Málfríður - 01.10.2013, Page 11
Allir hóparnir skoðuðu vel lokamarkmið síns
færniþáttar og einnig dæmi um svokölluð DELF próf
(Diplôme d’études en langue française) sem aðgengileg
eru á netinu. Út frá þessu sömdu hóparnir drög að
sínum prófhluta. Í lok dags komu hóparnir saman og
skoðuðu afraksturinn. Þar spannst gagnleg og gagn-
rýnin umræða um prófið og prófsamningu almennt.
Eftir þessa vinnustofu fínpússaði hver hópur sinn
hluta. Taka þarf upp hlustunarþáttinn og samræma fram-
setningu prófsins. Þetta er allt komið vel á veg, og er
skemmst frá því að segja að frönskuprófið er um það bil
að taka flugið til Graz til vottunar og frönskukennarar
bíða spenntir eftir viðbrögðum sérfræðinganna.
Það skal viðurkennt að áður en hafist var handa óaði
mörg okkar við því að hægt væri að semja próf þannig
að öllum líkaði í stórum hópi. Auðvelt var að sjá fyrir
sér hverja höndina upp á móti annarri því að við kenn-
arar höfum mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig náms-
mat á að fara fram. Þegar upp var staðið voru allir mjög
ánægðir með þennan vinnudag sem stóð frá kl. 10 til 17.
Vinnan gekk snurðulaust fyrir sig og kom það ánægjulega
á óvart hve hóparnir voru samtaka um að ljúka verkinu
og hafa af því bæði gagn og gaman. Í raun var það þessi
hópavinna sem var lærdómsríkasti hluti alls ferlisins.
hafa gert málfræðihlutanum hátt undir höfði meðan enn
önnur hafa sleppt honum alveg, svo dæmi séu nefnd.
Aðalatriðið er að námsmat taki mið af lokamarkmiðum
hverju sinni.
Frönskukennarar ákváðu að ráðast strax í verk-
efnið og semja próf sem tæki mið af A2 þar sem
nemendur eru flestir á því stigi þegar þeir ljúka 3.
máli í framhaldsskóla. Verkefnið var kynnt á fundi í
Félagi frönskukennara og óskað eftir áhugasömum
til að semja prófið. Einnig var ákveðið, eftir töluverða
umræðu, að semja próf í færniþáttunum fjórum þar
sem hver þáttur gilti 25% og sleppa alfarið sérstökum
málfræðihluta. Sömuleiðis varð niðurstaðan sú að hafa
allt á markmálinu, þ.e. frönsku, enda var eindregið
mælt með því á umræddu námskeiði.
Laugardag einn í september hittust 16 frönskukenn-
arar af framhalds- og háskólastigi í Verzlunarskóla
Íslands og réðust í verkið. Þátttakendum var skipt í
fjóra hópa sem hver tók að sér einn færniþátt. Fyrst
lögðu þeir kennarar sem tóku þátt í námskeiði STÍL
línurnar varðandi prófsamninguna með vísan í það
sem þar kom fram. Einnig var rætt um helstu efnistök
og hvaða þemu kæmu til greina svo að vinna hópanna
skaraðist ekki of mikið.
MÁLFRÍÐUR 11
etwinning.is
eTwinning.is
• einfalt skólasamstarf gegnum netið
• góð leið til að virkja nemendur og auka
vægi upplýsingatækni
• aðgangur að rafrænum verkfærum
• netöryggi
• endurmenntun kennara
• kostar ekkert
RAFRÆNT
SKÓLASAMFÉLAG
Í EVRÓPU