Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 39
DV Síöast en ekki síst FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ2005 39 ■T. Sigríður Dögg svældi þá út Hún er óneitanlega sóðaleg, sú saga Framsóknar- og Sjálfstæðis- flokks sem sögð hefur verið í Frétta- blaðinu af sölu eigna almennings. Sigríður Dögg Auðunsdóttir hefur skráð skilmerkilega sögu spillingar sem Davíð Oddsson og HaUdór Ás- grímsson bera höfuðábyrgð á. Sverrir Hermannsson, fyrrum formaður Frjálslynda flokksins, hef- ur á síðastliðnum tveimur árum skrifað fjölmargar greinar og haldið ræður þar sem umfjöllunarefhið hefur verið spilhngin í kringum söl- una á Búnaðarbanka og Lands- banka íslands. Þingmenn Frjáls- lynda flokksins ásamt þingmönn- um VG óskuðu á síðasta þingi eftir skýrslu um störf einkavæðingar- nefndar. Formaður Sjálfstæðis- flokksins, Davíð Oddsson, svaraði þessari ósk með mjög ómálefnaleg- um hætti sem verður honum tU ævarandi skammar, þ.e. með því að benda á heimasíðu í forsætisráðu- neytinu. Framsóknarmenn hafa reynt að gera umræðuna um spUl- ingu forsætisráðherra ómerkUega og snúa henni upp í einhverja ein- Sigurjón Þórðarson skrifarum greinarflokk Fréttablaðsins og við- brögð yfirvalda. Framsóknarmenn hafa reynt að gera umræðuna um spill- ingu forsætisráðherra ómerkilega og snúa henni upp í einhverja eineltisumræðu. eltisumræðu. Reynt hefur verið að draga upp þá mynd að HaUdór Ás- grímsson sé eitthvert fómarlamb „smjattpatta" í stjómarandstöð- tmni sem leggi hann í einelti. Und- irritaður hefnr m.a. verið sakaður um að ganga hart fram með dylgjur í garð HaUdórs Ásgrímssonar og Framsóknarflokksins. Ef vinum mínum í Framsóknar- flokknum líður svo Ula undir rök- studdum ásökunum um spiUingu er í raun eingöngu eitt að gera, en það er að samþykkja að gerð verði óháð rannsókn á störfum einka- væðingarnefndar þegar þing kemur saman í haust. Nýjar upplýsingar Frétta- blaðsins Margt af því sem rakið er í grein- um Fréttablaðsins um söluna á eignum almennings er ekki nýtt fyr- ir þá sem hafa horft gagnrýnum augum á einkavinavæðinguna. Greinamar staðfesta hins vegar rökstuddar ásakanir sem framsókn- armenn hafa hingað tíl kaUað róg. Það sem er þó nýtt og kemur mér á óvart er að núverandi forsætisráð- herra, HaUdór Ásgrímsson, hafi staðið í því að bræða saman „kaup- endahóp" sem átti að fá Búnaðar- bankann án þess að greiða eina krónu við afhendingu, án þess að greiða krónu fyrr en seinna. Hvar í heiminum gæti þetta gerst annars staðar en á íslandi? Líklegast þurfa menn að fara aUa leið tíl Rússlands og tíl þess tíma þegar Jeltsín réði ríkjum tíl að finna hUðstæðu. Einnig sætir það furðu að Lands- bankinn hafi verið settur í það að lána blönkmn S-hópi HaUdórs Ás- grímssonar fyrir fyrstu útborgun í Búnaðarbankanum. Nýtt verkefni fyrir duglega bíaðamenn Sigríður Dögg Auðunsdóttir gerði vel í því að rekja spillingar- sögu Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokks um ráðstöfun ríkisbankanna. Það sem umfjöUunin hefur leitt af sér er að framsóknar- og sjálfstæð- ismenn hafa í fyrsta sinn þurft að svara fyrir sóðaleg vinnubrögð sín. Fleiri verkefiú eru þess verðug að vinna verði lögð í þau og