Málfríður - 01.10.2013, Blaðsíða 2
Um Málfríði
Málfríður, tímarit Samtaka tungumálakennara, er
sameiginlegt blað allra tungumálakennara á Íslandi.
Það hefur það hlutverk að miðla fróðleik um starf
tungumálakennara á öllum skólastigum og hvetja
til umræðu um tungumálakennslu í skólum lands-
ins. Framar öllu fjalla greinar í blaðinu um það sem
kennarar eru að gera í starfi sínu, um kennsluað-
ferðir og hugmyndir og auk þess eru viðtöl við
kennara.
Allir félagsmenn í aðildarfélögum STÍL fá Málfríði
í áskrift. Blaðið er sent á það heimilisfang sem skráð
er hjá aðildarfélaginu.
Áskrifendur geta tilkynnt um breytt póstfang með
því að senda tölvupóst til Kennarasambands Íslands,
Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, fjola@ki.is.
Í ritstjórn Málfríðar sitja hverju sinni fulltrúar
fjögurra aðildafélaga STÍL auk fulltrúa stjórnar. Vilji
menn birta grein í blaðinu, eru þeir beðnir um að
senda hana í tölvupósti til einhvers fulltrúa í rit-
stjórn.
• Meginreglan er sú að greinar séu ein opna eða
um 1.000 orð. Hverri grein fylgir mynd af höf-
undi, minnst 500 x 800 pt.
• Ákjósanlegt er að hafa millifyrirsagnir og inn-
gangsklausu.
• Allar greinar skulu vera á íslensku.
• Ritstjórn reynir af fremsta megni að hafa
ákveðin þemu í hverju blaði en þau fylla ekki
endilega upp allt blaðið.
• Allar greinar í Málfríði birtast líka rafrænt.
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Námskeið í gerð umsóknal Leik-, grunn-, og framhaldsskólar l Starfsmenntun
l Háskólar l Fullorðinsfræðsla