Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 14
74 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ2005 Fréttir DV Ósamræmi í matvöru- verslunum Verðstríðið sem hófst fyrr á þessu ári á matvörumarkaði hefur enn ekki tekið enda. Víða mátti sjá mjólkurlítra nánast gefins og myndaðist örtröð í þeim versl- unum sem þátt tóku. Krónan hóf verðstriðið og var ætlunin að ná samkeppnis- hæfni við Bónus. ASÍ hefur kannað verð í 63 verslunum um allt land. Kannaðir voru tuttugu vöruliðir. Ósam- ræmi var heldur mikið á milli verslana í sömu keðju og var það mest í verslunum Samkaupa- Úrvals, eða í 18 tilvikum. Næst var Krónan með ósamræmi í 17 tilvikum. í Samkaupum-Strax voru tilvikin 14 og ráku Bónus og Kaskó restina með 10 tilvik. Taka þarf fram að um margar og mismunandi verslanir er að ræða. Þetta kemur fram á heimasíðu ASÍ. Heitir reitir um allan bæ Sífellt færist í aukana að fyrirtæki bjóði upp á Heita reiti sem er þráð- laus háhraðanet- tenging, frá Og Vodafone. Nú em um fimmtíu veit- inga-ogkaffihús í Reykjavík og á Akureyri þegar komin með þessa þjónustu og sffelit fleiri bætast við. í Heitu reitunum komast far- tölvunotendur frítt í netteng- ingu þar sem alla helsm net- þjónustu er að finna. Þeir staðir sem bjóða upp á Heita reiti em sérmerktir og á þeim má nálgast frekari leiðbein- ingar um hvemig þjónustan virkar. Heita vatnið lækkar Orkuveita Reykjavíkur tilkynnti í gær um 1,5 pró- senta lækkun á heitu vatni til notenda á höfuöborgar- svæðinu og tók lækkunin gildi strax í kjölfarið. „Þetta var ákveðið fyrir nokkrum vikum og tók gildi núna 1. júní. Við ákváðum að hækka ekki með vísítöl- unni sem hefur hækkað um 3,5 prósent," segir Helgi Pétursson, almanna- tengslafulltrúi Orkuveitu Reyfqavfkur. Þrátt fyrir þessa hækkun ákvað Orkuveitan að hækka ekki vegna aukinnar sölu á heitu vami og reiknast því heildarlækkunin um 5 prósent þar sem venja er að hækka en ekki lækka þegar vísitalan hækkar. Samkeppni heldur bens- ínverði niðri Töluverðra hreyfinga varð vart á bensínmarkaðnum í gærogffyrradag þegar Esso hækk- aði verðin hjá sér ogfórlítrinnaf95 oktan bensíni í tæpar 107 krónur. Oh's kom í kjölfarið með álfka hækkanir en um kvöldið lækkaði Esso aftur ogOlísumhádegið í gær. „Það var þörf fyrir hækkun miðað við heims- markaðsverð og lækkunin kom til af markaðsástæðum. Við teljum að verðið eigi að vera gegnsætt og endurspegl- ast hér innanlands en það virðast ekki allir sömu skoð- unar og því bmgðumst við við á þeim forsendum," segir Magnús Ásgeirsson hjá Esso. Krónan Seldimjólk- ina á slikk I upphafi verðstríðsins. f Bónus Verðstriðið hafðilför Imeðsérað neytendur keyptu óvenjumikið af vörum sem von lækkaðar sérstaklega mikið. Verðkönnun ASÍ í verðkönnun sem fram- kvæmd var af ASÍ í síðustu viku kemur fram að mikill verðmunur er milli verslana í landinu. Allar verslanir voru teknar fyrir í þeirri könnun en í töflunni hér til hliðar em tilgreind verð Bónuss og Krón- unnar 25. maí. Krónan hóf eins og kunnugt er verðstríðið í ár með því að lækka verð á nokkrum vörutegundum í verslunum sínum. „Krónan lækkaði verð á nokkrum vömtegundum, það leiddi svo af sér lækkun á mark- aðnum. Hver verslunin á fætur annarri lækkaði þá vömr og endaði þetta svona," segir Jón. Einnig tek- ur hann fram að þetta verðstríð sé ekkert einsdæmi. „Það vom tvö svipuð verðstríð í fyrra á matvöru- markaði, svo þetta er ekkert nýtt,“ segir hann. „Það má segja að verð- stríðið endi aldrei." Enginn gróði í einni krónu Það sem hvað mest hefur skilað sér í buddu neyt- enda er án efa gríðarleg lækkun á aðalneysluvör- um íslendinga og ber þá helst að nefna verð á vör- um úr mjólkur- iðnaði. Verð á mjólkurlítranum hefur rokkað frá hálfri krónu og allt upp í sextíu til sjötíu krónur, sem áður fyrr var kaup- „Spurningin er bara hvar verðstríð birtíst. Verðstríðið núna er ekkert einsdæmi í sögunni," segir Jón Bjömsson forstjóri Haga, sem rekur meðal annars Bónus. Verðstríðið sem hófst í byrjun þessa árs