Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. JÚNl2005 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar Rltstjóran Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason Fréttastjóran Kristján Guy Burgess Óskar Hrafn Þorvaldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot 550 5090 Rltstjóm: ritstjorn@dv.is Auglýsingar auglysingar@dv.is. Setning og umbrot: 365 - prentmiðlar. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja. Dreifing: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og úr gagnabönkum án endurgjalds. Jónas Kristjánsson heima og að heiman Drottningarviðtal hefur stöðuga forustu meðal fslenzkra fjölmiöla f drottningarviðtölum við yfirstéttina f þjóðfélaginu. Nú sfðast horfðu menn forviða á Finn ingólfsson, sem fleiri blaðamenn en Egill Helgason telja hafa verið einn mesta ódrátt stjómmálanna á sföustu áratugum. Finnur rúllaöi upp fyrirspyijandanum og kom á framfæri rógi um Egil, án þess að rönd vaeri við reist. Frétta- stofa sjónvarpsins varð að hlaupa f skarðið sfðar um kvöld- ið með viðtali við Egil, sem sagöi efnislega, að aldrei hefði verið að marka orð hjá Finni. Senn koma fleiri drottningar- viðtöl f Kastljósi um sama efrii. Trampólín án ásxíaáífe birtist f Blað- inu f fyrradag innan um kynn- ingar þess á vöru og þjónustu. Fréttin gagnrýnir fréttamann Stöðvar 2 og endar á textanum: .Óljóst [er] hvaöa tilgangi trampólfn-sölu- tölur Húsa-smiöj- unnar áttu aö þjóna inni f frétt af trampólfnslysum, því eldd ber Húsasmiöjan ábyrgð á tjóni þeirra sem slasast." Mlkil- vægt er, að Blaöiö sé á vaktinni gegn þvf, aö illir fjölmlöiar abb- ist upp á valinkunn fyrirtæki, sem selja úrvalsvörur. Raunar má útfæra þessa skemmtilegu áminningu á ýmis svið og siö- bæta þannig umræðu annarra fjölmiðla f pólitfkinni og viöskiptalffinu. Hárkollur fyrlr dómara Dómurum og dómstjórum er f nöp við Ijósmyndir og sjónvarp ffá göngum dómhúsa, sem hafa tfðkast ffá því að myndavélar og myndbandsvélar voru fundnar upp. Þeim finnst ágengni hafa aukizt. Þannig er um Iffið f heild, allt magnast. Bflum og húsum fjölgar, dómsmálum fjölgar og einnig fjölmiölum, sem segja frá þeim. Dómarar og dómstjórar vilja banna þetta, enda hafa margir þeirra sýnt f ýmsum dómum, að þeir eru ekki (takt viö tfmann, vilja færa klukkuna aftur á bak til þess tfma, er dómarar voru með hár- kollur og höfðu respekt. Einn dómarinn setur athugasemdir um Ijósmyndara inn f dóma sfna. E <3 Leiðari Jónas Kristjánsson Landlæknir ber ríbyrgö d siðiini lœkna, svo seni koniið hefnrfrain ísívakinni iinirœðn uni risnu d vegum lyfjafrainleiðenda. Landlæknir í öngstræti Sigurður Guðmundsson er landlæknir, af því að núverandi ríMsstjóm taldi þá, sem næst embættinu stóðu þegar það var auglýst, ekki nógu halla undir miðlæga gagnagmnninn, sem deCode vildi koma upp. Rfldsstjómin taldi Sigurð þægan og tók hann því fram fyrir hina, sem sóttu um landlækninn. Sigurður er að þessu leyti pólitískt kví- gildi, sem sækir embætti sitt hvorki til guðs né fólksins, heldur til sérstæðra aðstæðna f pólitflúnni. Óráðlegt er af slflcum manni að slá um sig með kenningum um siðferðislega stöðu annarra aðila í þjóðfélaginu, svo sem fjölmiðla. Sú ákvörðun DV að birta nöfh og myndir af fólki í fréttum byggist á röksemdum, sem koma fram í siðareglmn. Um þær hefur rækilega verið fjallað hér í blaðinu og verður ekki endurtekið. Ekkert bendir til, að land- læknir hafi skoðað þau sjónarmið eða hafi nokkra hugmynd um tilvist þeirra. Landlæknir ber hins vegar ábyrgð á siðum lækna, svo sem komið hefur fram í sívakinm umræðu um risnu á vegum lyfjaframleið- enda og -seljenda. Ef landlæknir hefur áhuga á að bæta siði f þjóðfélaginu, liggur beint við, að hann taki tíl hendinni og knýi lækna með góðu eða illu til góðra siða. Skýrt hefur verið frá, að hagsmunaaðilar í lyfsölu kostí ráðsteftiur fýrir lækna, borgi fyrir þá kost og lógí, sendi þá í golfferðir, hafi íbúð í London til ráðstöfunar fyrir þá. Vitað er, að meira fer í slfkan kostnað lyfja- fyrirtækja en í kostnað þeirra við rannsóknir og þróun nýrra lyfja. Niðurstaða þessa spillta kerfis undir verndarvæng landlæknis er, að hér á landi er notað miklu meira af sumum lyfjum og Iyfjategundum en í nágrannalöndunum, þar sem þó er notað meira af lyfjum en margir telja ráðlegt. Segja má, að læknar hafi gert lyfjameðferð að eina úrræðinu fyrir veikt fólk. Skoðun okkar á DV er, að