Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 149
SALA HÓLASTÓLSJARÐA
26. Málmey
Dýrl. 30 hundr., lsk. 80 áln., kúg. 1. — Erlendur Sigurðsson, bóndi
á Keldum og í Málmey 1804—1832, keypti jörðina á 324 rd. 80 sk.
og kúg. á 8 rd. Fyrsta greiðsla 1805, 117 rd. 45 sk., lokagreiðsla 1807,
233 rd. 27 sk. Árin 1835—1847 bjuggu í Málmey Jón Jónsson og
Herdís Hallsdóttir og áttu jörðina.
FELLSHREPPUR
1. Fjall
Dýrl. 10 hundr., lsk. 40 áln., kúg. Vi, sem Jón Jónsson á Víðivöll-
um keypti á 4 rd. 1 sk. Jörðina keypti Sigfús Bergmann, bóndi á Yzta-
Mói 1798—1801 og svo í Víðidalstungu (Þorkelshóli, Jarða- og bú-
endatal), á 60 rd. 64 sk. Fyrsta greiðsla fór fram 1805, 20 rd. 64 sk.,
lokagreiðsla 1816, 48 rd. 12 sk. nafnverðs.
2. Keldur
Dýrl. 20 hundr., lsk. 60 áln., kúg. 1, sem Sigfús Bergmann keypti
á 10 rd. 6 sk. Jörðina keypti Markús Jónsson á Hrauni og síðar, 1803
—1804, á Bakka á Bökkum, á 130 rd. Fyrsta greiðsla 1805, 82 rd, loka-
greiðsla 1813, 24 rd. 46 sk.
3. Heiði
Dýrl. 30 hundr., lsk. 80 áln., kúg. 2, sem ábúandinn þar 1784—
1803, Jón Björnsson, keypti á 16 rd. 64 sk. Jörðina keypti Sæm-
undur Sæmundsson, vinnumaður á Laugalandi og bóndi á Syðsta-Mói
1806—1807, á 10 rd. Fyrsta greiðsla 1805, 80 rd., lokagreiðsla 1813,
26 rd. Jón Björnsson dó 1803, en ekkjan bjó áfram.
4. Yzti-Hóll með Mýrum
Dýrl. 20 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 1. Árið 1802 er dýrl. Mýra skv.
sérmati 10 hundr. — Ábúandi, Jón Guðmundsson, keypti jörðina
147