Fréttablaðið - 21.07.2015, Síða 26
21. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Hjartkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
HÖGNI FELIXSON
fyrrverandi skipstjóri,
Burknavöllum 3, Hafnarfirði,
lést 11. júlí á Landspítalanum við Hringbraut.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 24. júlí kl. 13.00.
Þyri Svanholt Björgvinsdóttir
Alma Högnadóttir
Felix Högnason Bára Denny Ívarsdóttir
Íris Högnadóttir Sveinn Jónsson
Björgvin Högnason Gauja Sigríður Karlsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
ESTHER HELGA PÁLSDÓTTIR
Tómasarhaga 36,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
17. júlí. Esther verður jarðsungin frá Útskála-
kirkju, Garði, mánudaginn 27. júlí kl. 13.00.
Friðrik Friðriksson
Hanna Rut Friðriksdóttir
Eiríkur Þórðarson Hanna Sveinsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
STEFANÍA HALLDÓRSDÓTTIR
lyfjatæknir,
Sólvöllum 7, Húsavík,
sem lést á hjúkrunardeildinni Skógarbrekku
16. júlí, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju,
fimmtudaginn 23. júlí kl. 14.00.
Hákon Óli Guðmundsson Guðlaug Baldvinsdóttir
Dóra Fjóla Guðmundsdóttir Stefán Geir Jónsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
BIRGIR SIGURBJARTSSON
málarameistari,
Holtastíg 22, Bolungarvík,
lést í Sjúkraskýli Bolungarvíkur síðastliðinn
þriðjudag, 14. júlí. Útför hans fer fram þann
25. júlí frá Hólskirkju kl. 14.00.
Helga Svandís Helgadóttir
Helgi Birgisson Kristín Una Sæmundsdóttir
Lilja Hálfdánsdóttir
Óðinn Birgisson Hjördís Geirsdóttir
Finnbjörn Birgisson Linda Björk Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEFÁN ÞÓR JÓNSSON
ættaður frá Fífilbrekku á Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík,
miðvikudaginn 8. júlí sl. Hann verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju 23. júlí
kl. 13.30. Alúðarþakkir til starfsfólks á
dvalarheimilinu Dalbæ.
Fyrir hönd ástvina,
Linda Geirdal Stefánsdóttir
Díana María Stefánsdóttir Baldvin Oddur Sigurðarson
Haraldur Helgi Stefánsson
Jakob Líndal Stefánsson
og barnabörn.
Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,
GERÐUR HAUKSDÓTTIR
Geldingaholti, Skagafirði,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks
föstudaginn 17. júlí, verður jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju fimmtudaginn 23. júlí,
kl. 14.00.
Aðstandendur þakka samúð og vinarhug,
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir
Jóhann Gunnlaugsson Eva Dögg Bergþórsdóttir
Kristín Björg Emanúelsdóttir
Ísak Hrafn Jóhannsson Björk Diljá Jóhannsdóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð, kveðjur og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
LILJU KRISTINSDÓTTUR
Ægisbyggð 9, Ólafsfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hornbrekku
Ólafsfirði.
Kristinn E. Hrafnsson Anna Björg Siggeirsdóttir
Sigurlaug Hrafnsdóttir
Líney Hrafnsdóttir Georg Páll Kristinsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
BYLGJA HALLDÓRSDÓTTIR
sem lést á sjúkrahúsi Akraness 15. júlí,
verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju 23. júlí
kl. 14.00.
Ingólfur Aðalsteinsson
Aðalheiður Aðalsteinsdóttir
Matthildur Aðalsteinsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar,
INGVAR SIGURJÓNSSON
lést á heimili sínu í Vestmannaeyjum
miðvikudaginn 15. júlí. Útförin fer fram frá
Landakirkju laugardaginn 25. júlí kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Kvenfélag Landakirkju.
Hólmfríður, Sigþór
Sigurlín Guðný, Sigurjón
og fjölskyldur.
Elsku besta systir okkar,
mágkona og frænka,
SVANHILDUR ALBERTSDÓTTIR
Álfheimum 36,
lést á Landspítalanum við Hringbraut,
fimmtudaginn 16. júlí.
