Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 51

Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 51
50 Þjóðmál haust 2012 hún birtist í neyðarlögunum . Meginefnið var að gömlu bankarnir voru látnir falla í fang kröfuhafa sinna, en íslenska ríkið stofnaði nýjan banka við hlið hvers hinna gömlu og færði innlánsviðskipti, innlend útlánaviðskipti og greiðslumiðlun til hinna nýju banka . Tildrög þess að ég var boðaður til þessara verka voru að ég hafði ritað grein í Morgunblaðinu hinn 15 . apríl 2008 og lýst slíkum hugmyndum (e . hive-down), sem ég vildi framkvæma strax, í því skyni að afstýra fjármálaáfalli . Þeim hafði ég kynnst erlendis sem bankamaður sem vann að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja . Í júlí 2008 bauð bankastjórn Seðlabankans til fundar ásamt ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneyt- isins til að ræða þær og útfærslu þeirra . Þeir lýstu þá efasemdum sínum í ljósi þess að bankarnir voru allir með glænýja ársreikninga, uppáskrifaða af löggiltum endurskoðendum, sem staðfestu að allt væri í himnalagi . Fjármálaeftirlitið hefði tekið þá góða og gilda . Ganga yrði út frá því að vandi bankanna væri lausafjárvandi . Útilokað væri að hnekkja starfsemi bankanna að fyrra bragði . Mér finnst þessi svör skiljanleg nú, því augljóst er orðið að rangar póli tísk ar álykt anir hefðu verið af dregnar . Bank arnir urðu að fara í þrot áður en ríkisvaldið greip inn í . Aðferðin kom nokkuð breytt fram í neyðarlögunum, á þann veg að hinir nýju bankar urðu ekki dótturfélög hinna gömlu banka, heldur í eigu ríkisins . Fá- einum dögum fyrir hrunið, 25 . sept- ember 2008, féll stærsti bandaríski spari- sjóðurinn, Washington Mutual . Hann var meðhöndlaður með svip uðum hætti og er víst að fulltrúar JP Morgan, sem voru forsætisráðherra til ráðuneytis, hafa fylgst með þeirri aðgerð . Það sem er ólíkt með aðgerðunum er að hér gerðu menn greinarmun eftir innlendum og erlend- um viðskiptum, ekki eftir „góðum“ og „vondum“ . Það var málefnalegt . Menn færðu staðbundin bankaviðskipti yfir í nýja banka en létu erlend umsvif óviðkomandi Íslandi falla . Með sömu lögum voru innlán gerð að forgangskröfum með afturvirkum hætti, brútal aðgerð, nokkuð sem aðeins gat gengið í ljósi neyðarréttar ríkis sem barðist fyrir sjálfstæði sínu og tilveru . Um það má lesa í 7 . hefti skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis . Hæstiréttur hefur nú fallist á lögmæti þessa gernings . Á örfáum dögum var gerð uppskrift að fjárhagslegri endur- reisn Íslands sem vekur nú athygli víða um heim, ekki síst fyrir að setja hagsmuni fólks ofar hagsmunum banka . Hún gengur undir heitinu neyðarlög . Á þeim grunni byggir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur störf sín . Skrýtin tík, pólitík Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyf - ingarinnar — græns framboðs hefur tek- ist að bjarga Íslandi og koma í veg fyrir hrun samfélagsins, að mati Stein gríms J . Sigfússonar . Hann sagði þetta svo hóg- værlega á flokksráðsfundi VG í Reykjavík föstudaginn 24 . febrúar s .l .: Á örfáum dögum var gerð uppskrift að fjárhagslegri endur reisn Íslands sem vekur nú athygli víða um heim, ekki síst fyrir að setja hagsmuni fólks ofar hagsmunum banka . Hún gengur undir nafninu Neyðarlög . Á þeim grunni byggir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur störf sín .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.