölvuna hans. Hlynur segir þá á endanum hafa eyðilagt tölvuna.
Nú vilji þeir ekki taka ábyrgð á gjörðum sinum. Hlynur segist æfur eftir að hafa
vera hótað meiðyrðamáli ef hann færi með málið lengra. Hann leitar til Neytenda-
samtakanna.
„Ég læt þessa gaura hjá Tölvulistanum ekki hóta mér,“ segir
Hlynur Jörundsson iðnaðarmaður sem ber Tölvulistanum ekki
góða söguna, en Hlynur hefur ítrekað komið með sömu tölvuna
til þeirra í viðgerð en hefur aldrei fengið hana heila til baka. Eftir
að Tölvulistinn hótaði honum málsókn ef hann færi með málið
lengra ákvað Hlynur að fara í Neytendasamtökin og segja sína
sögu.
„Þeir segjast ætia að stefna mér
fyrir meiðyrði fari ég í hart,“ segir
Hlynur Jörundsson, sem er allt
annað en sáttur við viðskipti sín við
Tölvulistann. Hynur segir fyrirtæk-
ið ekki standa ekki undir þeirri
ábyrgð sem því beri.
„Mér dettur ekki í hug að láta
hóta mér svona og þetta mál fer til
Neytendasamtakanna. Ég ætla ekki
að bakka út úr þessu og þeir skulu
borga mér þetta - það er alveg á
hreinu," tekur Hlynur ákveðinn
ffarn.
Ónýt úr uppfærslu
„Þetta byrjaði allt með því að ég
ákvað að uppfæra móðurborðið, og
ég keypti hjá þeim pakka sem ég lét
þá setja saman fyrir mig og þeir
gerðu það. Svo fékk ég þetta til baka
og þá gerðist ekki neitt, svo ég fékk
ónýta tölvu til baka. Þá vildu þeir
ekki kannast við að hafa sett saman
tölvuna, en í ljós kom að kæliviftan
var sett öfug á örgjörvann, en það er
út af fyrir sig Herkúlesarátak að
gera það," heldur Hlynur fram.
Aftur og aftur sama sagan
Þeir tóku tölvuna aftur, sögðust
hafa gert við hana og ég borgaði fyr-
ir það þrjú þúsund krónur. Þá kom
í ljós að hún var alveg eins, jafn bil-
uð. Ég set hana þá í annan turn og
hún virkar ekki heldur þá, þeir tóku
hana aftur og sögðust hafa gert við
hana og að nú sé tölvan í fínu lagi.
Ég fékk kassann til baka og kveikti á
tölvunni og ekkert gerðist," segir
Hlynur sem þá var orðinn pirraður
og fór enn og aftur með tölvuna.
Núna sagðist hann vilja fá hana lag-
aða í eitt skipti fyrir öll. „Viku
seinna fékk ég hana til baka í pört-
um og þeir segja að hún sé ónýt og
engin ábyrgð á henni. Ég var að vísu
ekki látinn borga þarna en hafði
borgað sex til níu þúsund krónur í
hin skiptin."
Gangast ekki í ábyrgð
„Ég fór á annan stað og fékk úr
því skorið að móðurborðið væri
ónýtt og sömuleiðist örgjörvinn.
Þeir hjá Tölvulistanum segja þeir
mér að kaupa nýja örgjörva af þeim
og senda þann ónýta, sem ég keypti
upphaflega nýjan hjá þeim, út svo
hægt sé að athuga hvort um fram-
leiðslugalla sé að ræða. Ef svo er
munu þeir endurgreiða mér
örgjörvann," útskýrir Hlynur. „Ég
sagði nei takk og vildi bara fá nýtt
móðurborð og örgjörva fýrir það
sem þeir höfuð áður selt mér og
eyðilagt en þá sögðu þeir bara nei."
Hlynur Jörundsson Fékk ónýta tölvu úr
uppfærslu hjá Tölvulistanum, ætlar í Neyt-
endasamtökin með málið og hefur verið
hótað málsókn fyrir meiðyrði.
