Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 4
Ritstjóraspjall
Vetur 2013
_____________
Makalaust var að heyra hagfræði-menntaða forystumenn ASÍ halda
því blákalt fram að ekkert samhengi væri
á milli óraunhæfra kauphækkana og verð-
bólgu — og skella svo skuldinni á krón-
una sem orsök viðvarandi verðbólguvanda
í landinu . Það er beint orsakasamhengi
milli kaup hækkana, sem eru um fram fram-
leiðni aukningu, og verðbólgu, at vinnu -
leys is og gengisfalls . Hér á landi hefur það
verið kappsmál stjórnmálamanna að við-
halda fullri atvinnu og því hefur svar ið við
óraunhæfum kauphækkunum jafn an verið
aukin seðlaprentun sem með til heyr andi
gengisfalli krónunnar hefur fljótt gert kaup-
hækkanirnar að engu . Í þeim lönd um þar
sem gengi er fast, svo sem á evru svæðinu,
leiða kauphækkanir um fram fram leiðni-
aukningu til atvinnuleysis . Þetta kennir
sagan okkur með óyggjandi hætti . Það er
með öllu óboðlegt að forystumenn ASÍ
skuli tala með svo óábyrgum hætti á opin-
berum vettvangi .
Hitt er annað mál að upp lýsingar um svimandi há launa kjör stjórn ar-
manna í Sam tökum atvinnu lífs ins (SA)
hljóta óhjá kvæmi lega að hleypa illu
blóði í við semjendur þeirra, þótt
verka lýðsrekendur séu sannar-
lega engir englar þegar kem-
ur að því að skammta sér laun .
Samkvæmt laus legri at hugun
eru meðallaun stjórn ar manna
SA 3–4 milljónir á mánuði .
Meðal laun í land inu eru hins vegar um
400 .000 kr . Launa kjör stjórnarmanna
SA minna óneit an lega á stjórn endur og
eigendur ís lensku bank anna, sem með
skipulegum hætti rændu þá innan frá með
því að skammta sjálf um sér vitfirringslega
há laun og bón usa jafnframt því sem þeir
lánuðu sjálf um sér og vildarvinum sínum
svimandi háar fjárhæðir án nokkurra veða
sem hald var í . Þetta framferði verður ekki
réttlætt með skírskotun til útlanda — að
þar hafi samskonar gengi vaðið uppi í
fjármálakerfinu . Íslenskur veruleiki er allt
annar en í tugmilljónmanna þjóð félög -
um . Við erum 300 .000 manna sam félag og
eigum að haga okkur í sam ræmi við það .
Launakjör stjórnarmanna SA eru glöggt
til vitnis um að ekkert uppgjör hefur farið
fram innan atvinnulífsins í kjölfar falls
bank anna, þótt afleiðingin hafi verið sú
að nánast annað hvert fyrirtæki í landinu
hafi farið í þrot . Af hverju víkja stjórnendur
stærstu fyrirtækja landsins sér undan því að
horfast í augu við það sem fór úrskeiðis á
út rásar tím anum? Samtök atvinnulífsins
ættu að sjá sóma sinn í því að tefla ekki
fram fólki með 3–4 milljónir á mánuði
til að reyna að sannfæra launþega
þessa lands um að ekki sé hægt að
hækka 250 .000 króna mánaðar-
laun um 20 .000 kr .
A ð svo mæltu óska ég les -end u m gleði legra jóla og
far sæld ar á kom andi ári .
Þjóðmál VETUR 2013 3