Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2004, Síða 45

Freyr - 01.09.2004, Síða 45
eða úr hálfu strái 0,1 ml í á sem er sama magn og notað er af fersku sæði sem er í heldur meiri þynn- ingu eða 1:2,8. Niðurstöður Sæddar voru 768 ær með hálf- um stráum og 322 (41,9%), héldu með að meðaltali 1,62 lömb/á. 495 ær voru sæddar með heilu strái og 235 (47,6%) héldu með 1,73 lamb/á. Af 697 ám sæddum á Suðurlandi með fersku sæði héldu 70,3% með 1,84 lömb/á. Sæðing- ar með heilum stráum gáfu betri árangur hjá öllum sæðingamönn- um. Fanghlutfallið hjá einstökum sæðingamönnum var frá 33% til 65% með hálfúm stráum og frá 38% til 68% (80%) með heilum stráum (Tafla 1). Arangur var einnig mjög mis- munandi milli bæja. Sætt var á 15 bæjum og var árangurinn á bæjum þar sem sæddar voru fleiri en 10 ær með hálfúm eða heilum stráum frá 21% til 75% með hálfúm stráum og 27% til 82% með heilum strá- um. A einum bæ er til samanburð- ur á sæðingum með frystu sæði og fersku. Þar héldu 65% með hálfum stráum, 68% með heilum stráum og 72% með fersku sæði. Þegar litið er til einstakra hrúta og skoðaður er árangur þeirra sem notaðir voru á fleiri en 10 ær með hvorri aðferð kemur í ljós að fang- hlutfallið er frá 25% til 62,5% með hálfúm stráum og 29% til 72% með heilum stráum. Með fersku sæði var árangurinn 57% til 85%. Umræður Það er greinilegt að það næst betri árangur með því að nota 0,2 ml skammta en 0,1 ml. Breytileik- inn milli bæja er er mjög mikill og má reikna með að á honum bygg- ist breytileikinn milli sæðinga- mannanna og að hluta til milli hrútanna, því að notkunin á þeim var ekki jöfn milli búa. Það fer ekki á milli mála að árangurinn af sæðingunum er mjög vel viðun- andi hvort sem er með heilum eða hálfum stráum á þeim bæjum þar sem best gekk. Það er vitað að sætt var og leitað tvisvar á dag á öðrum þeirra. Það liggur fyrir að afla upplýsinga um hvemig að- stæður em á þeim bæjum sem sætt var á, til að ganga úr skugga um hvers vegna munurinn er svona mikill milli bæja. Full ástæða til þess að halda áfram að þróa notkun á frysta sæðinu. Það er rétt að nota 0,2 ml skammta. Þéttni sæðisins er metin með auganu en hefúr ekki verið mæld og þess vegna er fjöldi sæð- isfmma í skammtinum ekki stöðl- uð. Það verður stefnt að því að út- vega tæki til að mæla þéttni sæð- isins í framtíðinni. Af þeim gögn- um, sem liggja fyrir, verður ekki dregin ályktun af tímanum frá því að leitað var að blæsma ám þang- að til var sætt, en miðað við þann árangur sem náðist bestur er rétt að hafa þennan tíma 16-17 klst. Kostir og gallar við það að NOTA FRYST SÆÐI Avinningurinn af því að nota fryst hrútasæði er að sæðið geym- ist endalaust í fljótandi köfnunar- efni við -196°C. Þess vegna er hægt að koma sæðinu á afskekkta staði fyrir fengitíð og ekki þarf að treysta á færð og veður eins og þegar nota á sæðið ferskt. Hægt er að taka sæði til frystingar í upp- hafi fengitíðar, áður en sæðingar heíjast. Sæðið er þitt upp rétt fyr- ir notkun þannig að hver sæðis- skammtur nýtist. Þannig er hægt að ná meira sæði til notkunar úr eftirsóttum hrútum en annars væri. Einn sæðingamaður getur tekið að sér að sæða á nokkrum nærliggjandi bæjum yfir nokkum tíma og meiri möguleiki er að velja hrúta og ær saman án þess að nota samstillingar. Ókostimir við frysta sæðið em að sæðistakan tekur lengri tíma og sæðið er dýrara. Geymslukútamir fyrir sæðið eru dýrir. Fanghlutfall- ið er lægra og frjósemin minni en þegar notað er ferskt sæði. Þakkir Til þeirra sæðingamanna sem tóku þátt í tilrauninni og þeirra bænda sem lögóu til ær. Til sæðis- tökumannanna sem drifu sig á fætur til að ljúka verkefninu af áð- ur en venjulegur vinnudagur hófst. Til Þróunarsjóðs sauðfjárræktar fyrir ljárstuðning. Börn, sem drekka MJÓLK, ERU GRENNRI EN ÖNNUR BÖRN Bandarísk könnun á börnum á aldrinum 2ja mánaða til 8 ára leiddi í Ijós að börn, sem drekka mjólk og neyta mjólkurafurða, eru með minni líkamsfitu en önnur börn. Börn, sem neyttu mikils kalks, neyttu jafnframt fjöl- breyttari fæðu en borðuðu aftur minna sælgæti og drukku minna af gosdrykkjum en önn- ur börn. Þessar upplýsingar má lesa í fréttatilkynningu frá sænskum samtökum um aukna neyslu mjólkur og mjólkuraf- urða. í áðurnefndri rannsókn kom fram að meira en helming af kalkneyslu barna má rekja til mjólkurdrykkju þeirra. í sænskri rannsókn kom fram að það er skýrt samband milli of mikillar þyngdar og slæms mataræðis. Alltof mörg börn borða svo mikinn sykur að þau hafa ekki lyst á hollum mat, sem fullnægir þörfum þeirra fyrir m.a. járn og kalk. (Landsbyggdens Folk nr. 32/2004). Freyr 6/2004 - 45 |

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.