Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2004, Síða 46

Freyr - 01.09.2004, Síða 46
Einkunnir sæðingarstöðva- hrútanna haustið 2004 Löng hefð er fyrir því að birta á hverju hausti hér í blaðinu töflu með ein- kunnum sæðingarstöðvahrút- anna eins og þær líta þá út. Hér er um að ræða mikinn upplýsingabanka, sem að baki liggur, sem sauðfjárbændur hafa sjálfir aflað með skýrslu- haldi sínu. Því er eðlilegt að þessar tölur séu þeim eins að- gengilegar og hægt er til notk- unar við val ásetningslamba að haustinu þar sem þessar upp- lýsingar eiga að geta komið að mestum notum og markviss notkun þeirra síðan skilað sér í arðsamari sauðfjárstofni í landinu með hverju ári. Örstutt um hvaða upplýsingar eru þarna. Einkunn hrútanna fyrir lömb byggir á upplýsingum um öll lömb hrútanna sem fram hafa komið í skýrsluhaldi eftir að notk- un þeirra hófst á stöð. Eins og þessi einkunn hefur þróast þá er hún nú aðeins orðin vænleikaein- kunn fyrir hrútana. A öðrum stað í blaðinu er fjallað um BLUP kyn- bótamatið fyrir kjötmatsupplýs- ingar sem eru þær einkunnir sem á að nota þegar verið er að meta hrútana með tilliti til kjötgæða. Einkunn fyrir dætur er hins vegar aðeins byggð á einkunnum um dætur hrútsins sem fæddar eru eft- ir sæðingar og ná aðeins til síðasta árs, 2003. Yngstu hrútamir hafa að sjálfsögðu engar upplýsingar fyrir afkvæmi sem eru til orðin við sæðingar. Þær tölur, sem em í töflunni í sviga, em upplýsingar fyrir þessa hrúta úr heimafélagi þeirra sem í mjög mörgum tilvik- eftir Jón Viðar Jónmundsson, Bænda- samtökum Islands um byggja aðeins á notkun þeirra á einu búi. Reynslan hefur sýnt að þessar upplýsingar hafa breytilegt spásagnagildi auk þess sem í fleiri tilvikum en ekki liggja að baki fremur takmarkaðar upplýsingar vegna ungs aldurs hrútanna og af þeirri ástæðu er öryggi upplýsing- anna takmarkað. Þar sem um er að ræða slíkar upplýsingar úr heima- félagi um dætur hrútsins er ekki um að ræða fjölda dætra þeirra heldur samanlagðan Qölda afurða- ára hjá þeim og upplýsingamar em fyrir öll afurðaár þeirra en ekki aðeins upplýsingar frá árinu 2003 eingöngu eins og fyrir dætur tilkomnar með sæðingum. Eins og áður er nefnt er einkunn hrútanna um lömb nánast væn- leikaeinkunn og ekkert meira. Reynslan hefur hins vegar sýnt að lítill vænleikamunur kemur alla jafnan fram á afkvæmahópum stöðvahrútanna og eins og lesend- ur sjá og margir þekkja vel eru hrútamir því langflestir með ein- kunnir þar á bilinu 100-103. A það er að sjálfsögðu rétt að benda að nær allir hrútamir hafa átt einn árgang afkvæma áður en þeir koma til notkunar á stöð og inn á stöðvamar eru að sjálfsögðu aldr- ei teknir til notkunar hrútar sem Kostur 98-895. Feikilega öflugur ærfaðir og gefur vel gerð sláturlömb. 146 - Freyr 6/2004

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.