Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Blaðsíða 26
SEX RAÐ Þynnkan að drepa þig? Fylgdu þessum ráðum og sjáðu hvort þér líður ekki betur. Engifer og súrsaðar plómur 1. Glitbrá er jurt sem er góð við mígreni og ætti að duga á þynnkuhausverkinn. Til dæmis fær maður ekki í magann af henni líkt og af asperíni og fleiri lyfjum. Þú finnur glitbrá í hylkj- um í heilsubúðum. 2. Engifer er frábært gegn flökurleika og sjóveiki. Taktu tvær 500 milligramma töflur um leið og þér verður flökurt. Engi- ferte er líka gott í maga og getur róað hann. 3. Vatn er gott við öllu, líka þynnku. Drekktu vatn kvöldið áður og Uka áður en þú ferð að sofa það dregur úr því að líkam- inn ofþorni sem hefur í för með sér þreytu og höfuðverk. 26 FIMMTUDACUR 2. JÚNÍ2005 DV 4. Ef þú finnur heilsubúð sem selur umebushi (þurrkaðar og súrsaðar plómur) þá ertu í góðum málum því þær eru frá- bærar í þynnkunni - ef þú getur komið þeim niður. 5. Sterkar B-vítamíntöflur áttu að taka áður en þú byrjar að drekka, rétt fyrir svefn og þegar þú vaknar. Þá verðurðu kannski ekki eins þjáð af kraft- leysi og áhugaleysi sem oftast fylgir þynnkunni. Þú getur líka prófað B-12 töflu og láttu hana bráðna undir tungunni. 6. Ef ekkert af fýrrgreindu hentar þér, þá skaltu hella í blandara 4 sl. af vodka, 12 sl. tómatsafa, skvettu af sítrónu- safa, worchesterhiresósu, smá sellerísalti, pipar og nokkrum dropum af tabascosósu og klök- um. Hrærðu vel saman og helltu iÞig. Moccachino smoothie í ísbúðinni í Kringlunni er hægt að fá drykki sem nefnast „smoothies" og inni- halda að mestu leyti fitulítinn jógúrtís. Hægt er velja um margar tegundir ávaxta og allir ættu að finna sér eitthvað við hæfi. Fyrir kaffifíklana er tilvalið að velja sér smoothie með kaffibragði og Moccachino smoothie er geggjaður! hópi fólks á eftir. Hann var auðvitað mættur þangað og það fauk aðeins f mig því mér fannst hann alveg geta látið mig vera eitt kvöld. Hann varð fokillur og reyndi að draga mig heim en ég barðist á móti. Ég sagði honum að þetta væri búið og ég vildi ekki vera með hon- um lengur og þá fór hann að hóta að svipta sig lífi. Ég vildi ekki bera ábyrgð á neinu slíku og fór með honum heim en hugsaði mitt. Næstu daga reyndi ég í sífellu að finna góðan tíma til að ræða máhn og slíta sambandinu en hann varð alltaf mjög reiður og hótaði að gera sjálfum sér mein. Á þessum tímapunkti var ég al- veg búin að missa áhugann á hon- um og fyrir mér var sambandið búið. Gekk út Eftir að hafa rætt við vinkonur mínar tók ég þá ákvörðun að taka ekki hótanir hans nærri mér því þær útskýrðu fyrir mér að ég gæti aldrei stoppað hann í því sem hann vildi gera og hann væri bara að kúga mig til að vera með sér. Ég fór heim og sagði honum að þetta væri búið og fór. Næstu vikur voru hræðilegar. Hann hringdi viðstöðulaust, mætti á sömu staði og ég, dinglaði bjöll- unni um nætur og klifraði upp á svalirnar. Hótanirnar héldu líka áfram en ég reyndi að láta þær ekki á mig fá. Gefst ekki upp Nú eru átta mánuðir síðan við hættum saman og hann hringir enn. Næturheimsóknum hans hef- ur fækkað en hann birtist alltaf af og til hvenær sem er sólarhrings. Það er lítið sem ég get gert annað en að vera þolinmóð og vona að hann hætti þessu á endanum. mm í þetta sinn sagði ég já og við sett- um upp hringana viku síðar á heim- ili foreldra minna. Mömmu