Málfríður - 01.10.2013, Side 19
ákveðið að höfuðstöðvar félagsins verði framvegis í
Sviss en flytji ekki milli landa með formanninum eins
og verið hefur. Einnig var kynnt vefráðstefna fyrir
þýskukennara, sjá www.dafwebkon.com.
Veðrið var mjög fallegt á meðan heimsþinginu stóð,
sól og blíða. Hitinn var þó stundum næstum óbæri-
legur fyrir okkur Íslendinga að minnsta kosti, hann
fór mest upp í 38°C. Þegar svo var komst fólk kannski
ekki yfir eins mikið og það hefði viljað. Þá var um að
gera að setjast einhvers staðar niður, fá sér drykk og
njóta fallegs umhverfis í Bozen og samvista við góða
ferðafélaga. Eitt kvöldið hittust allir Íslendingarnir og
fóru saman út að borða. Það var sérstaklega ánægu-
legt kvöld.
Næsta heimsþing verður í Fribourg/Freiburg í
Sviss dagana 31. júlí til 5. ágúst 2017. Fyrst ætluðu
Svisslendingar að takmarka þátttökufjölda við 1.200
manns því borgin geti ekki tekið við fleiri gestum. Þeir
hafa verið hvattir til að finna einhver ráð til að hækka
þá tölu. Þegar hefur verið hafist handa við heimasíðu
þessa heimsþings, sjá www.idt-2017.ch. Þar má meðal
annars sjá fallegar myndir frá Freiburg.
Að lokum vil ég þakka ferðafélögum mínum kær-
lega fyrir sérlega ánægjulega samveru. Það er hverj-
um tungumálakennara nauðsynlegt að hitta kollega
sína, skiptast á reynslusögum og efla tengslin sín á
milli. Heimsþing þýskukennara er góður vettvangur
til þess og þar fær maður jafnframt beint í æð allt það
sem snýr að þýskukennslu og er efst á baugi hverju
sinni.
Nánari upplýsingar er að finna á vef heimsþingsins
www.idt-2013.it og Alþjóðasamtaka þýskukennara
www.idvnetz.org.
Áslaug Harðardóttir og Ingi S . Ingason á fagfélagakynningu .
MÁLFRÍÐUR 19
An interactive six-level starter English language
series for primary school children with an online
world that takes them on an exciting journey to
imaginary islands. Your children can uncover
clues and solve mysteries as they learn English!
Sign up to Primary Place our exclusive club for Primary
School teachers today and receive free resources
for your classroom including Our Discovery Island
www.pearsonelt.com/primaryplace
POWERED BY
Where learning is an adventure!