Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 16

Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 16
 Þjóðmál haust 2012 15 borgar stjóra á tré ársins hafi komið þeim á óvart sem vaða njóla og hvönn upp í klof um alla borg . Óhrjáleg beðin fyrir fram an Menntaskólann í Reykjavík hljóta að kalla fram tár á hvörmum gamalla mennt skælinga og ekki tekur betra við í Fógeta garðinum sem langleiðina inn í ágústmánuð var fórnarlamb hug mynda- fræði um sjálfbæran vöxt arfa og illgresis . Á móti kemur að vegfarendur, sem klífa Skóla vörðuholtið, fá ofbirtu í augun löngu áður en tindinum er náð . Slík er ofgnóttin af gulum stjúpum sem þekja þar beðin . Má vera að einhver sparnaður liggi í að keyra öll sumarblóm yfirvaldsins á einn stað og hola þeim þar niður, en ekki er garð- yrkjudeild borgarinnar öfundsverð af því að fylgja slíkri „fagurfræði“ . Hér á best við máltækið „það er ýmist í ökkla eða eyra“ . En þrátt fyrir óreiðuna sem ríkir eru nokk ur ófrávíkjanleg atriði sem enginn má víkj ast undan . Harðstjórn rétthugsunar krefst þess að allir hugsi, hlaupi og hjóli í takt . Í þeim efnum er fulltrúum Sjálfstæðis- flokks ins ekki heldur treystandi . Við bætist að allir skuli vera grannir, ungir og rosalega já kvæðir . Eins og starrar á leið í náttból sveig ist hjörðin við kall rétthugsunar innar . Öll gagnrýni á fáfengileikann, sem ræður ákvörð unum Besta flokksins, er afgreidd sem nöldur og nag og hégómlegir fjöl- miðla menn þora ekki að kafa dýpra . Þeir vilja sýnast „svalir“ . Að vera svalur er að falla í kramið og hlæja með . En er það svalt af varðmönnum almennings að þegja þegar taparar kosninganna eru munstraðir á launaskrá með tugmilljóna kostnaði fyrir útsvarsgreiðendur? Og hvað er svalt við að sitja fastur í skafli vegna aðgerðaleysis borgaryfirvalda? Er svalt að þegja þegar ruslið tekur að lykta við húsvegginn? Það er ekkert svalt að leyfa fulltrúum „nýrra tíma“ að þigga utanlandsferðir af fyrir- tækj um sem sækjast eftir viðskiptum við borgina . Jafnvel þótt „utan“ vinnutíma sé . Stimpilklukka siðareglna tikkar nefni- lega allan sólarhringinn hjá kjörnum full- trúum fólksins . Hlutverk fréttamanna er að fylgjst með að mætingarskylda sé virt . Ekki bara stundum heldur alltaf . Banka- stjórarnir, sem þáðu boð á snekkju Jóns Ásgeirs um árið, bjuggu ekki við sömu siðareglur, en ætli þeim hefði ekki þótt fengur að svona „pottþéttri“ afsökun, „ég var ekki í vinnunni“, þegar þeir voru gómaðir glóðvolgir . Hefðu frétta menn og almenningur kyngt því jafn auðveld lega? Látið ykkur ekki dreyma um það . Siðleysið, sem felst í orðum borgar full-trúans, er einkennandi fyrir afstöðu Besta flokksins, sem telur önnur lögmál gilda um sig en aðra . Besti flokkurinn þarf ekki að standa neinum skil; hann flaggar til einnar nætur . Dugleysi fréttamanna ræðst hins vegar af ótta þeirra við óforskömmug- heitin og útúrsnúningana sem gagnrýni þeirra mætir . Þeir kæra sig ekki um að sitja eftir með eggið á andlitinu . Þeir sem muna nokkur ár aftur og aðför fréttamanna að borgarstjóranum sem hafði átt við veikindi að stríða og hvernig hvert hans orð var E ins og starrar á leið í náttból sveigist hjörðin við kall rétthugsunarinnar . Öll gagnrýni á fáfengileikann, sem ræður ákvörðunum Besta flokksins, er afgreidd sem nöldur og nag og hégómlegir fjölmiðlamenn þora ekki að kafa dýpra . Þeir vilja sýnast „svalir“ . Að vera svalur er að falla í kramið og hlæja með .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.