Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2005, Side 16
7 6 MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2005
Heilsan DV
Nálastungur lækka blóðþrýsting
Nálastungur virðast
geta dregið úr of háum
blóðþrýsting ef marka
má rannsóknir sem
gerðar voru á rottum í
háskóla í Kaliforníu. Sá
sem stjórnaði rann-
sókninni segir að nið-
urstöðurnar bendi til
þess að nálastungur
geti verið frábær viðbót
við
hefðbundnar lækningar,
sérstaklega þær sem
snúa að hjarta- og æða-
kerfinu. Astæðuna fyrir
þessum góðu áhrilúm
segir hann vera að
stungurnar stuðli að
losun og örvun á efna-
skiptum í heilanum
sem hafi góð áhrif á hringrás-
arkerfi líkamans.
Sífellt fíeiri konur eignast börn
seint á lífsleiðinni jafnvel þótt
rannsóknir sýni að hætta á ýms-
um fæðingargöllum eykst eftir 35
ára aldurinn
og að helm-
ingur allra
meðganga
sem verða eft-
ir að konan
verður ára 42
ára endi með
fóstureyðing-
um, utanlegs-
fóstrum eða
andvana fæð-
ingum. Engu
að síður sýna rannsóknir lika að
þvi eldri sem foreldrarnir eru því
meiri tíma hafa þeir fyrir börnin
og eru tilbúnari andlega til að
eignast þau. Eldri foreldrar eign-
ast líka oftast færri börn sem skil-
ar sér i enn betri aðhaldi fyrir þau
sem þau eignast þannig aldurinn
ætti ekki að vera nein fyristaða ef
vilji er til barneigna.
DNA-skráningu
barna hafnað
Hugmynd um að skrá genamengi
allra nýfæddra barna í Bretlandi hef-
ur verið
hafnað af
sérfræðing-
um um
erfðafræði.
Tværnefnd-
ir skipaðar
slíkum
fræðimönn-
um voru
beðnar um að vega og meta kosti og
galla slíkrar skráningar. Nefndar-
meðlimir ályktuðu að það myndi
ekki borga sig fjárhagslega og væri
siöferðislega á gráu svæði. Stuðn-
ingsmenn skráningakerfisins segja
að það muni hjálpa til við aö meta
Hkurnar á sjúkfjómum sem viðkom-
andi einstakl/ngar kunni að fá síðar
á ævinni. Meðal þeirra vandkvæða
sem myndu vera á sllku kerfi væru
meðal annars meðhöndlun upplýs-
inganna en erfitt er að fulltryggja að
þær verði ekki misnotaðar. Þá vaknar
líka sú spurning hvernig eigi að
koma upplýsingum um þá sjúk-
dómshættu sem stafar að einstak-
lingnum til skila. Mælt var með því
að þetta mál yrði endurskoöaö eftir
fimm ár.
Hummus
A vefslðunni maðurlifandi.is kennirým-
issa grasa I sambandi við holla lifnaðar-
hætti. Til dæmis er uppskrift að góðu og
hollu áleggi, en álegg þurfa ekki að vera
óholl eins og margir haida. Til að mynda
er tilvaiið að útbúa hummus og nota ofan
á brauð en það er gert úr kjúklingabaun-
um.
- 200 gr kjúklingabaunir soðnar
- 3 hvítlauksgeirar
safi úr 1 sítrónu
- 3 msk olífuolía
- 2 msk thaini
örlítið af tamarisósu
1 - 2 tsk sjávarsalt
1 tsk cayennepipar
handfylli af steinselju
- 50 ml af appelsínusafa
- örlitið af vatni eða nóg til að þynna
kæfuna örlltið.
- Blanda öllu vel saman f matvinnslu-
vél.
- Smakka til með salti eða cayenne-
pipar ef með þarf.
KæriLýður
Við vorum
nokkrar vinkonurnar
að tala saman um krabba-
mein og uppgötvuðum
að við vitum í raun
sáralítið um fyrirbær-
ið. Geturðu hjálpað
okkur? Okkur langar
t.d. að vita hvaðan
sjálft nafnið er
komið, hvers konar
fyrirbæri þetta er og hvað að-
greinir góðkynja æxli frá ill-
kynja. Og af hverju stöndum
við svona ráðþrota gagnvart
þessu? Er ekkert að rofa til?
Vinkona
Kæra Vinkona,
Krabbamein dregur nafn sitt af
útliti sínu eins og það kom mönnum
fyrir sjónir á röntgenmyndum af
brjóstum, en þar óx meinið eftir
mjólkurgöngunum og fíktist eins-
konar krumlu eða krabba. Meinið
dregur sem sagt ekki nafn sitt af
hegðun sjúkdómsins eins og marg-
ir halda heldur þessu útíiti sem ég
var að lýsa.
Fyrirbærið krabbamein hefur
eflaust fylgt mannskepnunni frá
örófi en var ekki skilgreint sem sjúk-
dómur fyrr en á þarsíðustu öld.