Hóta meiðyrðamáli
„Þetta var í ágúst í fyrra og nú
ætla ég að byrja að ganga í málið
þar sem ábyrgðin er að fara að
renna út. Ég sagði þeim að ég muni
fara í Neytendasamtökin ef þeir
vildu ekki leysa þetta mál. Þá sagði
viðmæland-
i minn við mig að fari ég í hart með
þetta muni þeir stefna mér fyrir
meiðyrði. Ég spurðu hann þá hvað
hánn héti og hann neitaði að segja
til nafns og skellti á,“ segir Hlynur
Jörundsson. tj@dv.is
„Þá sagði viðmælandi minn við mig að fari ég í
hart með þetta muni þeir stefna mér fyrir
meiðyrði. Ég spurði hann þá hvað hann héti og
hann neitaði að segja til nafns og skellti á."
Gunnar Freyr Jónsson segir Hlyn Jörundsson ekki segja rétt frá
Var ekki hótað í nafni Tölvulistans
Bensínpunktar
• Atlantsolía hækkaði bensínverðið hjá sér all veru-
lega á föstudaginn eða um fjórar krónur, úr 97,20 í
101,20 og erþví með dýrasta bensinið í sjálfsaf-
greiðslu á höfuðborgarsvæöinu.
• Þessi hækkun kemur verulega á óvart þar sem þeir
hafa hingað til gefiö sig út sem fjórða aflið sem býður
upp á samkeppnishæft verö.
• öll hin olíufélögln hafa haldið verðum slnum niðri
yfír helgina og eiga þau hrós sklllð fyrirþaö.
• Vonandi sjá hln olíufélögln sóma sinn í að hækka
ekki verð á oliu þótt Atlantsolia hafí hækkað og beita
á þá þeirra eigin meðulum, þ.e.a.s. að elta ekki heldur
blða þar til Atlantsolla lækkar aftur til að vera með I .
samkeppninni.
• Því miður verðurþað að teljast óllklegt að bensln-
verð haldist undir hundrað krónunum mikiö lengur
en með aukinni samkeppni er vonandi aö sjálfstæður
rekstur tilboðsstöðva stóru félaganna verið til
þess að það gerist ekkl.
„Ég er með samantekt af þessu máli öllu sam-
an og við getum ekkert gert fyrir manninn. Hlyn-
ur keypti hjá okkur hluti sem hann setti sjálfur
vitlaust saman. Hann fer með rangt mál og við
eru með þetta allt skráð í verkbeiðnir," segir
Gunnar Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri
Tölvulistans.
„Síðan kemur hann kemur bara með hlutina
til baka, sem voru móðurborð, örgjörvi, vifta og
vinnsluminni, en ekki alla tölvuna. Varðandi
kröfu hans um málið þá getum við ekki orðið að
henni þar sem hann eyðilagði sjálfur þessa hluti,
til dæmis með því að snúa viftunni öfugt og því
eru þeir ekki í ábyrgð," bendir Gunnar Freyr á.
„Þetta er bara eitt af þessum málum þar sem
einn af þessum þúsund er ósáttur. Varðandi
kvörtunina um að fá ekki örgjörvann endur-
greiddan verður henni ekki breytt og við viljum
ekki ræða einstaka ábyrgðarmál í fjölmiölum."
Tölvulistinn viö Nóatún
I Framkvæmdastjórinn segir ásak-
anir Filyns Jörundssonar rangar
því Hlynur hafi sjálfur skemmt
hlutina ítölvunni sinni og því séu
þeir ekki í ábyrgð,
arstjórinn hringdi þá í Hlyn sem var svo orðljót-
ur að verslunarstjórinn sagðist ekki geta setið
undir þessu og það að hann skyldi úthúða
starfsmönnum á opinberum vettvangi jaðraði
við meiðyrðum. Þá sagðist Hlynur ætla að fara í
blöðin með málið.
Þetta er allt sem sagt var við manninn og und-
ir engum kringumstæðum var honum hót-
að. Það var svo Hlynur sjálfur sem skellti á
verslunarstjórann en ekki öfugt," segir
Gunnar. Enginn hafi umboð fyrir að hóta
mönnum lögfræðingum nema ákveðnir
menn hjá fýrirtækinu.
',,Ég fagna því að hann skuli fara í Neyt-
f sambandi við hótunina sem Hlynur Jör-
undsson fjallar um segir Gunnar, „það var hann
sem hringdi í okkur og kallaði okkur lygara og
svikara og vildi fá að tala við eigandann. Verslun-
endasamtökin ef hann telur sig eiga kröfu í okk-
ur og að farið verði rétt með málið," segir Gunn-
ar Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri Tölvulistans
viðDV.
tj@dv.is