Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 50

Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 50
 Þjóðmál haust 2012 49 Efnahagsreikningar banka nema átt-faldri landsframleiðslunni . Þetta er tvisvar til þrisvar sinnum meira en við- skipta lífið kallar á . Óvíst er um gæði þessa eigna safns ef til harðinda kemur . / . . . / Yfirgnæfandi meirihluti þessara um svifa tengjast Íslandi lítið . Þeir er- lendu stórbankar sem lánuðu féð vissu það . Einnig að ríkisábyrgðir eru liðin tíð . Lán þeirra leiddu til vandræða . Þeir eru ótryggð ir kröfuhafar og þurfa að bera sinn hluta byrðanna . / . . . / Samhliða þurfa stjórn völd að líta til með þeim hluta um- svif anna sem eru í þágu lands og þjóðar . / . . . / Maklegt er að eigendur og stjórnendur banka glími við sjálfskaparvíti sín . Stjórnvöld þurfa að gæta íslenskra hagsmuna í því ferli . Hvorki má aðstoða þannig að í því felist gjöf né hagnaður . / . . . / Bankarnir eru nú eins og hver önn- ur óregluheimili . Veislan er búin . Sjálf- ræðissvipting vofir yfir . Örmagna og ráðþrota, með skottið á milli lappanna, rétta þeir nú fram lófann . Ábendingar um aðgerðir Aðgreina ber sem fyrst innlenda banka- starfsemi frá annarri og flytja í sérstök ný dótturfélög . Ríkissjóður láni bönkunum fyrir hlutafjárframlagi til hinna nýju félaga, gegn handveði í hlutabréfunum . Kröfur á og skuldbindingar við þá sem búsettir eru á Íslandi eiga heima í hinum nýju félögum . / . . . / Unnið verði að við- skiptalegum aðskilnaði nýju bankanna frá móðurbönkunum strax í framhaldinu, svo skilja megi þá frá þeim án fyrirvara . Flutningur viðskiptanna í ný félög yrði ekki riftanlegur af því að gerningurinn yrði kröfuhöfum móðurbankanna í hag . Ástæðan er sú að eigið fé þeirra stæði þá eftir til stuðnings þeim eingöngu . Að auki verður ekki séð að mismunur sé á gæðum erlendra og innlendra eigna . Veðtakan í hlutabréfunum yrði ekki heldur riftanleg, af því að nýtt lán fylgdi . / . . . / Gert verði alveg ljóst að íslensk stjórnvöld muni ekki koma frekar að fjárhagslegri endurskipulagningu banka, að öðru leyti en því að leysa áðurnefnd ný dótturfélög um innlenda bankastarfsemi til sín, ef á þarf að halda . / . . ./ Unnið er þessa dagana að lausn bankavandans . Ekki er líklegt að sá sem stendur utan við það starf geti slegið fram bestu lausn . Betur sjá augu en auga . Með þessari grein er hins vegar vakin athygli á að leiðir finnast til að takmarka það högg sem almenningur verður fyrir . Huga ber að þeim áður en ákvarðanir eru teknar . Úr Morgunblaðsgrein R .Ö . 15 . apríl 2008 . Ósjálfbjarga bankar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.