Krufningameistarar þeirra tíma
uppgötvuðu þá afbrigðilega útvexti
sem virtust á skjön við annað inn-
vols. Síðan þá hafa orðið stórstígar
framfarir í greiningu, stígun og
flokkun þessara meina sem geta að
því er virðist poppað upp í hvaða líf-
færi sem er.
Oft á dag
Ekkert einhlítt svar er við tilurð
krabbameina en margar kenningar
eru í gangi. M.a. er því haldið fram
að krabbameinsvísar myndist mörg-
um sinnum á degi hverjum en varn-
ir líkamans koma þeim fýrir kattar-
nef strax í fæðingu. Líklegast er um
að ræða stökkbreytíngar en það ku
vera breyting sem gerist allt í einu á
starfsemi frumu, stundum til góðs,
stundum ekki. Hagstæð stökkbreyt-
ing eykur hæfni og gerir heildinni
þannig gott, óhagstæð stökkbreyt-
ing er öndverð þessu og í tilviki
krabbameina má segja að góðborg-
ari breytist í harðsvíraðan bófa og
skemmdarvarg. Nákvæmur ferill
slíks viðsnúnings er hulinn en al-
mennt er þetta rakið til erfða og um-
hverfisþátta.
Góðkynja og illkynja
Góðkynja æxli eru eðlilega starf-
andi líkamsfrumur en á vitíausum
stað. Þau geta stækkað hratt og þrýst
á aðliggjandi æðar, taugar og líffæri
og þarf oft að fjarlægja æxlið af þeim
sökum. Þau hins vegar virða landa-
mæri og sá sér ekki þannig að brott-
nám þeirra þýðir fullnaðarlækn-
ingu.
Ulkynja æxli eru kölluð krabba-
mein. Hversu illkynja fer eftir fjar-
lægð frá móðurfrumunni, meiri fjar-
lægð, meiri illkynjun. Helsta áhuga-
mál illkynja fruma er kynlíf og þær
fjölga sér hratt. Annað er skeytíngar-
leysi gagnvart grönnum sínum, þær
vaxa inn í nærliggjandi hús og leggja
þau í rúst. Einnig senda þær útsend-
ara sína til fjarlægari svæða þar sem
hugað er að frekari landvinningum.
Slfkt er kallað meinvörp. Krabba-
meini má því sumpart líkja við út-
ungunarstöð hryðjuverkamanna
sem virða engar reglur og svífast
einskis. Oft er erfltt að flnna þessi
hreiður en augljóslega því fyrr því
betra.
Ekki ráðþrota
Ég er ekki sammála því að við
stöndum ráðþrota gagnvart þessum
vágesti, gríðarlegar framfarir hafa
orðið á umliðnum árum og áratug-
um. Árlega sigrast ótalmargir á þess-
um fjanda og teljast læknaðir þó til-
hneigingin sé sú að h'ta fremur til
hinna sem falla í valinn. Orðið
krabbamein er líka fremur skelfandi
og eðlilega engum fagnaðarefni. Höf-
um þó hugfast að enginn lifir lífið af
og einhver ráð þarf skaparinn að hafa
tiltæk svo veröldin sitji ekki uppi með
sömu eintökin öld eftír öld.
Meö heilsukveðju,
LýðurAmason læknir
Hráætur við góða heilsu
Þeirsem eru á hráfæöi boröa ein-
ungis hrátt grænmeti, hráa ávexti,
fræ, hnetur og sjávarþara. Sam-
kvæmt þeirra fræöum má ekki hita
matinn upp fyrir 48 "C til aö eyöi-
leggja ekki ensími I matnum.
Því hefur oft verið haldið fram aö
þeir sem neyti hráfæöis eigi i meiri
hættu á aö fá beinþynningu en þeir
sem neyta heföbundins matar.
Fréttir BBC afnýiegum athugunum
visindamanna benda þó til þess aö
hráætur séu viö góöa heilsu og þó
bein þeirra séu oft léttari en annars
fólks þá bendir ekkert til þess aö
þau séu stökkari eöa viökvæmari
fyrir því að brotna, en rannsóknin
var framkvæmd á 18 einstak-
lingum sem aðeins höföu borðaö
hrátt grænmeti i 10 ár aö minnsta
kosti.
Læknirinn sem stóö aö rannsókn-
inni, Dr. Fontana, segir aö þó bein-
þynning sé sterklega tengd lágri
líkamsþyngd hafí þaö ekki verið
rauninn meö hráæturnar. Vissu-
lega hafi þær verið léttar og marg-
ar visbendingar bent til þess aö
bein þeirra ættu að vera í verra
ásigkomulagi en þeirra sem neyta
heföbundinnar vestrænnar fæðu,
svo sem mjólkur- og kjötvara, en
þaö hafi ekki verið rauninn. Bein
hráætanna voru i góöu lagi og
innihéldu aö auki meira afD
vítamíni en aörir, jafnvel þó þær
neyti ekki mjólkur sem talin er ein
helsta uppspretta D vítamíns.