Skólavarðan - 01.05.2008, Blaðsíða 20

Skólavarðan - 01.05.2008, Blaðsíða 20
20 SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 8. ÁRG. 2008   Óskað er eftir leikskólakennurum sem eru tilbúnir að taka þátt í metnaðarfullu, fjölbreyttu og skemmtilegu leikskólastarfi í nýjum og gömlum leikskólum. Kópavogsbær hefur samþykkt viðamiklar aðgerðir í tengslum við bókanir í kjarasamningi um TV einingar og álagsgreiðslur, eldri kennara ofl. Þá hefur skipulagsdögum verið fjölgað í 5-6 á ári. Upplýsingar gefur leikskólafulltrúi, Sesselja Hauksdóttir, leikskólaráðgjafar, Gerður Guðmundsdóttir og Sigríður Síta Pétursdóttir í síma 570-1600 eða sesselja@kopavogur.is; gerdur@kopavogur.is;sita@kopavogur.is Kynnið ykkur leikskóla Kópavogs á heimasíðu Kópavogs www.kopavogur.is þar sem jafnframt er hægt að sækja um stöðurnar í gegnum job.is.  Reykjavík, gerðu á sama efni (2005). Anna Þóra ræddi um hvernig kennurum líður í skólastofunni, eru þeir undir of miklu álagi, segja þeir of sjaldan NEI? Hvað er til ráða? Hvað getur Kennarasambandið gert? Hún nefndi m.a. að mikilvægt væri að KÍ kæmi á framfæri upplýsingum út í samfélagið um það sem vel væri gert í skólastarfinu. Edda talaði um breytt starfsumhverfi skóla, breyttar kröfur til skólanna sem gerði nauðsynlegt að skilgreina hlutverk skólanna vel og þátt/hlutverk kennaranna í skólastarfinu. Mikilvægt að skólar axli ábyrgð á þessu vegna mikilla breytinga á sam- félagsmunstrinu. Mörgum kennurum líði ekki vel í starfi vegna þess að þeir upplifa bæði áhrifaleysi og mikla ábyrgð í senn, börnin lenda síðan í tómarúmi við þessar aðstæður. Kennarar verði að hafa meira vald. Styðja þarf kennara til að vera fagmenn, efla fagvitund stéttarinnar, fagmennsku, ekki að láta aðra segja sér hvernig hlutirnir eru eða eigi að vera. Edda spurði: Hvað geta kennarar og skólastjórnendur gert? Hún sagði mikilvægt að forgangsraða verkefnum, að kennarar hafi svigrúm til að “skoða sig sjálfa”, efla fagmennsku og leiðtogahæfni sína. Mikilvægt að geta rökstutt ákvarðanir. Góður starfsandi og skólamenning skiptir miklu máli, einnig að vinna með foreldrum. Kennarar ekki að afsala fagmennsku og sjálfstæði til annarra. Varðandi þátt KÍ þá nefndi Edda atriði eins og að efla símenntun, starfsþróun, að kennarar hafi rödd og séu sýnilegir í samfélaginu og umræðunni. Miklar umræður voru í málstofunni og komust mun færri að en vildu. Lesið umræður á málstofum á www.ki.is Aðrar málstofur á þinginu: 3. málstofa - menntafrumvörp I. Hverju breyta ný lög fyrir skólastarf í leikskólum, grunnskólum og framhalds- skólum? Málshefjendur: Anna María Gunnarsdóttir framhaldsskólakennari, Einar Már Sigurðs- son alþingismaður. II. Uppfyllir kennaramenntunarfumvarpið kröfur framtíðarinnar? Málshefjendur: Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður KÍ, Ingvar Sigurgeirsson prófessor KHÍ, Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður. 4. málstofa – PISA PISA og hvað svo? Málshefjendur: Guðlaug Erla Gunnarsdóttir aðstoðarskólastjóri, Almar M. Halldórsson verkefnisstjóri Pisa á Íslandi. 5. málstofa - starfsumhverfið, stéttarfélagið Kennarasamband framtíðarinnar – hlutverk /þjónusta stéttarfélaga a. Skipulag/uppbygging /þjónusta b. Hvar eiga áherslur KÍ að liggja á næstu árum? Málshefjendur: Hannes Þorsteinsson skrif- stofustjóri KÍ, Þorgerður Diðriksdóttir for- maður Kennarafélags Reykjavíkur (KFR), Hugrún Sigmundsdóttir formaður 6. svæða- deildar FL (Norðurland eystra). þING Kí

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.