Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 128
SKAGFIRBINGABÓK
12. Kelduland
Dýrl. 20 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. D/2- — Sigurður Ólafsson á
Vatnsskarði keypti jörðina á 296 rd. Fullnaðargreiðsla 1805, en þá
er Sigurður sagður hafa selt hana Jónasi Jónssyni á Gili í Svartárdal
A.-Hún. Kúg. keypti Guðrún Sigfúsdóttir á 14 rd. 64 sk. Hún bjó á
Keldulandi 1796—1802. Krákur Jónsson keypti síðan jörðina ásamt
Stekkjarflötum í skiptum fyrir Þorleifsstaði 1809 og fékk 190 spesíur
í milligjöf, segir Jarða- og búendatal. Krákur bjó á Keldulandi 1809—
1824. Ábúandi 1841—1844 var Ingibjörg Pálsdóttir, ekkja Jóns Jóns-
sonar, er bjó þar 1827—1838, og var hún eigandi að jörðinni.
13. Stekkjarflatir
Dýrl. 20 hundr., lsk. 90 áln., kúg. 1. — Sigurður Ólafsson á
Vatnsskarði keypti jörðina á 150 rd., en hafði selt hana Jónasi Jóns-
syni á Gili 1805, að því er segir í söluskránni frá sama ári. Kaup-
verðið þá greitt til fulls. Anna Jónsdóttir, er bjó á jörðinni 1782—
1797, keypti kúg. á 10 rd. sk. Var hún svo um kyrrt hjá dóttur sinni,
Sólveigu Bjarnadóttur, er þar bjó ásamt manni sínum, Gísla Magn-
ússyni, 1801—1807.
14. Gilsbakki
Dýrl. 20 hundr., lsk. 1 hundr. stórt, kúg. 1. — Magnús Loðvíksson,
bóndi þar 1798—1823, keypti jörðina á 230 rd. og kúg. á 6 rd. —
1805 er Isk. 4 rd. 48 sk. — Fyrsta greiðsla 1806, 55 rd. 46 sk., loka-
greiðsla 1820, 72 rd. 77 sk. nafnverðs. Árin 1833—1850 bjó á Gils-
bakka Brynjólfur Magnússon, tengdasonur Magnúsar Loðvíkssonar,
og átti hann jörðina 1842.
15. Merkigil og Miðhús
Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr. 40 áln., kúg. 1 á Merkigili, en dýrl.
Miðhúsa er 15 hundr., lsk. 62 áln., kúg. ekkert. — Jón Höskuldsson,
126