Fréttablaðið - 21.07.2015, Page 8
21. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
loKsins aftuR sumAr...íS
ÍSinn Sem færiR þéR sumaRið er kOminn aftur. ekTa rjóMaís
Með kókOs, áStaraLdini, mangó og súKkulaðIdropUm.
SVONA ERUM VIÐ
12,7 ár er meðalaldur bílaflota Íslands
árið 2015.
Tíu árum fyrr var meðalaldurinn tíu
ár. Flotinn hefur aldrei verið eldri.
VIÐSKIPTI Mjólkurbúið Kú mótmæl-
ir harðlega ákvörðun verðlags-
nefndar búvara en nefndin hækk-
aði verð á ógerilsneyddri mjólk
t i l úrvinnslu
um fjögur pró-
sent á sama
tíma og hækk-
un á afurða-
verði til bænda
er aðeins um
1,47 krónur eða
1,77 prósent. Kú
telur að smærri
úrvinnsluaðilar
þurfi því að greiða 17,44 prósenta
samkeppnisskatt til MS ofan á
mjólkurverð. Þetta kemur fram í
tilkynningu sem Ólafur Magnús-
son, framkvæmdastjóri Kú, sendi
fjölmiðlum.
Aðstandendur fyrirtækis-
ins hafa ákveðið að kæra þessa
ákvörðun verðlagsnefndar til Sam-
keppniseftirlitsins, þar sem þeir
telja hana ganga freklega gegn
samkeppni á markaði. Hagsmunir
neytenda eru með öllu bornir fyrir
róða með þessari ákvörðun, ekki
síst þar sem mjólkurframleiðsla
á Íslandi býr jafnframt við mikla
tollvernd.
Kú telur hækkun þessari stefnt
gegn samkeppni og segja hana
valda smærri fyrirtækjum tjóni.
Ákvörðun er með öllu óskiljan-
leg þar sem mjólkurverð hækkar
aðeins um 1,47 krónur eða 1,77%
til bænda og engin hækkun hefur
orðið á flutningskostnaði sem er
eftir sem áður 3,5 krónur á hvern
lítra. - joe, jhh
Kú telur hækkun á mjólk hamla samkeppni:
Mótmælir hækkun á
ógerilsneyddri mjólk
MJÓLKUR-
VÖRUR
Ákveðið hefur
verið að kæra
ákvörðun verð-
lagsnefndar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓLAFUR
MAGNÚSSON
ALÞINGI Nefnd um endurskoðun
stjórnarskrárinnar stefnir að
því að leggja fram frumvarp um
breytingar á stjórnarskrá fyrir
Alþingi næsta haust.
Vonir standa til að frumvarp-
ið verði afgreitt fyrir áramót svo
hægt verði að kjósa um breyting-
arákvæðin samhliða forsetakosn-
ingum á næsta ári.
Páll Þorsteinsson, formaður
nefndarinnar, segir að breyt-
ingarákvæðin snúi að sameign
þjóðarinnar á náttúruauðlindum,
þjóðaratkvæðagreiðslu og með
hvaða skilyrðum megi framselja
ríkisvald og umhverfisvernd.
Nefndin er skipuð fulltrú-
um allra flokka sem eiga sæti
á Alþingi. Birgir Ármannsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins og einn nefndarmanna, segir
nefndarmenn ekki fyllilega sam-
mála um öll efnisatriði. „Það
eru uppi álitamál um orðalag og
útfærslu varðandi öll þessi fjögur
atriði en ég myndi segja að það
bil ætti að vera brúanlegt,“ segir
Birgir.
Samkvæmt bráðabirgðaákvæð-
um sem samþykkt voru undir lok
kjörtímabilsins árið 2013 er hægt
að breyta stjórnarskrá út apríl
2017 með samþykki 60 prósenta
greiddra atkvæða á Alþingi og í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Nefnd-
in muni starfa áfram að frekari
breytingum á stjórnarskránni
þegar vinnu við forgangsatriðin
lýkur.
