Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 102
SKAGFIRBINGABÓK
honum gottgjörðar rentur af því, sem hann svoleiðis betalað hefir. —
7) Ef leiguliðinn, sem verð.ur hæstbjóðandi að sinni ábýlisjörðu, á sjálf-
ur aðra jörð til, álýzt hann sem framandi kaupandi, nema svo sé, að
hann afsali öðrum þessa eignarjörð sína, og að þeim eina kosti verður
hann aðnjótandi þeirra góðkjöra, sem kaupandi leiguliðum eru heit-
in. — 8) Sömuleiðis missa leiguliðar þeirra gæða, sem lofuð eru í gr.
4, 5, 6 og 7, ef þeir aptur selja þá jörð þeir keyptu, fyr en sá tími er
umliðinn, á hverjum kaupandi leiguliðum er þessi léttir eptir látinn.
— 9) Öll þau kúgildi, sem á gózinu eru biskupsstólnum eða skólan-
um tilheyrandi, uppbjóðast útaf fyrir sig, og þá samþykki uppá söluna
er innkomið, skal betalíngurinn strax greiðast, nema svo sé, að sá á
jörðunni búandi leiguliði, hafi verið hæstbjóðandi þeirra kúgilda, sem
á nefndri jörð eru, þá má (kúgilda-) verðið leggjast til jarðarinnar
kaupasummu, og með þess útsvörun gefast frestur að líku skapi. —
10) Föst kúgildi skulu á þessu gózi aldeilis verða afsköffuð, utan
kirkjukúgildi, sem framvegis eins og híngað til skulu viðhaldast á
þeim jörðum sem þau eru, þángaðtil á verður gjörð önnur ráðstöf-
un. — 11) Þegar leigukúgildi innsetjast á þetta góz, skal þar í haga sér
fyrst um sinn, og þángaðtil öðruvísi verður þarum boðið, eptir því
sem skipað er í lögunum; og hvað kúgildatöluna áhrærir, eptir því
sem landsdrottinn og leiguliðinn koma sér saman um. Þessi samníngur
skal þessvegna með berum orðum standa í því byggíngarbréfi, sem
leiguliðinn móttekur, sömuleiðis skal byggíngarbréfið endast með því
atkvæði, að þetta skuli svoleiðis gilda, þángaðtil öðruvísi verður þar-
um boðið. — 12) Renmrnar af kaupsummunum skulu reiknast frá þess
árs fardögum, sem samþykkið uppáboðið inn kemur, og fylgir þaraf,
að framandi kaupendum aptur á móti tilfellur landskuldin frá sömu
tíð. — 13) Konúnglegt afsalsbréf fyrir jörðunum verður strax næsta
ár eptir útgefið þeim leiguliðum, sem urðu hæstbjóðandi, þá þess
er óskað, og öðrum kaupendum, þegar Vi kaupverðsins er betalaður,
og landfógetans kvitteríng þarfyrir er innsend til rentukammersins. —
14) Allir þeir, sem girnast að verða eigendur einhverra jarða, mega
vera til staðar við auctionirnar, því eptirboð verða aldeilis ekki an-
tekin.
Rentukammeret þann 13. Martii 1802."
100