Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 26
Þjóðmál VETUR 2013 25
Vann samkeppni á sextánda ári
En hvenær byrjaði Jenna að skrifa? „Það var snemma,“ segir hún . „Ég var á
sextánda ári þegar ég sendi sögu í samkeppni
hjá Útvarpinu og hreppti fyrstu verðlaun,
25 krónur . Sagan nefndist Útvarpskennsla
veldur misskilningi . Um svipað leyti fékk
Gunnar M . Magnúss nokkrar sögur hjá mér,
en hann var vinur foreldra minna . Gunnar
kom sögunum til útgefanda Unga Íslands
og þar birtust sex sögur, að ég held, og eina
sendi ég til Skinfaxa, blaðs Ungmennafélags
Íslands, en ég starfaði í þeim félagsskap
heima .“ Auk þess samdi hún leikrit sem sett
var upp í Stykkishólmi og síðar í Reykjavík .
Þá hefur hún samið sögu um Mýslu sem
Sjónvarpið gerði mynd eftir og hefur verið
sýnd víða um heim .
Jenna og Hreiðar fengu viðurkenningu
Reykjavíkurborgar fyrir barnabækur þegar
hún var fyrst veitt, árið 1973, hlutu verðlaun
úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins 1975 og
frá Íslandsdeild IBBY 1993, svo að nokkuð
sé nefnt . Hreiðar lést árið 1995 .
Situr enn við skriftir
Bækur Jennu og Hreiðars urðu alls 27 . Jenna hefur auk þess sent frá sér
ljóðabók og smásögur og hún er enn að . „Ég
vandi mig á að sitja við skriftir milli klukkan
fimm og sjö á morgnana þegar ég var fyrir
norðan og hef haldið þeim sið .“ Jenna vill
samt ekki gera mikið úr því sem hún setur
nú á blað . „Stundum eru það ljóð, stundum
eitthvað annað .“
Öddubækurnar voru ófáanlegar um
árabil en Ugla hefur verið að gefa þær út á
ný síðustu árin .
Jenna er orðin 95 ára og býr á Seltjarnarnesi .