Freyr

Volume

Freyr - 01.09.2004, Page 41

Freyr - 01.09.2004, Page 41
Skarfur 99-148 í Ytri-Skógum er líkt og á síðasta ári í öóru sæti og vísast til umíjöllunar um hann í grein á síðasta ári. Frændi hans, Kunningi 02-903, er í þriðja sæti fyrir sinn öfluga lambahóp í af- kvæmarannsókninni í Ytri-Skóg- um haustið 2003. Allir þessir þrír efstu hrútar eiga þannig uppruna sinn að meira eða minna leyti frá Ytri-Skógum. Þarna fylgir síðan stór hópur af ungum og efnileg- um ungum hrútum og eru þama allmargir synir Læks 97-843, Túla 98-858 og Vins 99-867 og meirihlutinn af hrútum í töflunni eru afkomendur Garps 92-808. Stöðvarhrútar, sem eru í þessari töflu, eru auk Kunningja, Spakur 00-909, sem lækkar að vísu held- ur í mati frá síðasta ári, Sólon 01- 899 og Vísir 01-892. Eins og sjá má í töflu 4 eru að vísu stöðvar- hrútar með hærra kynbótamat fyrir þennan þátt sem ekki kom- ast í töfluna út af slöku mati fyrir fítu. Hrútar með hæstu HEILDAREINKUNN Tafla 3 gefur yfirlit um þá hrúta sem efstir standa í heildareinkunn, það má segja að það séu því topp- hrútar landsins í kynbótagildi fyr- ir kjötmatsþætti. Líkt og árið áður stendur Spakur 00-909 þama efst- ur með 125 fyrir fitu og 142 í gerð eða 131,8 í heildareinkunn. Matið hjá Spak lækkar nokkuð frá fyrra ári fyrir gerð eftir viðbót á stómm sláturlambahópi haustið 2003 en er samt feikilega hátt. Þessi hrútur virðist ná að sameina gríðarlega mikla kosti í kjötgæðum hvort sem litið er á fitu eða gerð. I haust á hann ntjög stóran hóp afkvæma dreifðan um allt land eftir notkun á sæðingarstöð og verður ákaflega fróðlegt að fylgjast með hvort hann nær með þeim að staðfesta fyllilega þcssa ótrúlega miklu yf- irburði í kjötgæðum. I öðm sæti er Tafla 3. Hrútar með 120 eða meira, frh. Nafn Númer Bær Fjöldi Fita Gerð Heild Ægir 01-916 45 123 118 121,0 Dalur 01-614 Hnefilsdal 33 130 107 120,8 01-457 Ásbjarnarstöðum 97 132 104 120,8 Skalli 00-467 Hólmavík 81 114 131 120,8 Lári 00-303 Kjarlaksvöllum 173 137 96 120,6 Óþokki 02-206 Gautlöndum 25 129 108 120,6 Köggull 01-225 Klausturseli 75 123 117 120,6 Straumur 01-103 Hesti 31 129 108 120,6 Tímon 00-901 172 123 117 120,6 Áll 00-868 919 125 114 120,6 Jökull 01-414 Klifmýri 148 126 112 120,4 Hnappur 00-660 Tóvegg 120 132 103 120,4 Virki 02-208 Hofsstöðum 30 113 131 120,2 Tálmi 02-597 Brekku 60 121 119 120,2 Ás 00-623 Vogum III 120 121 119 120,2 02-508 Bjargshóli 22 122 117 120,0 Fengur 01-334 Kambi 105 124 114 120,0 Austri 00-435 Skarði 151 108 138 120,0 Fáfnir 00-086 Hesti 54 114 129 120,0 Biti 96-704 Ósabakka 446 112 132 120,0 Molar Neysluhyggjan verð- UR AÐ BREYTAST Nýlega birtu umhverfissamtök- in World Watch Institute árlega skýrslu sína um ástand jarðar, State of the World, í 21. sinn. Að þessu sinni er sjónum beint að neyslusamfélaginu og þá einkum ofneyslu hins ríkari hluta heims. Formála skýrslunar skrifar Börge Brende, umhverfismála- ráðherra Noregs (úr Hægri flokknum). Hann vitnar þar í ályktun sem gerð var á umhverf- isráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg i Suður-Afríku árið 2002 þar sem segir að til þess að koma á sjálfbærri þróun á jörðinni verður framleiðsla og neysla jarðarbúa að breytast í grundvallaratriðum, en Börge Brende er formaður vinnuhóps Sameinuðu þjóðanna um sjálf- bæra þróun (Commission on Sustainable Development). Iðnríki Vesturlanda halda hins vegar áfram að auka neyslu sína. Jafnframt sækja önnur lönd fast á eftir þeim. Þar má nefna að verulegur fjöldi fólks í Kína og Indlandi er kominn með góðar tekjur og á sínar fyrir- myndir í vestrænum lífsstíl. Yfir- völd í þessum löndum fagna þessari þróun sem hefur í för með sér aukin atvinnutækifæri og dregur að fjármagn frá öðrum löndum. Þegar þessar fjölmennu þjóðir og fleiri fara að taka þátt í neyslukapphlaupinu að fullu mun það leggjast af miklum þunga á vistkerfi jarðar sem þegar er farið að veikjast. Hverj- um hugsandi manni má vera Ijóst að neyslukapphlaup hins vestræna heims er komið út í öfgar og að sóunin vinnur gegn velferð fólks þegar til lengdar lætur. Nýtt kall tímans verður: Neysla eða velferð. (Unnið upp úr Bondebladet nr. 12/2004, bls 14-15). Freyr 6/2004 - 41 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.