vU ég fyrst nefna leyrúleg fjármál stjórn- málaflokkanna en ekki kæmi mér á óvart að bankaspiUingin tengdist með beinum hætti inn í fjármál stjórnarflokkanna. A morgun Staðviðrið heldur áfram á (slandi næstu dagana. í dag verður besta veðrið f Reykjavfk og á Suðurlandsundirlendinu, en Raufarhafnarbúar mega muna fífil sinn fegurri. Nú er prýðilegur tfmi til að fara í sund og taka smá lit. Enginn veit hvernig framhaldið verður á veðrinu. Erum við búin með kvótann? Kaupmannahöfn Stokkhólmur Helsinki London vindur 8 vindur Strekkingur 12 París 24 Alicante 26 15 Berlín 16 Mílanó 24 16 Frankfurt 21 New York 20 14 Madrid 27 San Francisco 19 19 Barcelona 24 Orlando/Flórídt 1 31 - 'ás s Sólarlagí Reykjavík 2334 8is1*1 • í haust hverfur HaUdór Blöndal úr stóli forseta Alþingis og við tekur Sólveig Pétursdóttir - hið fölnaða diskóblóm eins og Dr. Gunni lýsti henni eitt sinn. Víst er að fyrrum starfsmenn henn- ar í dómsmálaráðuneytinu hugsa sem svo að enginn viti hvað átt hef- ur fyrr en misst hefur og eiga þá við HaUdór sem þó sannarlega hefur ekki setið á friðar- stóU sem forseti þingsins. Sólveig mun nefnilega ekki hafa verið vinsæl í ráðuneytinu. Dæm- ið um sérgæsku hennar þegar hið guUslegna átta miUjóna króna einkaklósett er annars vegar er fjarri því hið eina en sögur segja að hún hafi tíl dæmis látið starfsmenn vinna fyrir sig heimUdarvinnu í rit- gerðir barna sinna og þá mun hún hafa látið skipta um felgur á ráð- herrabU sínum eins ótt og aðrar konur kaupa sér kjóla... • Sjónvarpsstöðvarnar eru nú í óða önn að leggja drög að vetrardagskrá sinni og DV heyrir nú úr innsta hring Stöðvar 2 manna að þar sé í undirbún- ingi gamanþáttaser- ía í leikstjórn Óskars Jónassonar. Ekki eru þættirnir hugsaðir sem „sitcom" heldur stakir þættir. Er hér ekki um að ræða Svínasúp- una sem einnig er fyrirhugað að verði á dagskrá. Þá mun óvíst hvort Reykja- vfkumætur þær sem Baltasar Kormákur framleiddi verði á dagskrá áfram. Með- al Stöðvar 2 manna voru nokkur vonbrigði með hversu lítUs áhorfs þeir þættir nutu sé að marka mæl- ingar sem markaðsmenn vUja hengja sig í öðru fremur... • Nokkur ólga er innan Eddu vegna næstu bókar Stefáns Mána Túrist- anum. Tekin var sú djarfa ákvörðun að gefa bókina út þrátt fyrir að þar sé fjaUað af fullkomnu virðingarleysi um útgáfubransann og höfunda - þeirra á meðal nokkra af virtustu rithöfunda Eddu. Mun útgáfustjórnin eiga í nokkrum ólgusjó vegna þessa og gæla þeir innan Eddu sem vUja sem minnst vesen nú við þá hugmynd að draga í land og hætta við... • DV hefur fylgst með gangi mála í hinni ágætu spumingakeppni Ólafis B. Guðnasonar á Talstöðinni. í gær tókust þau á Davíð Þór Jónsson og HUn Agnarsdóttir og ekki óvön því sem liðsstjórar hjá Karli Th. Birgis- syni í orðsifjafræðilegri spuminga- keppni sem hann stjómar á Rás 1. Davíð hafði betur og er þetta hans þriðji sigur. Hann er þar með kominn í of- urheilahóps Ólafs sem telur þá Davíð, Stefán Pálsson, Krist- ján B. Jónasson, EgU Helgason og Krístrúnu Heimis- dóttur. Hvenær svo þessi andlegu of- urmenni takast á sín á mUli er ekki vitað en víst er að þá verða glæring- ar... *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.