Útför verður auglýst síðar.
Anna Margrét Albertsdóttir
Guðrún Albertsdóttir Páll Björnsson
Elísabet Hildiþórsdóttir
María Hildiþórsdóttir
Birkir Pálsson
Hildur Pálsdóttir
og fjölskyldur.
„Það eru auðvitað mikil forréttindi
að fá að eldast og það er verkefni
hvers manns að halda sér ungum í
anda, líkama og sál,“ segir Guðni
Bergsson, lögfræðingur og fyrrver-
andi atvinnumaður í knattspyrnu.
Hann stendur á miklum tímamót-
um í dag því hann fagnar fimmtugs-
afmæli sínu.
„Það verður eitthvert partí um
helgina eins og gjarnan er á svona
tímamótum. Maður verður að halda
einhverja veislu til að fagna þessum
áfanga, með sínu nánasta fólki. Dag-
urinn í dag verður þó í rólegheitun-
um. Ætli maður fái sér ekki huggu-
lega máltíð í tilefni dagsins en gleðin
þarf að bíða fram að helginni. Þessi
þriðjudagspartí hafa alltaf verið
frekar erfið,“ segir Guðni spurður
út í hvort hann ætli að gera eitthvað
í tilefni dagsins. Hann var staddur
með fjölskyldu sinni í góðu yfirlæti í
sumarbústað í Borgarfirðinum þegar
blaðamaður náði tali af honum.
Um næstu helgi verður heljarinnar
veisla í Valsheimilinu og er Guðni nú
þegar byrjaður að blanda í salatið og
kæla drykkina. „Jú, ég er búinn að
plana þessa veislu, það verður músík
og gleði. Logi Ólafsson verður veislu-
stjóri og er undir mikilli pressu en
hann er með skemmtilegri mönnum
sem ég þekki. Annars snýst þetta
bara um að hafa gaman og ég hugsa
að stemningin verði góð í Valsheim-
ilinu,“ útskýrir Guðni.
Hann hefur ávallt haldið sér í góðu
formi, enda lítið annað í boði þegar
menn eru í atvinnumennsku í knatt-
spyrnu. „Maður er auðvitað meðvit-
aður um það að hugsa betur um sig
þegar maður eldist og rækta líkam-
ann og sálina enn frekar. En þessi
aldur er bara tala og maður má ekki
taka hana of alvarlega. Þetta er hálf
óraunverulegt því manni finnst
maður alltaf vera strákur enn þá. Það
er mikilvægt að vera ungur í anda.“
Guðni lék knattspyrnu með liðum á
borð við Tottenham Hotspur, Bolton
Wander ers og Val enda uppalinn Vals-
ari.
En þegar menn eru orðnir hálfr-
ar aldar gamlir á blaði, setja menn
sér önnur markmið? „Ég hef verið
að reyna að takast enn frekar á við
golfið en hef bara verið að fara svo
sjaldan. Það hefur gengið afleitlega
fyrir vikið. Núna er hugmundin að
gefa golfinu meiri tíma. Ég er búinn
að gefa félögunum forskot í golfinu
en núna ætla ég að ná þeim. En ann-
ars ætlar maður bara að reyna að
halda sínu striki og njóta lífsins með
nánustu fjölskyldu og vinum,“ segir
Guðni.
Ætlar að verða betri
í golfi með aldrinum
Lögfræðingurinn og fyrrverandi atvinnumaðurinn í knattspyrnu Guðni Bergsson fagnar
fi mmtudagsafmæli sínu í dag. Hann ætlar þó að fagna enn meira um næstu helgi.
FIMMTUGUR Guðni Bergsson var atvinnumaður í fótbolta frá árinu 1983 til 2003. Þá á hann
að baki 80 landsliðsleiki. MYND/AÐSEND
Ætli maður fái sér ekki
huggulega máltíð í tilefni
dagsins en gleðin þarf að
bíða fram að helginni. Þessi
þriðjudagspartí hafa alltaf
verið frekar erfið.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
3
-6
D
C
C
1
7
5
3
-6
C
9
0
1
7
5
3
-6
B
5
4
1
7
5
3
-6
A
1
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K