Skólavarðan - 01.05.2008, Blaðsíða 16

Skólavarðan - 01.05.2008, Blaðsíða 16
16 þING Kí SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 8. ÁRG. 2008 Menntamálaráðherra segir kennara verð- skulda betri sess og stöðu í þjóðfélaginu Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ávarpaði þing Kennarasam- bands Íslands og sagði í upphafi að kennarar beindu nú eðlilega sjónum sínum í auknu mæli að kennaralaunum og skólastarfi. Ráðherra sagði undanfarin ár hafa verið annasöm í ráðuneyti mennta, menningar og vísinda. Á öllum þessum sviðum hafi verið lögð áhersla á stefnumörkun og skipulags- legar endurbætur. Þessi vinna tengdist eðlilega breytingum sem orðið hafa á sam- félaginu og munu verða á komandi árum. Á sviði menntamála hafi markvisst verið unnið að nýrri menntastefnu og endur- skoðun skólakerfisins í takt við örar sam- félagsbreytingar. Stefnt er að fjölþættari tækifærum til menntunar, samfellu í skóla- starfi og auknum sveigjanleika í mennta- kerfinu. Kennarasamband Íslands hafi eðli máls- ins samkvæmt ætíð tekið virkan þátt í umræðu um menntastefnu og undanfarin misseri lagst á árar með ráðuneytinu í umbótavinnunni við nýskipan skólakerfisins. Undirritað hafi verið tímamótasamkomulag við Kennarasambandið um skólastarf og skólaumbætur, sk. tíu skref til sóknar. Með samkomulaginu hafi Kennarasambandið og ráðuneytið ákveðið að vinna saman að betra skólakerfi með heildarendurskoðun á námi og breyttri námsskipan skólastiganna. Menntamálaráðherra sagðist þakka stjórn Kennarasambands samstarfið þó stundum hafi það verið stormasamt. Hún sagði Skólavörðuna vera barómeter á samstarfið og vitnaði í lestur nýlegs tölublaðs þar sem hún varð hissa og glöð yfir að vera kölluð Þorgerður „okkar“! „Meginmarkmið endurskoðunarinnar“, sagði Þorgerður enn fremur um tíu skrefa samkomulagið og vinnu í kjölfar þess, „er fyrst og fremst að móta löggjöf sem styrkir menntun á öllum skólastigum með velferð allra barna og nemenda að leiðarljósi.“ Með frumvörpunum sé leitast við að auka samfellu milli skólastiga, festa í sessi sveigjanleika milli og innan þeirra og að skólakerfið mæti breytilegum þörfum ólíkra einstaklinga. Lokamarkmiðið sé heildstæðara skólakerfi - betri skóli - betri menntun. Nú er í fyrsta skipti lögð fram frumvörp á Alþingi um öll skólastigin, að undanskildu háskólastiginu þar sem búið er við nýlega löggjöf. Hinar nýju áherslur í menntastefnu hafi verið kynntar á sérstöku vefsvæði á vef ráðuneytisins. Þar er lögð áhersla á samfellu í námi og sveigjan- leika milli skólastiga. Horft er á skólakerfið sem eina heild frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla, og til tengsla við háskólastigið. Ráðherra fjallaði um öll skóla- stigin í ávarpi sínu auk þess að víkja að kennaramenntun og listfræðslu. Í lok ávarps síns sagði Þorgerður Katrín meðal annars að ábyrgð kennara væri mikil og þeir verðskulduðu sess og stöðu í sam- félaginu sem þeir hefðu ekki alltaf notið. „Það er forsenda fyrir farsælu skólastarfi að kennarar séu sáttir við stöðu sína og þá á ég ekki við kjaramálin ein. Þau eru hins vegar órjúfanlegur hluti af þessari heildarmynd og þess að við fáum áfram hæfa og dugmikla kennara til starfa. Ég ætla líka að leyfa mér að vera bjartsýn og tjá þá trú mína að það sé aukinn skilningur á mikilvægi skóla-starfsins og að það sé jafnframt vaxandi skilningur í samfélaginu á því að umgjörð, aðbúnaður og viðurgjörningur allra sem starfa innan skólans þurfi að endurspegla það mat,“ sagði menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á þingi Kennarasambandsins. Sveitarfélögin vilja lyfta kennslunni á hærri stall Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra sveitarfélaga flutti ávarp fyrir hönd Halldórs Halldórssonar formanns SÍS á 4. þingi Kennarasambands Íslands, en Halldór var veðurtepptur á Ísafirði. Í ávarpinu sagði Þórður að unnið væri að sameiginlegri framtíðarsýn sveitarfélaga landsins í skóla- málum, og tilgangurinn væri ekki síst sá að lyfta kennslunni í landinu á enn hærri stall. Þórður sagðist ánægður með að þessi málaflokkur hefði að undanförnu fengið auki vægi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hann hvatti til þess að horft væri til fram- tíðar með öflugra skólastarf að leiðarljósi. Tæpum þremur vikum eftir að ávarpið var flutt undirrituðu grunnskólakennarar og skólastjórar kjarasamninga sem að margra mati staðfestir það sem Þórður sagði um vilja sveitarfélaga. Aldarafmæli kennaramenntunar Svanhildur Kaaber, fyrrverandi formaður og nú starfsmaður Kennaháskólans, sagði það nú vera sameiginlegt verkefni Kenn- araháskóla Íslands og Kennarasambands Íslands að minnast þess að öld væri senn liðin síðan kennaramenntun hófst í landinu. Á sínum tíma var þrjátíu þúsund krónum varið til að byggja fyrsta kennaraskólann við Laufásveg sem nú hýsir skrifstofur Kenn- arasambandsins. 7. júní nk. verður samfelld dagskrá í Borgarleikhúsinu þar sem þessar merku tímamóta verður minnst og þar verða útnefndir fjórir heiðursdoktorar. „Alúð við fólk og fræði – metnaður og framsýni er mikilvægur þáttur í starfi kennara,“ sagði Svanhildur Kaaber. Þessi fluttu ávörp og fyrirlestra á þinginu: • Eiríkur Jónsson, formaður KÍ • Lillemor Darinder, framkvæmdarstjóri NLS • Svanhildur Kaaber, formaður afmælisnefndar KHÍ - KÍ • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra • Þorvaldur Gylfason, prófessor • Þórður Skúlason, framkvæmdarstjóri SÍS fyrir hönd Halldórs Halldórssonar formanns SÍS • Ögmundur Jónasson, formaður BSRB Ávarp menntamálaráðherra og meira efni af þinginu er á www.ki.is Kennarar verðskulda betri sess og stöðu í þjóðfélaginu

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.