landlæknir hafi ekki sýnt, að hann hafi neitt að leggja fram til málanna um siðareglur í fjölmiðlum og túlkun slflcra siðareglna, en eigi heldur að snúa sér að því að koma á fót nothæftim siðareglum fyrir lækna og láta þar taka sér- staklega hart á ofangreindum lyfjamútum. Siðareglur lækna eru ekki birtar eins og siðareglur DV, enda snúast þær meira um, hvemig læknar eigi að vemda hver annan en um ábyrgð þeirra gagnvart almenningi, puplinum. Dómarar aiga í aðalatriðin Fyrst og fremst í FYRRADAG MÆTTI REYNIR TRAUSTA- S0N, fyrrverandi fréttastjóri DV og núverandi ritstjóri Mannlífs, í dóm- sal hjá Héraðsdómi Reykjavíkur að uppfylla þá borgaralegu skyldu að bera vitni í sakamáli. Málið var höfð- að gegn ungum manni, Jóni Trausta Lútherssyni, sem mddist í október inn á ritstjómarskrifstofur þessa blaðs, réðst á Reyni og tók hann kverkataki. Fyrir þessum atburðum voru mörg vitni. ÞAR SEM REYNIR MÆTTI I RÉTTINN vatt sér að honum maður sem hann kannaðist við ffá innrásinni á DV, ógnaði honum og sparkaði í hann. Reynir túlkaði það sem svo að vinur þess sem hann ætlaði að vima gegn væri að hóta honum og láta hann vita að hann ætti að hafa sig hægan. f réttarsalnum sat Jón Trausti Lúth- ersson og horfði í augun á öllum þeim sem komu að vitna um innrás hans á DV, skemmdarverk hans á Fréttablaðinu og árás hans á Reyni Traustason. ÞETTA FÓLK SEM MÆTTI (DÓMINN að kröfu lögreglunnar þurfti að gefa upp nöfn og heimilsföng fyrir fram- an mann sem það horfði upp á ganga berserksgang og sem það vissi að hefði lamið lögreglumann í átökum í Iæifsstöð. Þetta fólk vinnur á DV sem flutti af því fféttir að lög- reglumaðurinn sem Jón Trausti brákaði nefið á hefði ekki þorað að kæra hann þar sem fjölskyldu hans hefðu borist hótanir. ÞETTA DÓMSMÁL A EFTIR AÐ HAFA SINN GANG. Jón Trausti á rétt á sinni vörn og dómarinn á eftir að ákvarða um sekt, sýknu eða refsingu hans. Það sem vakti hins vegar athygli þeirra sem þurftu að bera vitni var hversu berskjölduð þau voru gagn- vart ofbeldismanninum. í ÞESSU LJÓSI ÞYKIR 0KKUR ein- kennilegt að ríkissaksóknari, dóm- stjórar og dómarar hafi mestan áhuga á því þessa dagana að veija sakbominga fyrir myndavélum í dómhúsum. Það virðist vera í bígerð að reyna að loka dómstólunum fyrir fjölmiðlum þar sem kerfinu lflcar ekki við það hvernig fjölmiðlar taka á málum. Dómarinn í Hafnarfirði var ekki hrifinn af því hvernig fjallað var um manninn sem slapp við refs- ingu fyrir að beita eiginkonu sína of- beldi. DV var í dómsalnum og birti mynd af manninum. Þetta varð nýjasta hæstaréttardómaranum, Jóni Steinari, tilefni til athugasemda um umfjöllun sem refsingu. ÞAÐ ER GRUNDVALLARATRIÐI í lýð- ræðis- og réttarrfld að réttarhöld Það sem vakti hins vegar athygli þeirra sem þurftu að bera vitni, varhversu berskjölduð þau voru gagnvart ofbeldismanninum skuli haldin fyrir opnum dyrum. Það gengur ekki að dómstjórar reyni að leyna almenning upplýsingum um dómsmál sem eru tii meðferðar. Við höfum á síðustu vikum oröið vör við að dómstólar birta ekki upplýsingar um mál sem lfldegt er aö veld eftir- tekt fjölmiðla. Við verðum vör við ýmsar tilraunir til að koma böndum á umfjöllun. Dómstólar eiga að standa vörð um fórnarlömb ofbeld- is, tryggja vitnum vernd og að rétt- læti yfir hinum seku nái ffam að ganga. Þeir eiga ekki að eyða kröft- um sínum í að þagga niður umfjöll- un eða agnúast út í myndatökur á opnum vettvangi. DÓMSTÓLAR EIGA AÐ STARFA fyrir opnum tjöldum. Það á að berjast gegn hvers kyns tilraunum til rit- stjórnar og ritskoðunar og því að dómarar leyni almenning upplýs- ingum um það sem ffam fer hjá dómstólum. kgb@dv.is íerðalog sem AlfreD og Vilhjalmur gætu faríð i næst Samkvæmt Fréttablaðinu ígær fóru Alfreð Þorsteinsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson til Bandaríkjanna tilaðskoða frístundabyggðir. i Graceland Gætu fengið góðar hug- Chernobyl Allar siðmenntaðar myndir fyrir ónotað þjóðir eiga kjarn- plríss i Orkuveitu- orkuver. husinu. Jólasveinaráð- Fangabúðir í Kína stefna í Finnlandi Fulltafgóðum hug- Myndu smellpassa i myndum þar. hópinn. Museum Erotica Hægt að koma upp sams konar safni þar sem Sala varn- arliðseigna var. Disneyland Kostn- Túrbínuverk- aðinn mætti milli- smiðjan f Japan færa afreikningi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Aldrei nógu vel tékkað d henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.