Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 10
SKAGFIRBINGABÓK
Ingibjörg, móðir Hrólfs, var dóttir Guðmundar Hannessonar
bónda á Hömrum og konu hans, Maríu Ásgrímsdóttur Hallssonar, en
Ásgrímur var albróðir séra Jóns Hallssonar prófasts í Glaumbæ.
Þeir feðgar, Guðmundur og Hannes Ásmundsson, bjuggu á Hömrum
frá 1834 til 1872 og María Ásgrímsdóttir eftir lát manns síns til 1885.
Kona Hannesar á Hömrum var Ingibjörg Hrólfsdóttir, alsystir Sigurð-
ar bónda í Grundarkoti, föður Þorsteins kirkjusmiðs á Sauðárkróki.
Sú ætt liggur til Bjarna yngra lögréttumanns á Álfgeirsvöllum, sem
var einn af sonum Hrólfs sterka lögréttumanns þar. Þeir Hamra-
bændur, Hannes og Guðmundur, undu þar vel hag sínum og voru
bjargálna bændur eða vel það, en áttu ekki jörðina. Guðmundur var
einn af þeim, sem tóku þátt í norðurreið 1849, þá 24 ára gamall og
búlaus.
Ég man nokkuð vel eftir Þorsteini á Skatastöðum. Hann kom að
Sveinsstöðum í lestarferð á vori og líklega Björn sonur hans með
honum. Hvorttveggja var, að kaupstaðarleið dalabænda lá um Tungu-
sveit og svo voru þau móðir mín og Þorsteinn systrabörn að frænd-
semi. Amma mín, Guðbjörg Benjamínsdóttir, var hálfsystir Oddnýjar
í Gilhagaseli. Seinni maður Bjargar Ólafsdóttur á Lýtingsstöðum
var Benjamín Jónsson, hálfbróðir Jóns Godda, sem talinn var göldr-
óttur.
Þorsteinn á Skatastöðum var ekki hár vexti, eftir því sem mig minn-
ir, en gildvaxinn og beinn í baki, hraustmenni talinn og glímumaður.
Hann var hressilegur og hlýlegur í viðmóti og þótti gott að bragða
vín. Á þessum árum heyrði ég um orðaskipti á milli Jóhanns hrepp-
stjóra á Brúnastöðum og Þorsteins. Jóhann átti að hafa sagt við Þor-
stein. „Hvernig stendur þú nú í sakasökunum, lagsmaður?", og átti
þá við fjárhaginn. Þorsteinn svaraði snöggt og ákveðið: „Ég stend
beinn".
Þorsteinn var góður bóndi og allvel efnaður, að því er ég bezt
veit. Honum mun hafa búnazt vel á Hofi þau 13 ár, sem hann bjó
þar, enda jörðin góð. Efnahag hans marka ég m. a. á því, að hann var
búinn að kaupa Skatastaði nokkru áður en hann flutti þangað.
Það fer ekki hjá því, að Þorsteinn hefur komizt hart við í æsku
og alizt upp í sárri fátækt. Foreldrar hans bjuggu í Gilhagaseli frá
8