Þjóðmál - 01.12.2013, Side 23
22 Þjóðmál VETUR 2013
allri lífsgleði og þótti óþarfi að gera neinum
ónæði um nóttina af því að hann vissi að hann
gæti ekki lifað, eins og Konráð Gíslason hefur
eftir honum .* Með fortölum hefur Helga
tekist að telja Jónas á að leyfa sér að draga
upp af honum mynd með teiknivél, camera
lucida, en Konráð Gíslason hafði árið áður
hvatt þá Brynjólf Pétursson, Grím Thomsen
og Jónas til þess að láta gera af sér mynd
„svo myndirnar verði til eptir þeirra dag, svo
skal jeg sjá um, þegar þeir eru dauðir, og jeg
er orðinn blindur, að þær verði stungnar í
kopar,“ eins og áður var nefnt .
Hálfvangamyndin, sem svo mjög sker sig
úr öðrum myndum Helga Sigurðssonar, er
að mínum dómi fyrsta myndin sem hann
gerði af Jónasi á Friðriksspítala í Kaup-
manna höfn í lok maímánaðar 1845 . Hún
er á sömu örk og myndin af líki Jónasar, sem
hann teiknaði daginn eftir að Jónas dó, eftir
að hann færði líkið í búning og reisti það
upp, en sú mynd hefur verið talin elsta mynd
Helga af Jónasi . Þessar tvær myndir eru á
annars konar pappír en hinar myndirnar
tvær í Listasafni Íslands, gulgráum pappír,
en það var dökkur eða gráleitur pappír sem
gjarna var notaður í teiknivélina camera
lucida, að því er heimildir herma .
Eftir að Helgi hafði dregið upp hálf-
vangamyndina, andaðist Jónas skyndilega
að morgni 26 . maí 1845, morguninn sem
átti að taka af honum fótinn . Helgi Sig-
urðsson hafði ekki lokið ætlunarverki sínu:
að gera mynd af Jónasi sem eftir hans dag
mætti stinga í kopar, eins og Konráð vildi .
Daginn eftir fór Helgi því að líki Jónasar,
færði hann í búning hans og reisti hann
upp, dró upp mynd af honum, eins vel og
nákvæmlega eins og hann gat, — mynd af líki
Jónasar — en líkaminn var svo sem fallinn
saman og höfuðið sigið niður á bringuna .**
* Fjölnir IX 1847, 4 .
** Þessi orð skiljast betur ef teikningunni af líki
Jónasar er snúið um 90° . Sjá 6 . mynd .
Á myndinni af líki Jónasar sjást döpur
augu undir þungum augnlokum . Augu
Jónasar hafa hins vegar verið lokuð þegar
Helgi Sigurðsson dró upp þá mynd, því
að Jónasi hafa að sjálfsögðu verið veittar
nábjargir daginn sem hann dó . En af því
að Helgi Sigurðsson hafði áður dregið upp
mynd af Jónasi í teiknivélinni, hálf vanga
myndina, gat hann teiknað augun eins vel
og raun ber vitni . Þung augnlok voru —
og eru ættarfylgja Hvassafellsættar, eins
og fram kemur á ljósmynd af Rannveigu
Hallgrímsdóttur, húsfreyju á Steinsstöðum,
systur Jónasar, en ljósmyndin er tekin árið
1872 þegar Rannveig er 72 ára að aldri (9 .
mynd) . Hálfvangamyndin er því að öllum
líkindum gerð af Jónasi í lifanda lífi og má
kallast myndin af Jónasi . Aðrar myndir eru
einungis eftirlíkingar af myndinni af líki
Jónasar . Þessa mynd af Jónasi Hallgrímssyni,
listaskáldinu góða, er nú rétt og skyldugt að
taka upp sem myndina af Jónasi .
9 . Rannveig Hallgrímsdóttir 1872 .