Fréttatíminn - 09.03.2012, Blaðsíða 41
Y T u a y N w f n l Wm C x U b Q
g b e k r V p o B 9 E Y e N > q Q
Borg fyrir fólk
Betri hverfi
1 Vesturbær þriðjudagur 13. mars/kl. 17–18.30 Hagaskóli
2 Laugardalur miðvikudagur 14. mars/kl. 17–18.30 Laugardalslaug
3 Hlíðar fimmtudagur 15. mars/kl. 17–18.30 Háteigsskóli
4 Háaleiti mánudagur 19. mars/kl. 17–18.30 Réttarholtsskóli
5 Breiðholt miðvikudagur 21. mars/kl. 17–18.30 Gerðuberg
6 Grafarvogur fimmtudagur 22. mars/kl. 17–18.30 Hlaðan, Gufunesbæ
7 Kjalarnes mánudagur 26. mars/kl. 17–18.30 Fólkvangur, Grundarhverfi
8 Grafarholt-Úlfarsárdalur þriðjudagur 27. mars/kl. 17–18.30 Dalskóli
9 Árbær miðvikudaginn 28. mars/kl. 17–18.30 Fylkishöllin
10 Miðborg fimmtudagur 26. apríl/kl. 17–18.30 Ráðhús Reykjavíkur
Opið hús um framtíðarskipulag
í hverfinu þínu
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010–2030
adalskipulag.is
reykjavik.is
Dagskrá
• Markmið og leiðarljós nýs aðalskipulags
• Hugmyndir um þróun og uppbyggingu hverfisins
• Vinnuhópar: hugmyndir rýndar
• Barnasmiðja
Fundaröð um nýtt
aðalskipulag
1
10
3
2
4
5
6
9
8
7
Fært til bókar
Jónas velur forseta
Oft er vitnað til kjörorðs Ásgeirs Ás-
geirssonar; „Fólkið velur forseta“, í
forsetakosningunum árið 1952. Ás-
geir atti þá kappi við Bjarna Jónsson
dómkirkjuprest, sem naut stuðnings
tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna,
Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins, og hafði betur. Stjórnmála-
flokkar eru löngu hættir að styðja
forsetaframbjóðendur, að minnsta
kosti opinberlega. Aðrir hafa tekið við
keflinu og nú má segja að fremstur
fari Jónas Kristjánsson ritstjóri en í
pistlum hans að undanförnu hefur
hann mjög hvatt til þess að finna
sterkan frambjóðanda gegn Ólafi
Ragnari Grímssyni, sem tilkynnti um
síðustu helgi að hann gæfi kost á sér
til Bessastaðasetu fimmta kjörtíma-
bilið í röð. Jónas lítur svo á að Ólafur
Ragnar sé orðinn að stjórnmálaflokki
sem hyggist hafa gætur
á pólitíkusum næstu
árin. Jafnvel Ástþór er
skárri, segir Jónas,
hann hefur þó hug-
sjón. Hann hvatti síð-
an til þess að ábyrgt
fólk tæki sig saman í
andlitinu svo finna mætti
farsælt mótframboð og bætti
því við að frambjóðandinn þyrfti að
finnast í grasrótinni. Ekki lasta sjón-
varpsfrægðina, sagði Jónas í öðrum
pistli og benti á að öll hefðu þau
Kristján Eldjárn, Vigdís Finnbogadóttir
og Ólafur Ragnar Grímsson verið fræg
úr sjónvarpi. Í næsta pistli taldi Jónas
þau í atkvæðaröð sem flestar tilnefn-
ingar hefðu fengið í framboð á fésbók
þeirra sem skipta vilja um forseta.
Það voru eftirtalin: Þóra Arnórsdóttir,
Stefán Jón Hafstein, Ragna Árnadóttir,
Páll Skúlason, Salvör Nordal, Andri
Snær Magnason, Vilhjálmur Árnason,
Herdís Þorgeirsdóttir, Gerður Kristný
og Elín Hirst. Ragna tilkynnti síðar að
hún gæfi framboðshugmyndina frá
sér. Þegar lengra leið á vikuna kom
fram hjá Jónasi að Þóra hefði alveg
stungið Stefán Jón af í fésbókarkosn-
ingunni, „enda er Stefán Jón of tengd-
ur pólitík og á að fara létt með að
verða formaður Samfylkingarinnar,“
eins og Jónas sagði og ítrekaði enn
þá brýnu nauðsyn að samkomulag
næðist um aðeins einn frambjóðanda
gegn sitjandi forseta, annars sigraði
Ólafur Ragnar á dreifingu atkvæða,
eða eins og Jónas orðar það með
sínum hætti: „Annars losnum við ekki
við gamla kallinn af Bessastöðum. En
Þóra,“ bætir hann við, „verður senn að
svara okkur.“