Fréttablaðið - 21.07.2015, Qupperneq 14
21. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR:
Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Miðborgin iðar af mannlífi sem aldrei
fyrr. Ferðamenn frá öllum þjóðum í ólíkum
afbrigðum af flíspeysum glæða borgina lit
og fyrir tilstilli þeirra er fjölbreytni borg-
arlífsins meiri. Aldrei hafa fleiri veitinga-
staðir og öldurhús né menningartengdir
viðburðir verið í Reykjavík. Öll njótum við
góðs af því og hin aukna fjölbreytni myndi
vart þrífast ef ekki væri fyrir ferðamenn-
ina. Stöku lundabúð angrar mig því ekki
enda skila ferðamenn enn fremur mestum
gjaldeyristekjum í ríkissjóð núorðið.
Um milljón ferðamanna sótti landið
heim á árinu 2014 og ekkert lát er á aukn-
ingunni. Reykjavík er stærsti ferðamanna-
staður landsins og meirihluti ferðamanna
hefur þar viðkomu. Aukinn fjöldi kallar á
aukna þjónustu við almennan rekstur svo
sem við þrif og umhirðu borgarinnar, og
reynir því á innviðina. Þá rekur Reykjavík
ýmsa afþreyingu sem er niðurgreidd af
íbúum, t.a.m. söfn og sundlaugar og styrk-
ir aðra ríflega. Borgin hefur enn fremur
ráðist í ýmsa opinbera fjárfestingu í menn-
ingartengdri ferðaþjónustu sem hefur eflt
borgina sem viðkomustað og styrkt stoðir
ferðaþjónustu. Á ferðalögum erlendis er
mér almennt gert að greiða fyrir allt sem
ég geri og skoða, og er það ekkert tiltöku-
mál. Í mörgum borgum er greiddur sér-
stakur skattur, gistináttagjald, sem rennur
til sveitarfélagsins og er innheimt á hótel-
um og varið til uppbyggingar ferðaþjón-
ustu. Sambærileg gjaldtaka er hér á landi,
en gjaldið rennur í ríkissjóð og er mjög
lágt í erlendum samanburði, aðeins 100 kr.
fyrir gistieiningu.
Slíkt gistináttagjald á að renna beint til
sveitarfélaganna líkt og víða erlendis. Þá
ber að hækka gistináttagjaldið og eyrna-
merkja uppbyggingu í ferðaþjónustu, eink-
um þar sem virðisaukaskattur er í lægra
þrepi. Þegar frumvarp um gistinátta-
gjald var samþykkt árið 2011 átti það að
skila rúmum 200 m.kr. til uppbyggingar
á ferðamannastöðum. Ljóst er að sú fjár-
hæð er mjög lág miðað við umfang vand-
ans. Kannski er ekki sami fnykur af vanda
Reykjavíkur og við blasir þegar ferðamenn
létta af sér á ýmsum stöðum vítt og breitt
um landið, en eðlilegt er að ferðamenn
standi undir þeirri þjónustu sem þeir nýta,
á sama hátt og við gerum sem ferðamenn
erlendis. Gistináttagjald til sveitarfélaga
á grundvelli nálægðarsjónarmiða er skyn-
samleg leið, á sér erlenda skírskotun og
tryggir sveitarfélögunum aur fyrir aur,
vegna aukinnar þjónustu við ferðamanna-
fjöldann. Um gjaldið ætti ekki að ríkja
ágreiningur, ef við erum sammála um það
grundvallaratriði að menn borgi fyrir þá
þjónustu sem þeir nýta.
Aur fyrir aur
FERÐAMENN
Eva H.
Baldursdóttir
lögfræðingur og
varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar
GLÆSILEG
MATAR-
STELL
KÍKTU Á
ÚRVALIÐ
Hrós í hnappagatið
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra sagði í viðtali við Skessuhorn
að Ísland ætti að íhuga að draga úr
hvalveiðum. Ástæðan væri hornauga
heimsveldanna vegna veiðanna. Þessu
ber að fagna. Þrjóska hefur lengi
þótt dyggð hér á landi, þótt hún sé
með öllu órökstudd. Íslendingar hafa
hingað til sýnt af sér heimóttarskap í
sambandi við hvalveiðar og þrjóskast
við með þeim rökum að við eigum
þetta og við megum þetta. En hval-
veiðar skaða okkur meira en
ávinningurinn af þeim er. Íslend-
ingar mega ekki horfa fram hjá
því þegar náttúruverndarsam-
tök á borð við GreenPeace biðja
Bandaríkjaforseta um hertar
aðgerðir og viðskipta-
þvinganir gegn Íslandi.
Hvalveiðar eru siðferðilega umdeildar
um heim allan og það er fagnaðarefni
ef Gunnar Bragi er byrjaður að hlusta.
Styrmir vill Viðreisn heim
Stofnun stjórnmálaflokks á hægri
vængnum sem hefði ESB-aðild á
stefnuskrá sinni hefur undanfarið
valdið titringi í Sjálfstæðisflokknum.
