Þjóðmál - 01.12.2013, Síða 83
82 Þjóðmál VETUR 2013
Í bók sinni segir Steingrímur J . Sigfússon
frá því að hann hafi átt frumkvæði að
samtölum við Guðjón Arnar Kristjánsson,
formann Frjálslynda flokksins, og Ingi björgu
Sólrúnu Gísladóttur, formann Sam fylk-
ingarinnar, um samstöðu gegn ríkisstjórn
Fram sóknarflokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins (2003–2007) .
Hann hafi fyrst talað fyrir þessu árið 2005
við dræmar undirtektir, síðan aftur síð-
sumars 2006 og enn hafi Ingibjörg Sólrún
tekið þessu „heldur“ dræmt . Hún gæti þó svo
sem boðið þeim Steingrími J . og Guðjóni
Arnari í kaffi . „Upp frá því var farið að tala
um þetta sem Kaffibandalagið,“ segir í bók
Steingríms J . Þar er síðan minnt á að eftir
kosningar 2007 hafi slitnað upp úr samstarfi
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og
fimm dögum síðar hafi Sjálfstæðisflokkur
og Samfylking myndað ríkisstjórn . Þá segir
í Steingríms-bókinni:
Á kreik komust sögusagnir sem síðar
voru staðfestar, um að viðræður flokk-
anna hefðu hafist nokkru fyrir kosningar,
á milli Ingibjargar Sólrúnar og Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns
Sjálfstæðisflokksins . „Það setur auðvitað
spurningarmerki við heilindin sem voru
í þessu svokallaða Kaffibandalagi fyrir
kosningar og yfirlýsingar Ingibjargar um
að hún myndi fyrst ræða við okkur ef
stjórnin félli .“
Í bók Steingríms J . kemur fram að hann
hafi haft miklar áhyggjur af stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar, hún yrði
„mjög hægrisinnuð og í raun framlenging á
óbreyttri stjórnarstefnu“ Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks . Formaður vinstri-
grænna talaði því „kannski tvisvar-þrisvar
sinnum“ við Geir H . Haarde í síma um
þetta leyti til að kanna áhuga hans á stjórnar-
samstarfi, segir í bókinni .
Steingrímur J . Sigfússon var meðal
þeirra sem hvöttu helst til þess að alþingi
samþykkti að ákæra Geir H . Haarde og
kalla hann fyrir landsdóm þótt formaður
VG segðist samþykkja ákæruna með „sorg
í hjarta“ (því miður er Steingrímur J . ekki
beðinn að skýra þessi orð sín í bókinni) .
Þegar Geir H . Haarde brást við ályktun
alþingis 28 . september 2010 um að honum
skyldi stefnt fyrir landsdóm sagði hann að
annað hefði verið uppi á teningnum hjá
Steingrími J . við atkvæðagreiðsluna um
lands dóminn en eftir þingkosningar vorið
2007, þegar hann hefði viljað fá Geir til
viðræðna við sig um myndun ríkisstjórn ar
í sumarbústað tengdaforeldra sinna . Þetta
hafði ég ekki heyrt Geir segja áður, hvorki
á lok uðum fundum né í fjölmiðlum . Stein-
grímur J . skautar yfir þetta í bók sinni,
þar er aðeins minnst á tvö eða þrjú símtöl .
Veikir það heimildargildi bókarinnar að
höfund ur hennar skuli ekki lýsa samkiptum
Steingríms J . og Geirs betur .
Til marks um ónákvæmni í bókinni um
Steingrím J . má rifja upp atvikið þegar
hann lagði hendur á Geir H . Haarde þar
sem hann sat í stól forsætisráðherra í þing-
salnum . Ég var þá í ræðustól (24 . nóvember
S teingrímur varð sér rækilega til skammar í þingsalnum
og furðulegast var að forseti lýsti
framgöngu hans ekki vítaverða . Það
er ósvífni að krefjast þess að um
þetta sé þagað . Atvikið lýsir auk þess
ólíkri skapgerð þeirra Steingríms J .
og Geirs . Að kalla saman landsdóm
yfir Geir H . Haarde var pólitískt
ofbeldisverk .