Bolli Héðinsson, hagfræðing-
ur og einn þeirra sem stóðu að
undir skriftasöfnuninni Þjóðar-
eign, segir að vilji þjóðarinnar
sé skýr. „Það liggur fyrir fullbúið
frumvarp frá stjórnlagaráði. Það
er búið að greiða atkvæði í þjóð-
aratkvæðagreiðslu um öll megin-
atriði sem þar voru til umfjöllun-
ar,“ segir Bolli.
Aðstandendur Þjóðareignar
afhentu Ólafi Ragnari Gríms-
syni, forseta Íslands, 53.571
undirskrift í gær. Með undir-
skriftasöfnuninni var skorað á
forsetann að vísa öllum lögum til
þjóðaratkvæðagreiðslu sem ráð-
stafa myndu fiskveiðiauðlindum
lengur en til eins árs á meðan
ekkert ákvæði um þjóðareign á
auðlindum sé í stjórnarskrá.
„Hann liggur fyrir, þjóðar-
viljinn í þessu máli, en þá er það
bara ríkisstjórnarinnar eða þing-
meirihlutans að ákveða hvort
þeir vilji fara að þessum óskum
þjóðarinnar,“ segir Bolli og seg-
ist vonast til að undirskriftar-
söfnunin hvetji stjórnarskrár-
nefnd til dáða.
Ólafur Ragnar sagði að hann
vildi að ákvæði um auðlindir í
þjóðareign yrði fest í stjórnar-
skránni og ítrekaði fyrri yfir-
lýsingar sínar frá því 2013 um
að stjórnvöld yrðu að hlusta á
þjóðina sem vilji réttlátar arð-
greiðslur frá sjávarútvegi.
Ólafur Ragnar Grímsson er
eini forsetinn sem hefur gefið
þjóðinni kost á að greiða atkvæði
um lagafrumvörp frá Alþingi á
grundvelli 26. greinar stjórnar-
skrárinnar. Það hefur hann gert
þrisvar á ferli sínum. Í fyrsta
skipti var um að ræða fjölmiðla-
lög. Í hin tvö skiptin var um að
ræða lög vegna Icesave-reikning-
anna. ingvar@frettabladid.is
Stefnt á að breytingarákvæði
fari fyrir Alþingi í haust
Stjórnarskrárnefnd stefnir að því að leggja fram frumvarp um breytingar á stjórnarskránni í haust svo hægt
verði að kjósa um breytingarnar samhliða forsetakosningum. Hagfræðingur segir þjóðarviljann skýran.
AFHENDING UNDIRSKRIFTA Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tekur við undirskriftum frá Bolla Héðinssyni hagfræðingi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það liggur fyrir
fullbúið frumvarp frá
stjórnlagaráði. Það er búið
að greiða atkvæði í þjóðar-
atkvæðagreiðslu um öll
meiginatriði sam þar voru
til umfjöllunar.
Bolli Héðinsson, hagfræðingur
SAMFÉLAG Strætóbílstjóri er sak-
aður um að hafa neitað að hleypa
fjögurra manna fjölskyldu út úr
strætisvagninum á föstudaginn.
Hann mun hafa deilt við fjölskyld-
una um það hvort fjölskyldan hefði
sýnt fram á að hún hefði greitt
fyrir farið með strætóappinu.
„Þetta er ekki eitthvað sem við
tökum léttvægt á,“ segir Ástríð-
ur Þórðardóttir, fjármálastjóri
Strætó bs., í samtali við frétta-
vefinn Vísi um málið. Hún segir
fulltrúa frá Strætó hafa rætt við
fjölskylduna og að vitað sé hver
umræddur bílstjóri er. Hann verði
boðaður á fund vegna málsins.
Samkvæmt frásögn mun fjöl-
skyldan hafa komist út úr stræt-
isvagninum þegar annar farþegi í
vagninum krafðist þess að honum
yrði hleypt út. Sætti fjölskyldan þá
lagi og fór út úr vagninum.
- bo
Í hremmingum í strætó:
Neitaði að
hleypa fólki út
STRÆTÓ Strætó bs. hefur rætt við fjöl-
skylduna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
3
-4
6
4
C
1
7
5
3
-4
5
1
0
1
7
5
3
-4
3
D
4
1
7
5
3
-4
2
9
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K