Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1995, Side 16
Páll Einarsson sem flutti í húsið á
eftir Einari var mikill áhugamaður
um spíritisma. Hann mun þó einsk-
is hafa orðið var á sínum ámm í
Höfða.
Það er í reynd fyrst um 1950
sem “The White lady” fer að gera
vart við sig fyrir alvöru en síðan
hafa ýmsir þóst sjá torkennilegar
verur á sveimi í Höfða. En þeir
sem ekki búa yfir neinum dular-
gáfum verða að láta sér nægja að
horfa á listaverk Sigurjóns Ólafs-
sonar Öndvegisúlumar (Súlumar),
sem standa framan við Höfða en
þær kallaði hann stundum í spaugi
“Draugana í Höfða”.
Stúlkuklettar
Þeir sem eru næmir ættu ef til
vill að ganga fram á klettana sjáv-
armegin við Höfða, og velta fyrir
sér ömefninu Stúlkuklettur eða
Stúlkuklettar, sem þar er að finna
samkvæmt fyrsta íslenska sjókort-
inu (1788) og byggt var á athug-
unum Minors nokkm áður. Og
hver veit nema enn bergmáli um
loftin bláfyrstu loftskeytin semtil
íslands bámst erlendis frá, en ein-
mitt hér við Höfða reisti Marconi-
félagið fyrstu stangimar til mót-
töku slíkra skeyta árið 1905.
Af ofangreindu má sjá að saga
Höfða er orðin löng og litskrúðug.
Þar hafa skáld og skútusjómenn,
kóngar og konsúlar, drottningar
og draugar, læknar og lögfræð-
ingar, forsetar og framkvæmda-
menn gengið um gættir.
Og nú er komið að okkur,
kæru félagar, að gesta þetta sögu-
fræga hús. Hvað sem við sjáum,
lífs eða liðið, munum við finna
anda liðinnar aldar leika um okkur
í Höfða og heyra nið sögunnar um
leið og við njótum gestrisni borgar-
stjórans.
Samantekt:
Guðfinna Ragnarsdóttir.
Heimildir:
Páll Líndal: Reykjavík Sögustaður
við Sund, Einar Benediktsson:
Kvæðasafn, Gunnar M. Magnúss:
1001 nótt Reykjavíkur. Upplýsingar
frá Ólafi Jónssyni lögfræðingi hjá
Reykjavíkurborg. o. fl. heimildir.
Ættfræðin gerir okkur...
framhald afbls.9
Auðvitað má deila um það
hvort ættfræðin er grúsk eða vís-
indagrein - eða bara tómstunda-
gaman gamalla karla og kerlinga-
sem ekki hafa nema rétt komist í
gegnum bamaskóla. Og víst er að
mörgum háskólamönnum er gj amt
á að líta á ættfræðirannsóknir sem
hégóma og stolin orð - en ekki
vísindaleg fræðistörf. Mér finnst
það ekki skipta öllu máli hvort við
flokkum ættfræðinaundir vísindi.
Aðalatriðið er að hún er hagkvæm
iðja sem eykur skilning okkar á
mannlífinu, heldur til haga fróð-
leik og þekkingu, tengir okkur sög-
unni, þjóðinni og menningunni og
gefur okkur lífsfyllingu. Það er
mér nóg.
------------------\
Móttaka í Höfða
Mánudaginn 27. febrúar
býður borgarstjórinn í Reykjavík,
frú Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
félagsmönnum Ættfræðifélagsins
til móttöku í Höfða,
kl. 17:00 - 19:00 (kl 5-7).
Við hvetjum alla félagsmenn
til þess að taka þessu höfðinglega boði
borgarstjórans
og mæta í Höfða,
þessa sögufrægu og fallegu byggingu
og njóta veitinga og gestrisni.
Varstu búin(n) að lesa greinina
um sögu Höfða hér á undan?
J
16