Morgunblaðið - 04.12.2012, Page 27

Morgunblaðið - 04.12.2012, Page 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 Golda Meir hóf feril sinn sem verka- lýðsforingi og lauk starfsferli sínum sem forsætisráðherra Ísraels. Hún tók á móti gyðingum sem neyddust til að flýja frá öðrum löndum þar sem stolið var öllu af þeim. Frá araba- löndunum flýðu um sex hundruð þúsund gyðingar og fjöldinn allur frá Rússlandi og þeim heimshluta. Ísrael- ar tóku þessu fólki fagnandi og nú dvelur það í heimalandi sínu sem eldri borgarar við allt það ör- yggi sem hægt er að búast við þegar horft er til aðstæðna. Stjórnvöld elska sitt fólk og hlúa að því eftir getu. Á Íslandi kenna stjórnvöld sig við velferð, en hvernig velferð? Erlent fólk var flutt til landsins, það lá svo mikið á að sumt af því kom á fölsuðum skilríkjum. „Þetta fólk er komið til að hjálpa okkur,“ sögðu stjórnvöld. Reyndin var sú að fólkið kom sem vinnukraftur til að þjóna atvinnu- braski sem ekki vildi greiða starfsfólki lífvænleg laun fyrir störf sín. Við er- lenda fólkið er ekki að sakast, það kom til landsins til að bjarga sér, en afleið- ingarnar eru sláandi. Launakjör verkafólks sett í uppnám, velferð- arkerfið sett í uppnám, öryrkjar og aldraðir hröktust af vinnumarkaðnum, og svona mætti lengi telja. Nú er stað- an sú að íbúðir sem byggðar/keyptar voru af Reykjavíkurborg til hjálpar m.a. efnalitlum eldri borgurum eru uppteknar af þessu fólki og gamla fólkið verður að leigja húsnæði á al- mennum markaði og borga svo háa leigu að ekkert er eftir til að kaupa mat og lyf. Ef eldri borgari minnist á þessa furðulegu forgangsröð við þá sem útdeila höfuðborgarréttlætinu og segja kannske: „Ég er barnfædd- ur Reykvíkingur og hef greitt skatta alla mína tíð til borgarinnar, hvers vegna eru útlendingarnir teknir fram yfir mig?“ þá er gjarnan svarið: „Finnst þér ekki yndislegt að geta hjálpað þessu fólki?“ Svar íslenska gamalmennisins við þessu „metnaðarfulla“ svari réttlæt- isvarðanna er þá að staulast til Hjálp- arstofnunar kirkjunnar og biðja um pening fyrir mat og lyfjum. Þurfi gamalmennið á sjúkrahúsvist að halda og leggist inn á LSH er hugsað vel um það af yndislegu hjúkr- unarfólki þá klukkutíma sem það fær að vera þar inni en svo koma útskrift- arsérfræðingarnir og segja „Við verðum að geta útskrifað þetta fólk.“ Svo er það flutt heim í sjúkrabíl og borið á börum upp á 4. hæð, með tvo súrefniskúta og er komið aftur inn á sjúkrahúsið eftir 1-3 daga, en þarf sjálft að greiða sjúkraflutninginn fram og til baka. Það er dýrt að vera gamall, heilsulaus og blankur Íslend- ingur. Drottinn Jesús blessi örvænting- arfulla og gamla kerfisleitendur og veiti þeim hjálp. Ef Íslendingar þyrftu að halda uppi fjölmennum her eins og Ísraelsmenn til að verja vel- ferð og sjálfstæði hefðu sumir ís- lenskir ráðherrar annað þarfara að gera en að mótmæla með Hamas- samtökunum fyrir utan bandaríska sendiráðið og senda Ísraelum tóninn. Þeir ættu, ásamt borgarstjórn Reykjavíkur, að líta sér nær og taka Ísraela sér til fyrirmyndar í mann- úðarmálum sinna eigin þegna og sýna þeim heiður sem heiður ber. Ég bið Íslendingum Guðs friðar. ÁRSÆLL ÞÓRÐARSON, trésmiður. Metnaðarfull velferð Frá Ársæli Þórðarsyni Ársæll Þórðarson www.flora.is info@flora.is Réttarhálsi 2 110 Rvk Sími: 535-8500 Eingöngu sala til fyrirtækja Orkuhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / S. 517 3900 / www.flexor.is Opið alla virka daga 9–17.30 Panama Jack eru komnir í Flexor Vandaðir skór frá Spáni • 100% vatnshelt leður • Sérvalið spænskt leður • Leður og mýkt í fóðringu • Gummísóli • 100% þægindi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.