fannst ég vera ansi ung en samgladdist mér þó en pabbi hristi bara höfuðið. Stuttu síðar leigðum við okkur íbúð og fórum að búa saman. Afbrýðisemi Ég hafði tekið eftir því frá byrjun að hann var ansi afbrýðisamur og skipti þá ekki öllu hverjir áttu í hlut, vinkonur mínar, ókunnugt fólk eða íjölskyldumeðlimir, það fór rosa- lega í taugarnar á honum að hafa ekki óskipta athygli mína. Sérstak- lega braust þetta út hjá honum þeg- ar við fórum út að skemmta okkur og þá vildi hann algerlega kæfa mig og ef ég fór ein með stelpunum þá brást ekki að ég hitti hann „óvart“ á einhverjum skemmtistað. Þegar ég reyndi að vekja máls á- þessu vandamáli hans, baðst hann afsökunar eða eyddi því og vildi aldrei ræða þetta af neinni skyn- semi. Hágrét Það kom að því að ég fór að missa þolinmæðina því hann var alltaf ofan í andlitinu á mér, skoð- andi hverja ég hafði verið að hringja í og lesandi meilinn minn. Það var sama hvað ég sagði við hann, hann hætti bara ekki. Þegar ég fyrst orðaði það við hann að ég vildi hætta þessu brotnaði hann al- veg niður og fór að hágráta og grát- bað mig um að endurskoða það og lofaði öllu fögru. Mér fannst sjálfsagt að gefa þessu séns og í nokkrar vikur gekk allt eins og í sögu. Föst Svo kom að því að ég fór ein í veislu og fór svo á skemmtistað með Ung stúlka kynnist manni sem getur ekki hamið afbrýði- semi sína. Þegar hún fær nóg neitar hann að skilja að sambandinu sé lokið og lætur hana ekki í friði. að hann var rosalega hrifinn af mér og fór ekki dult með það. Hann vildi vera með mér öllum stundum og vildi helst ekki fara út af hótelher- berginu. Mér fannst svo sem ekkert at- hugavert við það þar sem við vorum nýbyrjuð að vera saman en mér brá svolítið þegar hann fór að minnast á trúlofun en var samt mjög upp með mér. Ég tók þann pól í hæðina að þykjast halda að hann væri að grín- ast og eyddi því tali um sinn. Trúlofun Við kviðum fyrir að fara heim og þurfa að takast á við veruleika hvers- dagsins en það varð ekki umflúið því við áttum bæði að mæta til vinnu. Eftir að heim var komið höfðum við eðlilega minni tíma til að hittast því við unnum bæði fullan vinnudag. Við eyddum samt öllum frítíma okk- ar saman og það leið ekki á löngu áður en hann spurði mig aftur hvort ég vildi trúlofast honum, þá vorum við búin að vera saman í þrjá mán- uði. Ég kynntist sambýlismanni mín- um í sumarfríi á Spáni. Ég hafði tek- ið mér frí frá menntaskólanámi og var að vinna í fiski. Við höfðum farið allar saman vinkonurnar í þriggja vikna ferð sem við höfðum safnað fyrir í langan tíma. Við vorum frekar ungar, ég var 18 ára og hinar 19, og ég fagnaði einmitt afmælinu mínu þarna úti. Hann var nýútskrifaður úr menntaskóla og var í útskriftarferð með stórum vinahópi. Óaðskiljanleg Við smullum strax saman og vor- um óaðskiljanleg alla ferðina. Það vakti dálítinn pirring meðal vina minna en ég lét það ekkert á mig fá enda mjög hrifin af honum. Okkur leið alveg svakalega vel þarna úti og þegar leið að því að fara heim ákváð- um við að lengja ferðina um viku svo við gætum verið ein saman og slappað af. Þessi vika var æðisleg og við vor- um mjög náin allan tímann. Þegar leið að brottför var orðið alveg ljóst // Lífsreynslusaga Hundelt Eftir sambandsslitin elti hann mig um allt og hringdi viðstöðulaust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.