Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1995, Page 23
Guðjón Óskar Jónsson:
Jón Jónsson bryti
Eftirmáli
í þætti um J.J. í 1. tbl. 13. árg.
Fréttabréfsins eru nokkrir hnökrar.
BúskaparárJónsaðGelti hefði
mátt ákvarða nákvæmar. Kaup-
málabréf Jóns og Þórunnar Skafta-
dóttur er frá okt. 1759. Þau hafa
gifzt það ár eða hið næsta. Jón er
enn að Gelti í maí 1765. Hann
hefur flutt að Hömrum 1765 eða
1766, sem verður að teljast lík-
legra.
Niðurstaða: Jón bryti bjó að
Gelti 1760-1766.
Jón bjó í Háholti til fardaga
1800, en ekki 1798. Þeir Gottsvin
hafa því verið sambýlismenn í 5
ár.
EiríkurGuðmundsson, dóttur-
sonur Jóns bryta, bjó fyrst í Odd-
geirshólum svo Litlu-Reykjum.
Guðm. Einarsson, faðirEiríks, bjó
aldrei áþessumjörðum, enáttiþar
heima uppgjafabóndi, eins og það
hét á máli nítjándu aldar. G.E. var
f. 1766 Jaðri Hrunamannahreppi
d. 4. júlí 1846 Litlu-Reykjum.
Skiptagerð eftir Þórunni
Skaftadóttur hefði átt að fylgja
með.
Þar segir:
"Árið 1765 þann 25. maí var
skipt dánarbúi Þórunnar sál.
Skaftadóttur á Gelti í Grímsnesi.
Erfingjar:
Ekkillinn Jón Jónsson, sem erf-
ir helming samkvœmt kaup-
málabréfi dags. 5. okt. 1759, og
stjúpdóttir Jóns, en dóttir Þór-
unnar:
Þórdís Þórðardóttir 11 vetra,
sem erfir helminginn.
Föðurarf barnsins skikkast til
að varðveita Olafur Jónsson á
Miðhúsum, sem hefur til ekta-
kvinnu erfingja barnsins, sem er
hálfsystir, og Sigurður Asbjörns-
son, föðursystursonur barnsins
Þórdísar."
Olafur Jónsson, sem varkvænt-
ur hálfsystur Þórdísar (samfeðra),
bjó að Miðhúsum Biskupstungum
til 1773 eða lengur.
Sigurður Ásbjörnsson var
sonur Á. Sigurðssonar, sem bjó
Neðra-Apavatni 1729 en síðar
Brjánsstöðum. Fyrri konaÁ.S. og
móðir Sigurðar, var Ambjörg f.
1687 d. 1744 Ásgrímsdóttir.
Sig. Ásbjörnsson var f. 1716.
Hann bjó fyrst að Neðra-Apavatni,
en síðar Útey - 1755 - 1773 eða
lengur.
Þórdís Þórðardóttir tengir
saman skiptagerð eftir móður
hennar og sóknarmanntal að
Hömrum 1767. Því er hægt að
sanna, hver var 1. kona Jóns bryta.
Þórdís er farin frá stjúpföður
sínum 1768. Líklegt máþykja, að
hún sé þá komin til frændfólks
síns í föðurætt, en það er ekki
auð velt að rekj a. Þórdís finnst ekki
íMt. 1801.
Stjúpdóttur Jóns bryta, Þóm
Erlingsdóttur, hefði átt að gera
sömu skil og bömum Jóns, sem
upp komust. Skal nú bætt úr því.
Þóra var f. 1775 d. 1861, eins
og áður er ritað.
Brynjólfur Jónsson, maður
Þóm, var f. 1757 Voðmúlastöð-
um Landeyjum d. 8. júní 1830
Minna-Núpi.
B.J. var í beinan karllegg af
Þorláki f. 1597 d. 1656, biskupi á
Hólum, Skúlasyni.
Böm Brynjólfs og Þóm:
Þómnn, kona Jóns Þórðarson-
ar bónda Lölukoti Stokkseyrar-
hreppi.
Jón eldri, bóndi Minna-Núpi,
kvæntur Margréti Jónsdóttur,
hreppstjóra Baugsstöðum Stokks-
eyrarhreppi, Einarssonar.
Gísli, bóndi Varmahlíð undir
Eyjafjöllum o.v., kvæntur Þor-
björgu Bjarnadóttur, bónda
Brekku Biskupstungum, Þor-
steinssonar.
Halldór dmkknaði 35 ára ókv.
bl.
Jón yngri, bóndi Ölvesholti
Hraungerðishreppi, kvæntur
Margréti Sveinsdóttur, bónda
Súluholti Villingaholtshreppi,
Einarssonar.
Þetta lesa þeir...
Strætó!
Fyrir þá sem koma með strætisvagni á hátíðar-
fundinn í Gerðubergi er mátulegt að taka leið 112
úr miðbænum kl. 13:05 eða leið 12 frá Hlemmi
kl. 13:05. Báðir þessir vagnar em komnir að
Gerðubergi kl. hálf tvö.
sem ætla á hátíðarfundinn í Gerðubergi
Rúta!
Fyrir þá sem þess óska fer rúta frá Gerðu-
bergi, að hátíðarfundinum loknum, niður að nýja
húsnæðinu að Dvergshöfða. Þar bíður hún meðan
gestimir skoða húsakynnin og skilar þeim svo
niður á Hlemm þeim að kostnaðarlausu.
23