Þjóðmál - 01.12.2013, Page 24
Þjóðmál VETUR 2013 23
Jónas Ragnarsson
Öddubækurnar
byggja á eigin reynslu
Rætt við Jennu Jensdóttur
Öddubækurnar eru sjö . Sú fyrsta var gefin út árið 1946 en síðan kom ein
á ári, sú síðasta 1952 . Þær eru eftir Jennu
Jensdóttur og Hreiðar Stefánsson, Jennu
og Hreiðar, eins og þau voru alltaf nefnd .
Útgáfurnar eru orðnar um fjörutíu .
Réttsýni, kærleikur og heilindi
Fyrsta Öddubókin er reyndar frá vetrin-um 1942–1943,“ segir Jenna þegar
hún er spurð um bækurnar . „Við Hreiðar
höfðum flutt til Akureyrar og stofnað smá-
barnaskóla . Okkur vantaði lesefni fyrir
nem endurna, sem voru sex ára . Ég hand-
skrifaði bókina og við fjölfölduðum hana í
þrjátíu eintökum í sprittfjölritara .“
Þremur árum síðar kom bókin út á veg-
um bókaútgáfu Æskunnar . Hún nefndist
einfaldlega Adda, var 120 síður, innbundin
og kostaði 14 krónur . Síðan komu Adda og
litli bróðir, Adda lærir að synda, Adda kemur
heim, Adda í kaupavinnu, Adda í menntaskóla
og loks Adda trúlofast . Sú síðasta er á titil síðu
sögð vera unglingabók . „Öddubækurnar
hafa ávallt selst upp á skömmum tíma,“
sagði í blaðaauglýsingu og í annarri sagði:
„Öddubækurnar eru í hópi vinsælustu
barnabóka hérlendis .“ Æskan gaf út allar
bækurnar í fyrstu útgáfu . Myndskreytingar
voru eftir Loft Guðmundsson, Jóhannes
Geir, Þórdísi Tryggvadóttur og Halldór
Pétursson .
Jenna segist ein vera höfundur Öddu-
bókanna en að það hafi orðið að sam-
komulagi að þau hjónin yrðu bæði skrifuð
fyrir þeim til að tengja bækurnar skólan um
þeirra . Hreiðar skrifaði sumar aðrar bækur
en Öddubækurnar — og enn aðrar skrif-
uðu þau saman .
Jenna segist leggja áherslu á siðferðileg an
boðskap, réttsýni, kærleika og heilindi . Adda
heitir fullu nafni Agnes Þorsteinsdótt ir og
er fósturdóttir læknishjóna í litlu kaup túni
en varð síðar kjördóttir þeirra .
Áður en fyrsta Öddubókin var gefin út
í prentuðu formi sendu Jenna og Hreiðar
frá sér bókina Skógarævintýri Kalla litla .
Hún kom út um miðjan desember 1944
og var sögð „samin í smábarnaskóla Jennu