Málfríður - 01.10.2013, Side 3
Efnisyfirlit
Ritstjórnarpistill . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
Auður Torfadóttir hlýtur
alþjóðlega viðurkenningu FIPLV . . . . . . . . . . . . . . . . . 5
Raunfærnimat, nú líka í tungumálum
Haukur Harðarson . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6
Tungumálapróf og Evrópumappan
Jana Bérešová og Gilles Breton . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8
Staðlað próf í frönsku skv. Evrópumöppu
– Reynslusaga frönskukennara
Margrét Helga Hjartardóttir og Vera Ósk Valgarðsdóttir . . . 10
Sjálfsmat í fjarnámi í sænsku og norsku
Gry Ek Gunnarsson og Erika Frodell . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Nýjar námskrár í grunnskóla og framhaldsskóla
Umræður dönsku- og enskukennara um nýjar námskrár
og mörkin milli skólastiga
Pétur Rasmussen . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
Heimsþing þýskukennara í Bozen
Áslaug Harðardóttir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
What is your favourite …?
Kveikjur í tungumálakennslu
Lilja Margrét Möller . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
Að fá til baka það sem þú setur út
„Ég lofa, Agnes, þetta verður auðveldara á næstu önn“
Agnes Valdimarsdóttir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22
Ritstjórn Málfríðar
Í ritstjórn Málfríðar eiga sæti fjórir fulltrúar aðildarfélaga
auk fulltrúa stjórnar. Árið 2013–14 er þetta:
Ásmundur Guðmundsson
frá Félagi þýskukennara
asmgud@gmail.com
Eva Leplat Sigurðsson
Borgarholtsskóla
frá Félagi frönskukennara
eva@bhs.is
Guðný Ester Aðalsteinsdóttir
Árbæjarskóla
frá Félagi enskukennara
gudnyester@gmail.com
Pétur Rasmussen
Menntaskólanum við Sund
frá Félagi dönskukennara
prasm@internet.is
Svanlaug Pálsdóttir
Verzlunarskóla Íslands
Frá stjórn og Félagi spænskukennara
svanlaug@verslo.is
Þeir sem vilja birta grein í Málfríði eru beðnir að hafa
samband við einn fulltrúanna í ritstjórn.
Þema Málfríðar er að þessu sinni matsaðferðir. Vorið 2013
bað Fræðslumiðstöð atvinnulífsins STÍL um að tilnefna
fulltrúa í nefnd til að taka fyrstu skrefin að svoköll-
uðu raunfærnimati í bóknámsgreinum. Nokkur skref
voru stigin og í framhaldinu eiga nefndir um ensku og
dönsku að vinna að nánari útfærslu. Hér er verið að nálg-
ast stöðumat í tungumálum öðruvísi en verið hefur og
getur úr þessu komið betri aðferð. Önnur nálgun kemur
líka frá Evrópu, RELANG-verkefnið, sem miðar að því
að tengja tungumálapróf, m.a. hér á landi, við tungu-
málarammann sem flestir þekkja frá Evrópumöppunni.
Tvær greinar fjalla um þetta, önnur um námskeiðið sem
var haldið í ágúst 2013 en hin um vinnu frönskukennara
í framhaldinu. Svipuð vinna er í gangi hjá öðrum tungu-
málakennurum. Má vera að vinnan á þessum tveim vett-
vöngum geti auðgast við að menn sjá tengsl milli þeirra.
Því næst er grein um sjálfsmat nemenda, og loks er
umræða um nýtt mat í dönsku og ensku og ný mörk milli
grunnskóla og framhaldsskóla.
Að lokum eru þrjár greinar utan þema, um heimsþing
þýskukennara, um kveikjur í tungumálakennslu, og um
að vera nýr tungumálakennari í framhaldsskóla.
En fremst í blaðinu er verið að heiðra ötulan talsmann
STÍL og tungumálakennslu á Íslandi, Auði Torfadóttur.
Ritstjórnin er hreykin af að fá þetta tækifæri enda hefur
Auður verið stoð Málfríðar frá fyrsta degi hennar.
* * *
Málfríður þrífst aðeins ef tungumálakennarar landsins
halda því lifandi. Við í ritstjórn hvetjum eindregið ykkur
lesendur til að senda okkur greinar um það sem þið eruð
að gera. Í næsta blaði verður þemað Munnleg færni. Nýjar
námskrár leggja aukna áherslu á þennan þátt. Gott er að
heyra um góðar hugmyndir og aðferðir sem virka. Látið
heyra í ykkur!
Málfríður
Tímarit Samtaka tungumálakennara
2. tbl. 29. árgangur – Haust 2013 / Vor 2014
Forsíðumynd:
Formaður STÍL, Brynhildur A. Ragnarsdóttir,
afhendir Auði Torfadóttur heiðursskjal til
staðfestingar á því að hún er heiðursfélagi í
Alþjóðasamtökum tungumálakennara, FIPLV.
Útgefandi:
Samtök tungumálakennara á Íslandi, STÍL
Ábyrgðarmaður:
Brynhildur Anna Ragnarsdóttir
Prófarkalestur:
Ásmundur Guðmundsson
Umsjón með netútgáfu:
Guðbjartur Kristófersson
Málfríður á Netinu:
http://malfridur.ismennt.is
Prentun:
Oddi umhverfisvottuð prentsmiðja 141 776
UM
HV
ERFISMERKI
PRENTGRIPUR
Póstfang:
STÍL v/tímaritið Málfríður,
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík
Ritstjórnarpistill