hefur ekki farið framhjá neinum. Krónan og Bónus vom hvað mest áberandi í stríðinu og mættí ætla að stórfellt tap hefði orðið hjá þeim verslunum vegna þess. verð á mjólk í lágvömverslunum. Mjólkin var nánast gefins og héldu viðskiptavinir að vitfirring hefði gripið um sig hjá stjórnendum verslana vegna þess. „Það er ljóst að enginn græðir á vöm sem kostar krónu," segir Jón og tekur fram að verðstríðið auki fjölda viðskipta- vina verslana sökum aukins kaup- máttar. „Ég sé það bara jafri vel og þú að fólk kaupir meira ef það hef- ur meiri kaupmátt. Menn bæta jafnframt við sig viðskiptavinum og það sér ekki fyrir endann á því." Krónan lækkaði fyrst Hróar Bjömsson rekstrarstjóri Krón- unnar segir versl- anir þeirra hafa byrjað verðstríð- ið á því að lækka sig um 25 pró- sent. „Við lækk- uðum okkur um 25% til þess að halda okkur í þessum Bónus- verðum. Þar ætl- um við að halda okkur og bökk- um ekkert með það,“ segir Hróar. Krónan virðist hafa fest sig í sessi á „Við höfum fjölgað viðskiptavinum okkar um80% ogþaðer töluvert." matvörumarkaði eftir verðstríðið og segir Hróar aukninguna vera gríðarlega. „Við höfum fjölgað við- skiptavinum okkar um 80% og það er töluvert." Bónus með lægsta verðið „Við höfum bara látið verkin tala og ég bendi bara á verðkannanir ASÍ. Þar er þetta allt svart á hvítu," segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónusverslan- anna. Hann segir Bónus alltaf hafa haft yfirhöndina á markaðnum hvað verðstríð varðar og það sé ekkert á leiðinni að breytast. „Nú síðast vom tvær verðkannanir með stuttu millibili og var Bónus ódýrari í báðum," segir Guðmundur. VERÐKONNUN ASÍ Cheerios 567 g. Bónus 199 Krónan 201 Strásykur 1 kg. 58 63 Hveiti 2 kg. 39 69 Ora fiskib. 830 g dós 93 95 Gulrætur 1 kg. 45 196 Paprika græn 1 kg. 187 189 Tómatar ísl. 1 kg. 154 156 Kartöflur gullauga 2 kg. 129 ekki til Kínakál 1 kg. 131 133 Appelsínur 1 kg. 50 52 Bananar 1 kg. 69 73 Epli gul 1 kg. 78 80 Kíví 1 kg. 138 140 BKI kaffi extra 400 g. 115 263 Merrild kaffi 103 500 g. 263 265 Pickwick te 20 stk ekkitil 199 Svali appelsfnu 1/4 Itr. 21 39 Coca cola 2 Itr. 106 106 Pepsi Max 1/2 Itr. 63 63 Egils Malt 1/2 Itr. 73 75 Verðstr ðiö tekur Framboð á dýru íbúðarhúsnæði hefur aldrei verið meira og verð aldrei hærri Yfír 20 íbúðir rjúfa 50 milljón króna múrinn Yfir tuttugu íbúðir, allar á höfuð- borgarsvæðinu, eru metnar á yfir 50 milljónir króna í Fasteignablaði Fréttablaðsins í vikunni. Þar af eru tólf metnar á yfir 55 milljónir. Sú dýrasta, 366,8 fermetra íbúð á Viðar Böðvarsson Hjá fasteignasölunni Fold segir fleiri hafa efni á að kaupa dýr hús í dag. tveimur hæðum í Garðabæ, var met- in á 69,9 milljónir. „Það er orðið mun auðveldara að selja dýrari eignir en áður. Fleira fólk hefúr efiii á því að kaupa þessi dýru hús og svo hafa aukin lán gert það að verkum að hinn almenni borgari treystir sér til að fjárfesta í dýrara en áður,“ segir Viðar Böðvarsson hjá fasteignasölunni Fold um helstu ástæður þess að svo mikið er af íbúðarhúsnæði á þessu háa verði. „í kringum árin 1994 til 1995 þótti einbýlishús á Arnamesinu sem var metið á yfir 20 milljónir mjög dýrt og eitt árið sá ég ekki neitt íbúð- arhús fara á yfir þeirri tölu á sölunni hjá mér." Viðar segir að það hafi verið áber- andi aukning á ffamboði á húsnæði á háu verði síðustu tvö árin, eða eft- ir að bankarnir fóru að veita nýjar Jéjéí í tegundir húsnæðislána. „Væntingar um framtíðartekjur og þar með talin greiðslugeta og ákveðin bjartsýni ráða ríkjum," segir Viðar og sam- þykkir að út frá fermetrafjölda hafi stór hús á góðum stað hækkað f verði. „Þau hafa hækkað hlutfalls- lega mest stór hús á góðum stað og ég myndi skjóta á að fbúð sem nú er metin á 65 til 70 milljónir og er um 300 fermetrar hafi kostað um 45 til 50 milljónir fyrir þremur árum." tj@dv.is 50 til 60 milljónir? Yfir tuttugu hús á borð við þetta kosta meira en 50 milljónir i síðasta fast- eignablaði Fréttabiaðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.