Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 134
SKAGFIRBINGABÓK
í einu lagi 1806 með 258 rd. 73 sk. Kúg. keypti Gísli Árnason í
Ásgeirsbrekku á 18 rd. 16 sk. — Lsk. 1805 er 5 rd. 24 sk.
6. Svaðastaðir
Dýrl. 40 hundr., Isk. 1 hundr. 75 áln., kúg. 2. Lovs. greinir ekki frá
neinu kúg. þar. — Ábúandinn, Jón Björnsson (d. um 1816) keypti
jörðina á 250 rd., en Gísli Ásgrímsson í Felli keypti kúg. á 21 rd.
Jarðarverðið var fullgreitt 1805. Árin 1819—1881 bjó á Svaðastöð-
um Þorkell, sonur Jóns, og átti hann jörðina.
7. Hofdalir
Dýrl. 60 hundr., lsk. 2 hundr., kúg. 2. — Hafliði Jónsson, bóndi
þar 1785—1824, keypti jörðina á 252 rd., en kúg. keypti Havsteen
faktor á 16 rd. 16 sk. Jarðarverð greitt að fullu 1805. — Jón, sonur
Hafliða, bjó á Hofdölum 1811—12 og aftur 1820 til dauðadags 1841,
en ekkja hans, Þóra Pétursdóttir, til 1847. Mun hún, að sögn John-
sens, hafa átt 16 hundr. í jörðinni.
8. Vatnsleysa
Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 1., sem ábúandinn 1787—-1803,
Guðmundur Helgason, keypti á 11 rd. Sigurður Andrésson í Ártúnum
keypti jörðina á 106 rd. og greiddi verðið 1805. — Jarða- og búenda-
tal segir, að 1816 sé jörðin orðin eign Þorláks á Stóru-Ökrum.
9. Lón
Dýrl. 30 hundr., lsk. 90 áln., kúg. ekkert. — Jón Björnsson, hrepp-
stjóri á Bakka, keypti jörðina á 100 rd. og lauk greiðslu 1805.
10. Narfastaðir
Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. IVi. — Jón Eyjólfsson, bóndi
þar 1790—1804, keypti kúg. á 10 rd., en Jón, hreppstjóri á Bakka,
jörðina á 100 rd. og lauk greiðslu 1805.
132