Skírnir - 01.01.1960, Síða 163
Skírnir
Samfellan í Guðmundar sögu dýra
161
fjandsamlegur Önundi, sem enn viðhefur ofsa og yfirgang.
Eins og Magnús Jónsson tók fram, er sú setning, að Önundur
virSi menn eptir því er honum þótti sér fylgja, en miSr at
vinsældum viS aSra menn sérstaklega eftirtektarverð. 1 þætti
þessum eflast völd Guðmundar mjög, er hann kemst yfir
Fljótamannagoðorð. Kemur hann þar fram óhlutdrægur og
fús til að hlíta gerðardómi, en býður þó önundi byrginn í
hvívetna. Frásögnin um glæpi og dráp Björns þjófs og um
reiði önundar út af því er þess vegna í beinum tengslum við
málefni, sem varða kjarna sögunnar.
f 5. kapítula verður að viðurkenna, að frásögnin um fyrstu
tvö hjónabönd Guðrúnar Þórðardóttur sé langsótt. Það er ekki
fyrr en hún verður á vegi Hákonar, að saga hennar fer að
koma sögu Guðmundar við. Hákon, frændi Guðmundar, veg-
ur Hrafn, mann Guðrúnar, og gefur því hinum fjandsamlegu
höfðingjum tækifæri til að neyða Guðmund í málaferli, þar
sem hann myndi verða í verri aðstöðu. En áður en þeir geta
komið því við, býður Guðmundur bróður Hrafns góðar bæt-
ur og slær því vopnin úr höndum höfðingjanna með snarræði
sínu. Hann eflist að völdum. Eins og sagan tekur fram, er
hann þegar orðinn svo voldugur, að hann hefur upp á ein-
dæmi afnumið héraðsþingið. Þessi hluti sögunnar lýsir ann-
ars vegar, hvernig Guðmundur hefst til valda og hins vegar
réttsýni hans og eðlislægri kænsku.
Magnús Jónsson gagnrýnir 7. og 8. kapítula fyrir það, að
þeir komi aðalefni sögunnar varla neitt við. Hann álítur, að
þeir séu hafðir með aðallega vegna þess, að Guðmundur hlýt-
ur heiður af málinu út af vígi Sumarliða, og ef til vill vegna
þess, að hinar lágu hætur fyrir víg Helga voru álitnar auð-
mýkjandi fyrir önund og Þorvarð.14) Samt álít ég, að veiga-
meiri ástæða sé til þess, að þeir eru hafðir með. 1 fyrstu fjór-
um kapítulunum hafði Guðmundur aðeins komið fram sem
óhlutdrægur meðalgöngumaður í deilum annarra eða hafði
varið þá, sem höfðu réttinn sín megin. Hér, eins og i 6. kapí-
tula, verður hann aftur á móti að blanda sér í mál, þar sem
14) Þessum tveim kapitulum er sleppt í AM 122a.
11