Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 105
SALA HÓLASTÓLSJARÐA
„Commissarii fóru um sumariS yfir land, ok virtu jarðir allar, þó það
kæmi síðan fyrir lítið, ok buðu upp Hóla stólsjarðir, riðu þeir norður
Stefán Stephensen, er þá var Assessor að nafnbót, ok Árni Sigurðsson
Secreteri, ok þinguðu þeir í hverjum þingstað í Skagafirði, en Jónas
sýslumaður reið með þeim; dáðust margir Skagfirðingar að Stefáni
Assessor, ok mannúðleik hans. Þorlákur bóndi á Okrum Símonarson, sá
er fyrr var á Flatatungu, hafði keypt Akra, ok var orðinn fjesterkur;
hann bauð uppá nokkrar jarðir, Steingrímur á Grund, son Höskuldar
á Höskuldsstöðum Guðmundssonar upp á sumar, hann hafði þá í hendi
nokkurt arfafje eptir Ásmund bónda á Silfrastöðum, ok ætluðu menn
hann auðugan. Krossanes ok Langamýri voru boðnar upp saman, ok
bauð uppá Sigurður son Jóns Egilssonar ok leiguliði á Langamýri með
honum, en Sigurður vildi síðan ekki kaupa nema Krossanes eitt, því
að hann var öreigi, ok vildi amtmaður, að báðir gyldi fyrir annan ok
annar fyrir báða, er í einingu var boðið, ok keypti Sigurður einn að
lyktum. Jón Bjarnason á Bakka var hreppstjóri ok sáttamaður, hann
bauð uppá allmargar jarðir í Viðvíkur þingi. Björn Illugason bauð
uppá Neðra-Ás, þar hann bjó, en síðan keypti hann margar jarðir,
margir fengu þar góð kaup fyrir eina saman Banco-seðla; var leigulið-
um helst unnt boðanna, ok buðu margir uppá jarðir þær, er þeir voru
á, en sumir voru svo snauðir, að aldrei gátu goldið, ok gengu þá aðrir
byrgari í boðin; kom til Viðvíkurþings Stefán amtmaður Þórarins-
son, ok bauð upp á Hóla í Hjaltadal MM dala, en Margrjet Árnadóttir
Læknisekkja bauð upp á Viðvík ok Lánghús, Gísli Jónsson Procon-
rector upp á Hofstaðasel. Það vildu Commissarii að Flugumýri yrði
sýslumannsjörð, en Ari læknir Arason bauð upp á hana, ok hugðu
þeir eigi mundi standa. Þeir riðu frá Viðvík til Hofs; þar bauð Jakob
Havstein undirkaupmaður CC dali upp á Drángey, ok varð honum að
miklu fje. í Fljótum buðu flestir upp á ábýlisjarðir sínar, ok Bjarni,
son Þorleifs Kárssonar að Hraunum bauð fyrir Hraun þúsund dala;
flestar náðu XX hundraða jarðir C dölum, en kallað var þá, að hinir
auðugri menn byði stundum mikið í þær, sem þeir vildu eiga, ok
leiguliða frá, er konúngur vildi helst að nyti, en ekki var það kallað
mikið jarðarverð seinna, er flestir fengu þá jarðir fyrir, ok enn minna
var haldið til hags konúngi, er svo lítið, ok þó í Bancóseðlum, er um
103