Skólavarðan - 01.05.2008, Blaðsíða 32

Skólavarðan - 01.05.2008, Blaðsíða 32
Spennandi störf í boði www.skolar.is Spennandi störf í boði Ef þú ert leikskólakennari sem hefur áhuga á næringu, hreyfingu og listum átt þú samleið með okkur. Við leitum að kennurum til að vinna í nýjum heilsuleikskóla í Hafnarfirði þar sem næring, hreyfing og listir eru höfð að leiðarljósi í leikskólastarfinu. Við leitum að: • Deildarstjórum • Sérkennslustjóra • Fagstjórum í íþróttum og listum • Matráði • Aðstoðarmanni í eldhús • Leikskólakennurum og öðru uppeldismenntuðu fólki Hafðu endilega samband og kynntu þér málið ef þú hefur áhuga á að vinna í leikskóla sem er staðsettur á skemmtilegum stað í Hafnarfirði með sterk tengsl við náttúruna og þar sem skýr leikskólastefna er til staðar. Unnur Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skólasviðs Skóla, mun taka vel á móti öllum fyrirspurnum. Netfang: skolar@skolar.is Sími: 420-4213 Skólar ehf. hafa gert þjónustusamning við Hafnarfjarðarbæ um rekstur heilsuleikskóla við Hamravelli í Hafnarfirði, sem gert er ráð fyrir að muni opna að hluta til í júní á þessu ári. Skólar hafa rekið leikskóla í rúm sjö ár bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og á Suðurnesjum. Innan fyrirtækisins er mikil reynsla sem snerta bæði fag- og rekstrarsviði leikskóla. Til að stýra leikskólanum hafa þær Salvör Jóhannesdóttir og Kristín Auður Harðardóttir gengið til liðs við Skóla. Salvör sem leikskólastjóra og Kristín sem aðstoðarleikskólastjóra. Salvör hefur lengi starfað eftir Heilsustefnunni og er með framhaldsmenntun í stjórnun. Kristín hefur starfað sem aðstoðarskólastjóri og er í meistaranámi við Kennaraháskóla Íslands. „heilbrigð sál í hraustum líkama” Stefna Skóla er að auka veg Heilsustefnunnar og fjölga Heilsuskólum á Íslandi www.skolar.is S k ó l a r e h f . – N e t f a n g s k o l a r @ s k o l a r . i s – H e i m a s í ð a w w w. s k o l a r . i s

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.