Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1995, Blaðsíða 13
7 Guðrún Sveinsdóttir, f. 16.9.1833 í Efsta-
Hvammi, d. 19.3.1915, húsmóðir íEfsta-Hvammi.
Maður: 9.10.1858, Einar Magnússon eldri, f.
24.11.1823 í Skáleyjum á Breiðafirði, d.
24.6.1901, bóndi og rennismiður.
8 Rannveig Hjaltadóttir, f. 2.5.1801 á Stað í
Steingrímsfirði, húsmóðir í Efsta-Hvammi.
Maður: 22.8.1825 ,Sveinn Þorvaldsson, f.6.6.1789
í Hvammi, d. 11.6.1834, bóndi og gullsmiður.
9 Sigríður Guðbrandsdóttir, f. 1774, d. 8.7.1842,
húsmóðir á Stað í Steingrímsfirði.
Maður: 1795, Hjalti Jónsson, f. 1766 á Prest-
bakka í Hrútafirði, d. 15.2.1827, prófastur, smiður
og skáld.
10 Sigríður Jónsdóttir, f. um 1747, d. 22.3.1835,
húsmóðir á Brjánslæk.
Maður: 1770, Guðbrandur Sigurðsson, f. 1735,
d. 4.3.1779, hrapaði til bana, prestur, smiður og
málari.
11 Guðrún Þórðardóttir, f. um 1705, d. 24.2.1790,
húsmóðir á Gilsbakka í Hvítársíðu.
Maður: 1.10.1734, Jón Jónsson, f. 1737 á
Gilsbakka, d. þar 22.8.1796, prestur.
12 Margrét Jónsdóttir, f. 1681, húsmóðir á Grund
í Eyrarsveit og í Hvalgröfum á Skarðsströnd.
Maður: Þórður Guðlaugsson, f. um 1671, d.
1707, bóndi og hreppstjóri.
13 Ragnheiður Torfadóttir, f. um 1651, d. 11.7.
1712, húsmóðir í Einarsnesi í Borgarfirði.
Maður: 1676, Jón Sigurðsson, f. um 1649 í
Einarsnesi, d. 29.5.1718, sýslumaður.
14 Sigríður Halldórsdóttir, f. um 1622, d. 1704,
húsmóðir í Gaulverjabæ.
Maður: 19.10.1651, Torfi Jónsson, f. 9.10.1617,
d. 20.7.1689, prestur.
15 Halldóra Jónsdóttir eldri, f. um 1585, d. 1661,
húsmóðir á Möðruvöllum í Eyjafirði.
Maður: 1606, Halldór Ólafsson, f. nál. 1580, d.
8.7.1638, lögmaður.
lóGuðrún Árnadóttir, f. nál. 1545, d. 1603,
húsmóðir á Grund í Eyjafirði.
Maður: Jón Björnsson, f. 1538, d. 19.3. 1613,
sýslumaður.
17 Guðrún Sæmundsdóttir, húsmóðir á Hlíðar-
enda í Fljótshlíð.
Maður: Árni Gíslason, d. 1587, sýslumaður.
18 Guðríður Vigfúsdóttir, húsmóðir á Ásum í
Holtum.
Maður: Sœmundur Eiríksson, d. 1554, lög-
réttumaður.
19 Guðrún Pálsdóttir, f. fyrir 1478, húsmóðir á
Hlíðarenda.
Maður: Vigfús Erlendsson, d. 1521, lögmaður og
hirðstjóri.
Böðvar Guðlaugsson:
Ættfræði
Lárus hreppstjóri á Haugi
var hálf-afabróðir minn,
og launbróðir hans, einhver Laugi,
var langömmuhálfbróðir þinn.
Og launsonur Laugja þessa
lét sig hafa það
að barna hálfsystur Bessa
burs séra Þorláks á Stað.
Og launsystir séra Láka
- lengi er á einu von,
átti með frænda hans, Áka,
utanhjónabands-son.
Felubam hans var svo Hanna
hálf-ömmusystir mín,
og einkabam hennar var Anna
afa-hálfsystir þín.
Þetta em flókin fræði
og fátt hef ég á þeim grætt,
nema fjarskylda frændur í bæði
föður- og móðurætt.
Hér slitnar leggurinn því að móðir Guðrúnar
Pálsdóttur er ókunn. Faðir hennar var Páll Jónsson
sýslumaður hinn frækni á Skarði á Skarðsströnd.
Það segir nokkra sögu um ólíka stöðu karla og
kvenna í ættfræðinni að í kvenleggjum verður ekki
með góðu móti hjá því komist að geta karlanna, eins
og hér er gert. Þessi ólíka staða kynjanna fyrr á öldum
er orðinn hlutur sem ættfræðingar nú á dögum fá ekki
breytt. En þess heldur ríður á að þeir reki af sér
slyðruorðið og sýni konum samtímans og störfum
þeirra fulla virðingu.
Nógu gaman væri nú auk þess ef fleiri leggðu sig
eftir löngum kvenleggjum og segðu frá þeim í
fréttabréfinu. Em margir kvenleggir lengri en sá sem
hér er rakinn?
13