Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 171
SAGNIR UM SÍRA PÁL TÓMASSON
Á KNAPPSSTÖÐUM
eftir GUBMUND DAVÍSSSON frá Hraunum
Sagnir þær um síra Pál Tómasson á Knappsstöðum, sem hér
birtast, eru teknar úr alllangri samantekt Guðmundar Davíðsson-
ar um „Fljótamenn". Þessa ritgerð, sem naumast er fullfrágengin,
mun Guðmundur hafa samið árið 1935. Hann er þá orðinn aldraður
maður (f. 22. jan. 1866) og löngu hættur búskap. Mun hann mikið
hafa fengizt við ritstörf á efri árum sínum. Barst ritgerð þessi
Landsbókasafni fyrir skömmu ásamt margvíslegum öðrum fróðleik
frá hendi höfundar. í þessari syrpu sinni gerir hann grein fyrir
flesmm ábúendum jarða í Fljótum frá því laust fyrir síðustu alda-
mót og fram til ársins 1935. Er þarna mikinn fróðleik að finna og
hispurslaust og lipurlega sagt frá. Ymsar skemmtilegar sögur em
þar sagðar af körlunum, og ekki skirrist Guðmundur við að segja
löst jafnt og kost. Sumar mannlýsingar hans, einkum þær sem
bundnar eru við sérstök atvik, eru bráðskemmtilegar og litríkar.
Ekki þótti samt tiltækilegt að birta ritgerðina í heild sinni. Kemur
þar annars vegar til, að allnokkuð af efni hennar er upptalning
staðreynda, sem þegar hafa verið dregnar á land (t. d. í Jarða- og
búendatali og Skagfirzkum.æviskrám), og hins vegar er ekki loku
fyrir skotið að sumt í frásögnum Guðmundar hefði kunnað að
særa að þarflausu nána lifandi afkomendur þeirra, sem um er fjall-
að. Hér hafa einungis verið teknar sagnir um síra Pál á Knapps-
stöðum (fáeinar aðrar sagnir verða e. t. v. prentaðar síðar). Þessu
vali veldur það, að sagnirnar eru í sjálfu sér skemmtilegar, einna
heillegasti og langlengsti kaflinn, sem helgaður er einum manni, og
loks eru þær góður viðauki við þá lýsingu, sem þegar hefur verið
dregin upp af þessum klerki á prenti.
Handriti höfundar er hér fylgt að öðru Ieyti en því, að fáeinum
sögnum er hnikað til í röð, þegar betur þótti á fara. Stafsetning og
169