Fréttablaðið - 21.07.2015, Side 20
FÓLK|HEILSA
Á STEINI
Sigríður Rósa Kristíns-
dóttir fer upp að Steini á
Esjunni að minnsta kosti
einu sinni í viku til að
rækta líkamann en mest
þó sálina.
Áhuginn kviknaði hjá tveim-ur vinkonum sem langaði að verja meiri tíma saman.
„Í fyrrasumar ákváðum við Þóra
vinkona mín að við þyrftum að
eiga fleiri stundir saman. Þar
sem við erum báðar í vinnu og
með lítil börn þá fannst okkur
kjörið að nota tímann til að
rækta fleira en vináttuna og hún
stakk upp á því að við færum
upp á Esju.“
Sigríður er alin upp á Eskifirði
og hefur sterk tengsl við bæjar-
fjallið þar, Hólmatind. „Ég hafði
eitthvað gengið áður þótt það sé
langt síðan og var sannfærð um
að Esjan væri ekkert mál. Ég er
alin upp með hinn fagra Hólma-
tind í augsýn sem reyndist mér
ansi erfiður þegar ég gekk á hann
einhvern tíma en hann er líka
miklu hærri en Esjan. Svo ég var
kokhraust þegar við lögðum af
stað í fyrstu gönguna.
ENGIN HRAÐFERÐ
Skemmst er frá því að segja að
Esjan reyndist aðeins hærri og
brattari en ég hafði gert mér í
hugarlund þegar ég horfði á hana
út um eldhúsgluggann minn. Við
vorum ekki með göngustafi en í
gönguskóm, fannst við ágætlega
búnar og stoppuðum oft á leið-
inni til að drekka vatn og kasta
mæðinni.“
Þær komust upp að Steini á
áttatíu mínútum í þessari fyrstu
tilraun. „Maður skokkar þetta
ekkert og ég varð ansi móð
á leiðinni. En ég var ótrúlega
ánægð þegar ég loksins náði upp
að Steini og það var tilfinning
sem mig langaði að fá aftur.“
VINKONUGANGA
Þær vinkonurnar fóru nokkrum
sinnum á Esjuna í fyrrasumar
og settu sér það takmark að
fara einu sinni í viku í sumar.
„Og frá því snjóa leysti í byrjun
júní höfum við haldið okkur við
það.“ En hvað er það við Esjuna
sem er svona skemmtilegt upp-
gangs? Sigríður hefur mörg svör
við þeirri spurningu. „Esjan
er dásamleg náttúrperla hér í
borginni. Það er gaman að labba
hana, stutt að fara og einfalt að
drífa sig.“
FINNUR FYRIR ESJUÞÖRF
Mörgum þætti einu sinni í viku
vera alveg nóg en Sigríður fer
stundum tvisvar eða þrisvar og
já, jafnvel ein. „Stundum þegar
ég sit í sófanum og er að mygla
ofan í magann á mér, finn ég fyrir
Esjuþörf og dríf mig á fætur og af
stað. Og það er alltaf dásamlegt,
útiveran, kyrrðin og útsýnið, að
ógleymdri tilfinningunni að koma
upp að Steini og hafa enn einu
sinni náð takmarkinu sínu.“
Henni finnst gaman að hafa
félagsskap en líka fínt að fara
ein. „Ég hlusta á andardráttinn í
sjálfri mér sem er ekkert mikið
spennandi og svo er ég að hlusta
á kyrrðina og hugsa.“
Sigríður segist ekkert vera að
spá í fleiri tinda. „Fólk er alltaf
að segja mér að það séu fleiri
fjöll til í heiminum en ég er ekki
farin að hugsa um aðra tinda. Ég
fór með fjölskylduna mína upp á
Helgafell í Hafnarfirði um daginn
en annars er ég Esjukona. Ég þarf
ekkert fleiri fjöll og Esjan passar
fyrir mig.“ ■ brynhildur@365.is
ESJAN NÆGIR MÉR
FJALLGANGA Sigríður Rósa Kristinsdóttir ræktar líkama og sál með því að
ganga á Esjuna. Hún fer að lágmarki einu sinni í viku á fjallið.
ESJAN Náttúruperla og útivistarparadís.
Taco-krydd er afar gott í hina ýmsu rétti ættaða frá
Mexíkó. Flestir kaupa kryddið tilbúið en það má vel
búa það til sjálfur. Það er afar einfalt og geymist vel
í lokaðri krukku.
ÞAÐ SEM ÞARF:
2 msk. cumin
1 msk. kóríander
1 tsk. nýmalaður pipar
1 msk. salt
1 msk. ljós púðursykur
2 tsk. chili-flögur
2 msk. paprikuduft
1½ msk. óreganó
1 tsk. chili-pipar
1 msk. hvítlauksduft
Blandið öllu vel saman og þá er komið taco-krydd.
HEIMAGERT TACO-KRYDD
TACO Vinsæll réttur hjá flestum. Hægt er að nota jafnt fisk sem kjöt
í taco-rétti.
#BYLGJANBYLGJAN989
HLUSTAÐU
HVAR SEM ER,
HVENÆR SEM ER
RÚNAR RÓBERTS
ER Í LOFTINU
ALLA VIRKA DAGA MILLI KL. 13:00 - 16:00
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
3
-1
E
C
C
1
7
5
3
-1
D
9
0
1
7
5
3
-1
C
5
4
1
7
5
3
-1
B
1
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K