Hins vegar hefur þróun umræðunnar
verið með þeim hætti nýverið að
heita má ljóst að forsendur fyrir hægri
sinnuðum aðildarflokki eru brostnar
(reyndar má velta því fyrir
sér hvort forsendur fyrir
áframhaldandi tilveru
Samfylkingarinnar eru
þá ekki eins brostnar).
Þrátt fyrir þetta virðast
sjálfstæðismenn ekki
í rónni, vitandi af
tilvist Viðreisnar þarna úti. Um liðna
helgi skrifaði Styrmir Gunnarsson
pistil þar sem hann hvetur hina týndu
syni Viðreisnar til að hverfa heim í
hlýjan faðm Valhallar og boðar að
hægt sé að gera málamiðlanir um
hvað sem er, bara ekki ESB.
Einkavæðing til gróða
Sigríður Andersen, þingkona Sjálf-
stæðisflokksins, segir uppsagnir hjúkr-
unarfræðinga tækifæri til einkavæð-
ingar. Einkavæðing hefði í för með sér
hrun heilbrigðiskerfisins og gríðarlega
aukinn kostnað sjúklinga. Það er
ástæða fyrir góða og gegna sjálfstæð-
ismenn að svara þessari kröfu Sigríðar.
Er þetta almennur vilji flokksins?
Vilja kjósendur Sjálfstæðisflokksins
greiða fyrir eigin heilsu?
snaeros@frettabladid.is
Í
helgarblaði Fréttablaðsins var að finna áhrifaríkt viðtal
við ungan mann, Einar Hildarson, sem slapp hættulega
slasaður frá móður sinni fyrir ellefu árum. Systir Einars
lést í sömu árás en móðirin er haldin geðklofa og var í
geðrofi þegar atvikið átti sér stað.
Einar lýsir erfiðum aðstæðum í uppvexti sínum þar sem
hann og systir hans þurftu að lifa með sjúkdómi móður sinnar
án þess að kerfið gripi nokkurn tímann inn í. Móðurforeldrar
hans sem og frænkur höfðu margoft reynt að gera barnavernd-
aryfirvöldum ljóst hver staðan væri og hún hafði sjálf reynt
að fremja sjálfsmorð, allt án árangurs og athygli kerfisins.
„Það sýnir kannski hvað þetta er heimskulegt kerfi að eftir að
mamma reynir að drepa mig fær hún enn að hafa forræðið yfir
mér,“ segir Einar í viðtalinu, en afi hans og amma þurftu að
berjast hatrammlega fyrir forræðinu yfir honum.
Einar lýsir viðbrögðum
kerfisins eftir að atburðirnir
áttu sér stað einnig vel. Hann
segir réttilega að ekki sé til
nein handbók um hvað eigi
að gera þegar móðir reynir
að drepa barnið sitt og lýsir
erfiðum árum sem í kjölfarið
fylgdu. „Það er bara reynt að
spila þetta eftir hendinni en undir miklu stressi.“
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir
í samtali við Fréttablaðið í dag að málið hafi hreyft við
Barnavernd. „Í kjölfar þessa máls lagði ég til að það yrði
komið á viðbragðsteymi vegna voveiflegra dauðsfalla barna
að erlendri fyrirmynd,“ segir Bragi en tillagan náði ekki fram
að ganga. Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barna-
verndar Reykjavíkur, segir í blaðinu í dag að skólar standi sig
betur nú í tilkynningum til nefndarinnar en fyrir tíu árum.
Hún segir meiri meðvitund um tilkynningaskylduna og að hún
hafi vaxið á undanförnum árum.
Börn eiga samkvæmt lögum rétt á vernd og umönnun.
Löggjafinn leitaðist með setningu barnaverndarlaga við að
tryggja börnum sem búa við óviðunandi aðstæður nauðsyn-
lega aðstoð. Það er óbærilegt til þess að hugsa hvernig endir-
inn á fyrrgreindri atburðarás hefði getað verið öðruvísi hefði
verið stigið fyrr inn í. Hvorki Bragi né Halldóra gefa skýr-
ingar á því hvers vegna ekki var gripið fyrr inn í aðstæður
sambærilegar þeim og uppi voru á heimili Einars, né heldur
hvers vegna móðir heldur forræði eftir að hafa reynt að ráða
barni sínu bana.
Blessunarlega hefur þó ýmislegt breyst frá því þetta skelfi-
lega mál kom upp líkt og Halldóra lýsir og frekari þekking á
félags- og uppeldisfræði sem og geðlækningum hjálpar til við
að vernda fólk í þessum aðstæðum. Þó er aldrei hægt að búa
svo um hnútana að slíkt gerist aldrei aftur. Það er því sorglegt
að sjá að ekki hafi verið lært betur af reynslunni en svo að
tillaga um viðbragðsteymi vegna voveiflegra dauðsfalla barna
að erlendri fyrirmynd, líkt og Barnaverndarstofa lagði til,
hafi ekki við sett á laggirnar. Það eina góða sem svona atburð-
ir geta haft í för með sér er lærdómur.
Börn eiga rétt á
vernd og umönnun
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
3
-3
7
7
C
1
7
5
3
-3
6
4
0
1
7
5
3
-3
5
0
4
1
7
5
3
-3
3
C
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K