Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2005, Side 22
II
„Það má gera ráð fyrir bættum árangri í frjálsum
íþróttum með tilkomu þessarar aðstöðu, annað
væri óeðlilegt, og þá sérstaklega íþeim greinum
sem við höfum ekki áður keppt í innanhúss við
löglegar aðstæður.
22 MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2005
Sport DV
Búast mí viO stó
Nú líður senn að því að hin sérhannaða sýninga- og
frjálsíþróttahöll í Laugardalnum verði tilbúin til
notkunar. Framkvæmdir eru í fullum gangi og eru
verklok áætluð um miðjan október. Verkamenn
vinna dag og nótt til að ná að ljúka verkinu á um-
sömdum tíma og má nánast sjá dagsmun á umfangi
framkvæmdanna um þessar mundir.
Framkvæmdir hófust í janúar á
síðasta ári og því.er það alls rúmt
eitt og hálft ár sem áætlað er að taki
að byggja þetta nýja mannvirki sem
mun, ásamt tengibyggingum,
funda- og ráðstefnuaðstöðu og
búningsklefum, verða um 9.500 fer-
metrar að stærð og rúma um 1600
áhorfendur. Mun Laugardalshöll þá
alls verða heilir 16 þúsund fermetr-
ar í heildina.
Frjálsíþróttamenn hafa sérstaka
ástæðu til að fagna því höllin er sér-
staklega hönnuð fýrir æfingar og
keppni í frjálsum íþróttum. Þeir
geta því framvegis stundað sína
íþrótt innanhúss allan ársins hring.
Allt gólfefni í höllinni er lagt með
sérstöku tartan-efni og felst ein
helsta sérstaða hússins í því að
hlaupabrautir verða þannig gerðar
að 200 metra hlaupabraut má lyfta
með sérstökum búnaði eftir þörf-
um. Þannig mun það taka mjög
stuttan tíma að breyta gólfi hússins
eftir þörfum hverju sinni.
Það eru Reykjavíkurborg og
Samtök iðnaðarins sem sjá í sam-
einingu um að kosta framkvæmd-
irnar, en kostnaður er talinn vera
700-800 milljónir króna. Þar af eru
um 100 milljónir sem fara í sérstak-
an ffjálsíþróttabúnað sem notaður
verður á keppnum og æfingum.
Byiting
Jónas Egilsson, formaður Frjálsí-
þróttasambandsins, segir að um al-
gjöra byltingu sé að ræða fyrir frjáls-
íþróttastarfsemi á landinu. „Þarna
er um löggilda innanhússaðstöðu
að ræða, sú fyrsta og eina sinnar
tegundar á íslandi, og mun koma til
með að gjörbylta ekki bara æfinga-
aðstöðu íslenskra frjálsíþrótta-
manna heldur einnig keppnisað-