Búskapur hins opinbera 1997-1998 - 01.03.1999, Page 32
8.1 Velferðartilfærslur hins opinbera
Eins og fram hefur komið renna velferðartilfærslur hins opinbera til aldraðra og
öryrkja, íjölskyldna og bama, atvinnulausra, slasaðra og sjúkra.
A árinu 1997 námu tekjutilfærslur þessar 33,8 milljörðum króna sem svarar til 6/2
prósents af landsframleiðslu, en það em ríflega 17% útgjalda hins opinbera (sjá mynd
8.4). Greiðslur þessar eru bundnar ákveðnum skilyrðum sem bótaþeginn verður að
uppfylla. í eftirfarandi lýsingu verður fjallað um ýmis skilyrði og fjárhæðir tekju-
tilfærslna hins opinbera.
8.1.1 Aldraðir og öryrkjar
Flest velferðarríki byggja upp eftirlaunakerfí sem tryggja þeim sem lokið hafa
starfsævi sinni og þeim sem hlotið hafa varanlega örorku viðunandi efnahagslega
afkomu. Hér á landi má segja að til sé fjórþætt eftirlaunakerfi. í fyrsta lagi hið opin-
bera lífeyristryggingakerfi sem rekið er af Tryggingastofnun, þ.e. hinu opinbera. í
öðru lagi hið skyldubundna lífeyrissjóðakerfi landsmanna þar sem iðgjöld eru ákveðin
í kjarasamningum eða sambærilegum samningum. í þriðja lagi hið frjálsa lifeyris-
sjóðakerfi og að síðustu sérstakir eftirlaunasamningar.
Eftirlaunakerfið.
Lífeyrisgrhiðslur
ALMANNATRYGGINGA
SKYLDUBUNDIÐ
LÍFEYRISSJÓÐAKERFI
Frjálst
LÍFEYRISSJÓÐAKERFI
SÉRSTAKIR
EFTIRLAUNASAMNINGAI
Á árinu 1997 voru heildargreiðslur eftirlaunakerfisins hér á landi í kringum 30
milljarðar króna eða sem svarar til 5,7% af landsframleiðslu. Þar af voru greiðslur
almannatrygginga 1714 milljarður króna og hins skyldubundna lífeyrissjóðakerfis 12'/2
milljarður króna. Lífeyrisgreiðslur úr hinu frjálsa lífeyrissjóðakerfi og vegna sér-
stakra eftirlaunasamninga voru aftur á móti mun lægri eða á bilinu 200 til 300
milljónir króna á þessu ári. Eftirlaunakerfið er i mikilli uppbyggingu og á næstu
áratugum mun vægi bæði skyldubundinna og frjálsra lífeyrissjóða aukast verulega.
Að auki mun fjöldi eftirlaunaþega vaxa umtalsvert á umræddu tímabili eins og fram
kemur á meðfylgjandi mynd. Þar má ráða að á árinu 1998 voru rúmlega 1114%
landsmanna 65 ára og eldri en eftir þrjá áratugi verður hlutur þeirra í kringum 1714%
samkvæmt mannQöldaspám.
30