Lögmannablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 39

Lögmannablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 39
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2006 > 39 Gunnar Guðmundsson hdl. Eiðistorgi 17 170 Seltjarnarnesi Logik ehf. Lögmannsstofa Hlíðarsmára 15 201 Kópavogi Lögmannsstofa Loga Egilssonar ehf. Hlíðasmára 8 201 Kópavogi Lögmannsstofa Rúnars S.Gíslasonar Bæjarhrauni 6 220 Hafnarfirði Lögfræðistofa Hafnarfjarðar Strandgötu 25 220 Hafnarfirði Lögmenn Bæjarhrauni 8 sf. Guðmundur Kristjánsson hrl. Hlöðver Kjartansson hrl. Bæjarhrauni 8 220 Hafnarfirði Lögmenn Thorsplani sf. Fjarðargötu 11 220 Hafnarfirði Lögmenn Hafnarfirði ehf. Reykjavíkurvegi 60 220 Hafnarfirði Lögfræðimiðstöðin ehf. Þórdís Bjarnadóttir hdl. Reykjavíkurvegi 62 220 Hafnarfirði Gleðileg jól – gott og farsælt komandi ár Sátt býður í fyrsta sinn á Íslandi uppá nám í sáttamiðlun. Sáttamiðlun er ný og áhrifamikil aðferð til að leysa úr ágreiningi. Sáttamiðlun hefur náð mikilli útbreiðslu og vegur hennar vex stöðugt. Úrlausn ágreinings er verkefni sem fagaðilar standa æ oftar frammi fyrir. Það er því mikilvægt fyrir þá að ná tökum á þessari aðferð þannig að þeir geti tekið á slíkum málum á fag- legan og farsælan hátt. Sáttamannanámið er þverfaglegt nám þar sem gefst tækifæri til að læra bæði kenningalegan grunn sátta- miðlunar og verklegan þátt henn- ar. Sáttamannanámið byggir á þrem grunnþáttum, það er byggt á nið- urstöðum rannsókna, það er alþjóðlegt en einnig er tekið tillit til sér íslenskra aðstæðna. Lögð verður áhersla á að námið muni standast framtíðarkröfur EB um gæði námsins og hæfni útskrif- aðra sáttamanna. Námið hefst í febrúar 2007 og fer fram í þremur lotum alls sjö kennslu- daga. • Fyrsta lotan verður 15. - 16. febrú- ar 2007, þá fer fram kynning á sátta- miðlun og farið verður í kenningalegan grunn hennar ásamt siðfræði. Kennarar verða Pia Deleuran, lögmaður, sátta- maður og sáttamaður hjá dómstól og Vibeke Vindeløv doktor í lögum, próf- essor og sáttamaður. • Önnur lotan verður frá 8. - 10. mars en þá fer fram þjálfun í að beita sáttamiðlun með áherslu á sáttamiðlun í viðskiptum. Kennarar Pia Deleuran, og Lawrence Kershen, lögmaður og sáttamaður. • Þriðja og síðasta lotan verður frá 26.-27. apríl, útskrift þann 27 apríl 2007. Kennarar Pia Deleuran og Henry Brown fyrrum lögmaður og sáttamað- ur. Í þessari lotu verður farið í gegnum kenningar og haldið áfram með þjálf- un sáttamanna með áherslu á ágrein- ing í persónulegum samböndum. Þá fá nemar handleiðslu og ráðgjöf. Náminu er viljandi dreift á þrjá mánuði en þannig fá þátttakendur tækifæri til að nýta það smám saman í starfi sínu. Einnig fá þeir þá lengri tíma til að tileinka sér námsefnið sem er nokkuð mikið. Að loknu náminu fá þátttakendur viðurkenningarskjal. Markmið Sáttar er að fá nám þetta viðurkennt á Íslandi, við það fengju þátttakendur réttindi til að kalla sig sáttamenn og starfa sem slíkir fyrir dómstólum, stjórnvöldum og á öðrum vettvangi. Til að skrá sig og/eða fá frekari upp- lýsingar um námið má skrá sig með því að senda póst á netfang satt@satt.is eða logsatt@simnet.is Námskeiðsgjald er áætlað kr 250.000,- Innifalið í gjaldinu er allur kostnaður þ.m.t kennsla, námskeiðs- gögn, fæði og gisting. Áætlaður bóka- kostnaður er ca. kr. 30.000. Sáttamannanám  á vegum Sáttar félags um sáttamiðlun

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.